Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1989, Síða 253
- 239
Annars er Þorleifur Kortsson mest kunnur fyrir galdrabrennur þær, sem
hann kom af stað. Hann var hirtingarvöndur á saklaust fólk og drepsótt
i landinu; rjettarmorðsdrepsóttin.
1702 skipaði Friðrekur konungur hinn fjórði þá Árna Magnússon og
Pál lögmann Vidalin til þess að rannsaka ástandið á íslandi. Þeir
ganga að þvi verki með þeirri elju, skarpleika og dugnaði, sem lengi
mun uppi verða. Báðir voru þeir langt á undan timanum sem þeir lifðu
á, ekki einungis á íslandi heldur á Norðurlöndum, og liklegast þó viðar
væri leitað. Þeir láta manntal fara fram páskanóttina 1703, 62 árum
áður en fyrsta manntal er haldið á Norðurlöndvim, þeir semja bók fyrir
alt landið, þeir láta telja hverja kind, hvern nautgrip og hvert hross
á landinu, og færa alt til bókar sem þeir fá að vita. Bókin sem er
mörg þykk bindi i arkarbroti er það, sem nú er kölluð jarðabók Árna
Magnússonar. Hún er gullnáma fyrir hagfræði íslands, sem hver
menningarþjóð mundi öfunda okkur af, sem þekti hana til hlýtar. í
Landshagsskýrslunum, sem út hafa verið gefnar eru prentuð ágrip af
mörgu af því helsta úr jarðabók Árna Magnússonar, og ber þess vottinn
að íslendingar hafi verið mikil fróðleiksþjóð, ef ekki menningarþjóð,
langa leið á undan öðrum þjóðum, þegar fyrir 200 árum.
Menn nú á dögum skilja naumast til hlytar hverja andlega yfirburði
og hugrekki þeir menn hafa haft, sem þorðu að láta halda opinbert
manntal árið 1703. Þjóðirnar voru að komast út úr rökkri miðaldanna.
Öll heilög ritning var innblásin af guði, og menn fulltrúa á hvert orð,
sem i henni stóð. II. Samúelsbók 24. kap. skyrir frá þvi, að Jahve
upptendraðist gegn Israel, en engdi Davið konung til að telja fólkið,
og siðan refsaði Jahve ísraelslýð með drepsótt. í pestinni dóu sjötíu
þúsundir manna. Aftur skýrir I. Kronikubók 21. kap. svo frá þessum
sama atburði; Satan hófst í gegn ísrael og engdi Davið til að telja
fólkið. En Jahve ljet drepsótt koma i ísrael og fjellu sjötiu þúsundir
manna. Hvernig sem litið er á þessar tvær frásagnir um fólkstal Daviðs
konungs, þá eru það þær, sem hafa vakið sterkan fordóm, sem festi
djúpar rætur hjá almenningi, bæði hjer og annars staðar gegn fólkstölum
á fyrri öldum. Eftir manntalið 1703, varð íslendingum að trú sinni.
1707 komu upp "Stórabólan" og i henni fjellu 18000 manna, eða fullur
þriðjungur allra landsmanna. Hún mun hafa verið álitin refsidómur guðs
hjá mörgum fyrir þá fifldirfsku þeirra Árna Magnússonar og Páls
Vidalins að telja fólkið.
Svo er ládeyða i þessu efni fram til 1769 að stjórnin ljet taka
hjer manntalið sem fór fram þann 15. ágúst. Siðari hluta 18. aldar
urðu margir til að safna skýrslum, og gefa út ritgerðir um hagi
landsins. Jón Eiriksson konferenzráð fjekk aðra til að safna skýrslum.
Ólafur stiptamtmaður Stephánsson og Stephán amtmaður Thorarensen
skrifuðu sjerstaklega um búnað. Baron Eggers gaf út i "Filosophische
Schilderung des gegenwártigen Verfassung von Island" ýmsar skýrslur um
landshagi á íslandi. Skúli landfógeti Magnússon, og Hannes biskup
Finnsson gjörðu enn meira i þessa átt, en nokkur hinna fyrrnefndu.
Fyrir öllum þessum mönnum vakti það ljóst, að bæta þjóðfélagsmeinið, og
ráða þjóðfjelagsgátuna eða bæta úr ástandinu sem þá var i landinu,
ástandinu sem Hannes Finnsson lýsir best og nákvæmast, og rekur bezt
hinar sögulegu rætur til af öllum þessum mönnum.