Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1989, Page 74
60
Á skipulagstímabilinu verður unnið að þvi að efla Sundahöfn sem
flutningahöfn og Vesturhöfnina sem fiskihöfn og miðstöð skipaviðgerða.
í deiliskipulagi miðbæjarins er stefnt að þvi að auka tengslin við
höfnina. Hafnarstjórn stefnir að þvi að auka land hafnarinnar \im 45%
með uppfyllingum á skipulagstimabilinu. Áhersla er lögð á að baksvæði
verði skipulögð samhliða og i samræmi við skipulag hafnarsvæða.
Opin svæði: Það er stefna borgaryfirvalda að Elliðaárdalurinn og
fleiri slik svæði verði borgarvernduð. Borgarvernduð svæði eru þau
sem borgarstjórn hefur samþykkt að friða vegna sérstæðrar náttúru,
söguminja, umhverfis- eða útivistargildis. Borgarstjórn mun þó eftir
sem áður stefna að friðlýsingu á einstökum náttúrufyrirbærum.
í sunnanverðum Laugardal eru fyrirhugaðar byggingar i tengslum við
iþróttastarfsemina þar. Árið 1985 var samþykkt deiliskipulag fyrir
Sigtúnsreit, vestan Laugardals, sem gerir ráð fyrir ýmiss konar
þjónustustarfsemi og útivist þar.
FRAMTÍÐARBYGGÐASVÆÐIN.
íbúðahverfin þrjú norðan Grafarvogar verða liklega fullbyggð eftir 3
til 4 ár. í framhaldi af þeim er fyrirhuguð ibúðabyggð á Borgarholti.
Nú er unnið að deiluskipulagi tveggja af þremur fyrirhuguðum ibúða-
hverfum i Borgarholti og verður úthlutað lóðum i syðsta hverfinu mitt
ár 1989. í ár fer fram hugmyndasamkeppni um nýtingu Geldinganess
fyrir byggð. íbúðahverfin i Grafarvogi og Borgarholti verða samtals
405 hektarar að stærð og i þeim fullbyggðum munu búa 17 til 20 þúsund
manns.
Miðsvæðin i ibúðahverfunum verða verslunar- og þjónustukjarnar og
skulu aðalgöngustigar og leiðir almenningsvagna miðast við það.
Tengibrautir liggja utan ibúðahverfanna svo að gegnumakstur verði sem
minnstur.
Á skipulagstimabilinu er áætlað að taka i notkun ný athafnasvæði i
Geldinganesi, Gufunesi, á Borgarholti, i Smálöndum og Hádegismóum.
Geldinganes hentar vel fyrir ýmsa hafnsækna starfsemi. í Eiðsvik,
sunnan nessins, er ákjósanleg hafnaraðstaða, gott var og aðdjúpt.
Reykavikurborg og rikið munu hafa samvinnu um atvinnuuppbyggingu á
austursvæðum. Rikissjóður á um 150 hektara land á Keldnaholti en á
Grafarholti verður skipulagt hverfi fyrir fyrirtæki er byggja
starfsemi sina á rannsóknum og háþróaðri tækniþekkingu.
Framtiðarbyggðasvæðin verða i góðum tengslum við mörg mjög fjölbreytt
útivistarsvæði, s.s. Korpúlfsstaðatúnið, strönd Leiruvogar og bakka
Úlfarsár, sem munu tengja byggðina fjarlægari útivistarsvæðum eins og
Hólmsheiðinni. Eftir þvi sem byggðin þokast lengra i norður verður
timabært að gera Viðey aðgengilegri sem útivistarsvæði. Tiltölulega
auðvelt er að gera brú út í eyna frá Geldinganesi.