Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1993, Page 221
205
BÍLAGEYMSLUHIJS
Gjaldskrárbreytingar frá 1. janúar 1988.
1. Kolaport, Kalkofnsvegi 3. Gjaldtökubúnaður.
Gjaldið á efri hæð var 40 kr. pr. klst. frá 1. janúar 1988. Mánaðarkort fyrir neðri
hæð kostaði 4.000 kr., en skilatrygging korts var 1.000 kr. Vikugjald var 1.600
kr., en útkall stæðisvarða kostaði 2.200 kr. Gjöldin breyttust 1. september
1990, þannig að fyrsta klst. kostaði 30 kr., en hverjar byrjaðar 12 mín. eftir það
kostuðu 10 kr. Mánaðarkortið kostaði 5.500 og vikugjald var 2.000 kr.
Skilatryggingargjald korta og útkallsgjald héldust óbreytt. Síðan 1. mars 1992
hafa mánaðarkort verið seld á 2.000 kr., en þau hækkuðu í 2.500 kr. 1. janúar
1993.
Lögregla lét áður draga bíla inn í Kolaport vegna ólöglegra lagna og urðu
eigendur þeirra að leysa þá út með geymslugjaldi portsins. Árið 1989 fluttist
þessi starfsemi í Holtaport, sem er geymslusvæði bifreiða við Vatnagarða
sunnan Miklagarðs.
Starfsemi Markaðstorgsins hófst laugardaginn 8. apríl 1989. Leigugjald fyrir
hvern laugardag var 25.000 kr., en hækkaði 1. ágúst sama ár í 50.000 kr. 19.
janúar 1991 var leigan hækkuð í 55.000 kr. og Markaðstorginu falið að sjá um
hreinsun, sem var áður á vegum borgarinnar. Leigugjaldið var svo tekið til
endurskoðunar í maí 1991 en var haft óbreytt. í maí 1993 var gerður nýr
samningur um húsaleiguna og hækkaði hún í kr. 73.000 fyrir hvern laugardag
og kr. 62.000 fyrir hvern sunnudag.
2. Bergstaðir, Bergstaðastræti 6. Gjaldtökubúnaður.
Húsið var tekið í notkun 16. nóvember 1989. Gjaldið var 30 kr. fyrir fyrstu
klst., en síðan greiddar 10 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur. Hélst svo allt
til 1. september 1990. Gjöldin breyttust þá þannig að gjald fyrir fyrstu klst.
hélst óbreytt, en síðan greiddar 10 kr. fyrir hverjar byrjaðar 12 mín.
Mánaðarkort kostuðu 4.500 kr. til 1. september 1990, en hækkuðu þá í 5.500 kr.
Þau lækkuðu í 3.500 kr. 1. janúar 1993.
3. Vesturgata 7. Gjaldtökubúnaður.
Húsið var tekið í notkun 5. desember 1989. Gjaldið var 30 kr. pr. klst., en síðan
greiddar 10 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mín. Gjald fyrir fyrstu klst. hefur
haldist óbreytt, en síðan 1. september 1990 eru greiddar 10 kr. fyrir hverjar
byrjaðar 12 mín. Mánaðarkort kostuðu 4.000 kr. til 1. september 1990, en
hækkuðu þá í 5.500.