Röst - 01.02.1944, Page 2
2
R Ö S T
iiimiiiimmtiinnnHHiiiiiiimnmiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiniiiniMiiiiiiiiiiiimiiimiimiimiiiiiM
I RÖST |
Mánaðarblað um menningarmál. |
Útgefendur: Nokkrir kennarar í 1
Vestrmnnaeyjum. |
1 Ritstjórn: |
: Helgi Þorláksson (ábm.), sími 173 f
1 Friðbjörn Benóuísson 1
Þorvaldur Sæmundsson.
mmmmimmmimmmmmimimmiimmmimmmmmmmmmmimmmmmmmmmmmm
Blaðaulgáfa.
Með þessu blaði stækkar Rðst í 20 síður
og verðið hækkar um leið í krónur 2.
Sumum kann að þykja verð þetta allhátt
og viljum við því skýra að nokkru, hver
afstaða er hér til blaðaútgáfu, sem þessarar.
Tekjur blaða eru tvennskonar, annarsvegar
fyrir auglýsingar, hinsvegar fyrir sölu. Aug-
lýsingaverð blaða í Reykjavík er nú mjög
háttog einum fjórða hæitna, en í Röst. Aug-
lýsir.gatekjurnar eru þó öruggasti tekjustofn
blaðs, sem gefið er út í íslíkum bæ sem Vest-
mannaeyjum og tæpast getur eignazt nema
nokkur hundruð kaupenda. Blöð, sem hins-
vegar eru ætluð öllum landslýð og hafa þús-
tindir kaupenda, er því hægt að selja miklu
vægara verði, þar eð eintakafjöldi (upplag)
eykur útgáfukostnaðinn tiitölulega lítið.
Nú er það ósk okkar, sem að Röst stönd-
um, að reyna að halda úti mánaðarblaði,
sem geti orðið boðberi þess, sem gensf,
og hverra hugsjóna, sem til heilla horfa
þessu byggðarlagi og þjóð alfrj. Við óskum
að b'aðið geti orðið greinargóð heimild sam-
tíð og framtíð og munum því birta að stað-
staðaldri myndir héðan úr Eyjum, þótt það
auki útgáfukostnaðinn injög.
Hvort blaðaútgáfa þessi á framtíð fvrir sér,
veltur þessvegna á J>ví, hvort okkur tekst að
tryggja fjárhagsafkomu blaðsins. Um leið og
Nýkomið úrvaí af
Karlmanuaskófatnaði
Verðíð míög
sanngjarnt
Skóbuðin.
fæst í
ÍSHÚSINU
Nýkomið:
Panthnappar — Silkitvinni, 2.
litir — Stoppugarn — Nálar,
Tvinni — Drengjalöt (frá 4 ára
til 12) — Feld telpupils og
skokkar — Ullar leistar, bolir
og busur á börn, o. m. fl.
VERZLUNTN GÍSLI G. WÍUM.
við þökkum þeim auglýsendum og kaupend-
um, sem þegar hafa lagt skerf tií, vonum
við að þeim fjölgi, sem styrkja þessa tilraun
og láti tímann skera úr um hvort Röst á
að liía eða deyja.