Röst - 01.02.1944, Síða 12

Röst - 01.02.1944, Síða 12
12 R Ö S T Ágúst Pétursson, idnnemi: BARNAÞÁTTURINN: Og draumurinn rættist. pað var sumarið 1927, sem atburður þessi gerðist. þá var ég 6 ára 'gamall og átti heima á Höfnun hjá foreldrum mínum og systkin- u:m, sem eru fimm. Húsið stóð nokkra faðma frá sjávarbakkanum. Fjörðurinn, sem Hafnir’ standa við, heitir Finnafjörður. Gunnólfsvík' og Gunnólfsvíkurfjall eru beint á móti Höfn um, hinu megin fjarðarins. Mikið var í þá daga um skip á Finnafirði. Svo bar það við sunnudag einn um mitt sumar, að pabbi og rhamma fóru að heiman ásamt þremur systkinum mínum. Við vorum þrjú eftir heima, Ella systir mín, sem þá vai 16 ára gömul, Björn bróðir 11 ára, og ég 6 ára. Veðrið var mjög gott, og voruin við Björn úti á túnipg áttum að fást eitthvað við hey, sem verið var að þurrka. Við vorum frekar lausir við vinnuna og vorum sammála um það, að við værum beittir órétti ineð þvi að láta okkur vinna á sunnudegi. Eitt sinn er við dokuðum við, varð okkur iitið út á fjörðinn og sáum hvar kom skip, sem virtist stefna inn á Gunnólfsvík. Skipin fóru undantekningarlaust alltaf þangað, sök- um þess að þar var löggilt höfn og miklu betri en heima. Okkur þótti miður, að þessu skyldi eþki jafnar skipt, svo að við ákváðum að reyna að Iokka þetta skip inn á Hafnir, með því að flagga og veifa. Við fenguin strax mikinr, áhuga fyrir hugmvndinni og náðuin okkur í tóman hveitipoka, sem \ið sprettum sundur og notuðum sem fána. Við klifum síðar upp á háa heyhlöðu, til þess að sem mest bæri á fiagginu. Langan tíma sáust þess engin merki, að við ætluðum aö hafa okkar fram. En að lokurn breytti skipið urn stefnu okkur til mikillar undrunar, og stefndi nú beint á Hafnir. Nú var tilætluðum árangri náð. En þá kom dálítið á daginn sem við höfðum ekki gert ráð fyr- ir. Við sáum að ef skipsmenn kæmui í land, yrðum við að hafa gilda og góða ástæðu fyrir verknaði okkar. Hvernig sem við brut- um heilann um þetta, gátum við enga fram- bærilega ástæðu fundið fyrír atferli okkar. Svo sáum við það, að væru þetta útlendingar, myndum við ekki skilja eitt einasta orð hjá þeim og allt fenda í vandræðum. Ef þeir yrðu vondir út af gabbinu gæti vel farið svO' að þeir færu með okkur um borð og notuðu okkur í beitu' Alltaf bættust fleiri og fleiri hnútar á sr.ærið og við óskuðum þess nú, að við hefð- um aldrei byrjað á þessari vitleysu. Skipið var nú komið allnærri landi og kast- aði akkerum. Við vonuðum að þeir hefðu eng an bát til að komast á í Iand. En sú von varð brátt að engu, því að bátur með 4 mönnum, var þegar lagður af stað til fands og var rösk- lega róið. Við fórum nú inn til Ellu og tjáðum henni vandræði okkar og fóruin fram á að hún færi niður í Ójöru til að taka á móti bátnum. Hún var búin að læra eitthvað í 'dönsku, og fannst okkur, að hún hlvti að vera hárviss um hvað hún ætti að segja, ef þctta væru útlend- iugar. Hún afsagði að fara og sagði, að við yrðum að súpa seyðið af verknaði akkar. Við fórum því með hálfum huga niður að lendingunni og biðum eftir bátnum, sein ekki átti eftir nema nokkra faðma í land. Ekki voru eftir nema tvær eða þrjár bátslengdir, þegar ég misstí alveg kjarkinn og hljóp heim eins og fætur toguðu beina leið upp á háaloft og skreið þar upp fyrir stóra kistu, og faldi mig þar. En það er af Birni að segja, að hann stóð eftir, ákveðiun í því að gera sitt bezta. Bátur- inn var nú kominti! f. íand, og mennirnir buðii góðan daginn og spurðu á bjagaðri íslenzku, hvað hann vildi þeim. þar leysti Björn aðai vandann með því að segja, að við ætluðum að gefa þeim ber og mjólk. þeir létu

x

Röst

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Röst
https://timarit.is/publication/1805

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.