Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1986, Page 254
Eigi iná binda sveitarsjóð við sjálfskuldarábyrgð á skuldbindingum annarra aðila en
stofnana sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn getur veitt einfalda ábyrgð til annarra aðila gegn tryggingum sem hún
metur gildar.
90. gr.
Komist sveitarfélag í fjárþröng, þannig að sveitarstjórn telur sér eigi unnt að standa í
skilum, skal hún tilkynna það til ráðuneytisins.
Ákvörðun um slíka tilkynningu skal tekin eftir tva'r umræöur í sveitarstjórn.
Ráðuneytið skai þá tafarlaust láta fara fram rannsókn á fjárreiöum og rekstri
sveitarfélagsins og leggja síðan fyrir svcitarstjórn að bæta það sem áfátt kann að reynast
innan hæfilegs frests.
Komi í Ijós að fjárhagur sveitarfélags cr slíkur að það getur ekki með eölilegum rekstri
staðið straum af lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbindingum sínum er ráöuneytinu
heimilt að veita sveitarfélaginu styrk eða lán úr Jöfnunarsjóöi svcitarfélaga til þess að koma
fjárhag sveitarfélagsins á réttan kjöl með þeim skilyrðum sem ráðuneytið sctur.
Ráðuneytið getur heimilað eða lagt fyrir sveitarstjórn í því tilviki sem hér um ræðir að
leggja álag á útsvör, aðstöðugjöld og fasteignaskatta sem nemi allt að 25%.
91. gr.
Nú er greiðslubyrði sveitarfélags umfram greiðslugetu svo mikil að Ijóst er að eigi mun
úr rætast í bráð og getur ráðuneytið þá svipt sveitarstjórn fjárforráðum sveitarfélags og
skipað því fjárhaldsstjórn, enda hafi fjármálastjórn sveitarfélagsins verið í ólestri, ráðstafan-
ir skv. 90. gr. muni fyrirsjáanlega eigi duga til úrbóta eða sveitarstjórn hafi vanrækt svo
skyldur sínar skv. lögum þessum að vandræði hafi af hlotist.
Áður en sveitarstjórn verður svipt fjárforráðum sveitarfélags skv. þessari grein skal
ráðuneytið þó skora á sveitarstjórn að koma fjármálum sveitarfélagsins á réttan kjöl og er
ráðuneytinu heimilt að veita sveitarstjórn allt að 6 mánaða frest í því skyni. Ráðuneytiö
getur þá jafnframt snúið sér til skiptaráðanda og óskað eftir greiðslustöðvun sveitarsjóðs í
allt að þrjá mánuði í samræmi við II. kafla gjaldþrotalaga, nr. 6/1978, eftir því sem við á.
Fjárhaldsstjórn skal skipuð til tiltekins tíma og eigi lengur en til eins árs í senn.
Heimilt er sveitarstjórn að höfða mál fyrir dómi til ógildingar úrskurði ráðherra um
sviptingu fjárforræðis.
92. gr.
Fjárhaldsstjórn sveitarfélags skal skipuð þremur mönnum, þar af einum skv. tilnefn-
ingu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Formaður skal skipaður af ráðherra.
Þóknun til fjárhaldsmanna skal ákveðin af ráðuneytinu og greiðist úr ríkissjóði.
Birta skal ákvörðun um sviptingu fjárforræðis og skipun fjárhaldsstjórnar í Lögbirtinga-
blaði og í B-deild Stjórnartíðinda.
93. gr.
Fjárhaldsstjórn tekur viö stjórn fjármála svcitarfélags og má enga greiöslu inna af hendi
úr sveitarsjóði nema meö samþykki hennar. Ályktanir sveitarstjórnar og ákvaröanir lægra
settra stjórnvalda hennar, sem liafa útgjöld í för mcð sér, eru ógildar nema til komi
samþykki fjárhaldsstjórnar.
Að öðru leyti fer sveitarstjórn áfram með málefni sveitarfélagsins.
Fjárhaldsstjórn skal rannsaka fjárreiður sveitarfélagsins og allan rekstur þess og gera
nýja áætlun um tekjur og gjöld svcitarfélagsins fyrir næstu tvö fjárhagsár.
Áætlun þessa skal senda ráðuneytinu til staðfcstingar ásamt umsögn sveitarstjórnar. Að
lokinni staðfestingu ráðuneytis gildir áætlunin sem fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, a.m.k.
meðan sveitarfélagið er undir fjárhaldsstjórn.