Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1986, Síða 185
Heimilt er að fella niður auglýsingu og tilkynningu til blaða,
skv. þessari grein, ef aukafundur er boðaður með svo naumum fyrirvara, að
slíku verði ekki við komið, eða hafa skemmri fyrirvara en greindir eru í
1. og 2. mgr.
10. gr.
Borgarstjórnarfundi skal halda í heyranda hljóði. Borgarstjórn getur
þó ákveðið að ræða einstök mál fyrir luktum dyrum, t.d. einkamál manna eða
mál, sem æskilegt er vegna hagsmuna borgarinnar, að rædd séu fyrir luktum
dyrum.
Ef tillaga kemur fram um það að mál skuli rætt fyrir luktum dyrum, skal
úr þvi skorið án umræðna.
Óheimilt er að skýra frá því, sem fram kemur við umræður fyrir luktum
dyrum.
Ef áheyrandi á borgarstjónarfundi raskar fundarfriði, getur forseti
iátið vísa honum út.
11. gr.
Borgarstjórn getur enga ályktun gert, nema meira en helmingur
borgarfulltrúa sé viðstaddur á fundi. Einfaldur meinhluti atkvæða ræður
úrslitum mála nema annað sé sérstaklega áskilið í samþykkt þessari.
Borgarstjóri og hver borgarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu,
viðaukatillögu, frestunartillögu eða frávísunartillögu við hvert það mál,
sem til umræðu er og borgarstjórn á úrskurðarvald um.
Ef jafnmörg atkvæði eru með máli og móti feliur það, nema við
kosningar, þá ræður hlutkesti.
Mál telst ekki samþykkt, nema meira en helmingur viðstaddra
borgarfulltrúa greiði því atkvæði.
Mál má afgreiða með því að samþykkja það eða fella, vísa því frá með
einfaldri eða rökstuddri dagskrá, vísa því til afgreiðslu borgarstjóra eða
nefndar eða með því að fresta því.
Forseti sker úr því, hvernig atkvæðagreiðslum um tiiiögur skuli hagað.
12. gr.
Borgarstjórn afgreiðir mál við eina umræðu nema hina árlegu
fjárhagsáætlun borgarinnar, ársreikninga og reglugerðir, sem hljóta skulu
staðfestingu ráðherra.
Um þessi mál skulu fram fara tvær umræður og líða ein vika hið skemmsta
miili umraeðna.
M. gr.
Atkvæðagreiðsla fer þannig fram, að borgarfulltrúi réttir u^p hægri
hönd. Nafnakail skal hafa, ef forseti ákveður, borgarstjóri óskar eða
fjórir borgarfulltrúar hið fæsta. Við nafnakali greiöa borgarfulltrúar
atkvæði eftir skrá um borgarfuiltrúa í stafrófsröð. Nöfn varafulltrúa skal
bæta á skrána í réttri röð í stað nafnu þeirra, sem fjarstaddir eru.