Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1986, Síða 258
íoo. i'j
lif mciri liluli atkvæOisbærra íbúa svcitaríclags liclur synja<"> saniciningu vi<i ;itkv;c<ia-
grciöslu skv. 108. gr. vcröur þaö svcitarfclag cigi saincinaö oörum svcitarfclögum aö svo
stöddu.
Hafi sameiningin hlotið samþykki skulu sveitarstjórnir þær, scm hlut eiga aö máli, taka
ákvarðanir um fjárhagsmálefni sveitarfélaganna, fjölda fulltrúa í nýrri sveitarstjórn, nafn
hins sameinaða sveitarfélags og önnur atriði. Ákvarðanir þessar skulu sendar ráðuneytinu
sem ákveður hvenær sameining skuli fara fram.
Séu sveitarfélög þau, sem sameinuö eru, sitt í hvoru lögsagnarumdæmi skal ráöuneytið
leita umsagnar dómsmálaráðuneytisins áður en ákvörðun um samciningu er tekin.
110. gr.
Sameining sveitarfélaga yfir mörk kjördæma verður ekki ákveðin nema með lögum.
111. gr.
Ráðuneytið skal hlutast til um að samþykktir og reglugerðir, sem gilda í þeim
sveitarfélögum sem sameina skal, verði endurskoðaðar og samræmdar og síðan lagðar fyrir
sveitarstjórn í hinu sameinaða sveitarfélagi.
112. gr.
Þegar ráðuneytið hefur staðfest sameiningu sveitarfélaga skv. framanskráðu skal það
gefa út tilkynningu um sameininguna sem birta skal í B-deiId Stjórnartíðind ■ Þar skal greint
frá nafni hins nýja sveitarfélags, hvaða sveitarfélög hafi verið sameinuð, frá hvaða tíma
sameiningin taki gildi, tölu sveitarstjórnarmanna, svo og hvort kosning skv. 113. gr. skuii
fram fara og hvcnær.
113. gr.
Ráðuneyti getur ákveðið að kosningar skuli fara fram til svcitarstjórnar liins sameinaða
sveitarfélags þegar við sameiningu, svo og kjördag slíkra aukakosninga.
114. gr.
Ráðuneytið getur, að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, sett almennar
reglur þess efnis að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga veiti fjárhagslega aðstoð til þess að greiða
fyrir sameiningu sveitarfélaga. Slíka aðstoð má veita í allt að fimm ár eftir sameiningu.
115. gr.
Þegar svcitarfélag í drcifbýli og svcitarfélag í þéttbýli samcinast er svcitarstjórn hins
sameinaða sveitarfélags heimilt að ákveða að um tiltekinn tíma, þó ekki lengur cn 10 ár frá
sameiningu, megi veita tiltekinn afslátt af fasteignaskatti af cignum í dreifbýli vegna
mismunandi þjónustu við fasteignaeigendur í dreifbýli og þéttbýli.
XI. KAFLI
Samskipti ríkis og svcitarfélaga.
116. gr.
Ríkisstjórninni er rétt að koma á formlegu samstarfi við samtök svcitarfélaga með gerð
samstarfssáttmála ríkis og svcitarfélaga og með öörum hætti. Ríkisstjórnin skal hafa náið
samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um þau mál er varða verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga og önnur samskipti þessara aðila.