Heilbrigt líf - 01.12.1943, Side 34
í rúminu lengi fram eftir, er slæmur ávani og mjög skað-
legur ungum mönnum á kynþroskaárum.
Stuðlið að heilbrigðri viðkynningu milli góðra pilta og
stúlkna á heimili yðar, ef þér eigið þess kost. Það getur
hjálpað til þess, að unglingamir leiti sér síður viðkynning-
ar á óhollum og siðspillandi stöðum.
Hafið ekki of mikið áfengi um hönd á heimili yðar og
komið ekki inn þeirri trú, að ókleift sé að skemmta sér
án áfengis.
Varizt sérstaklega að láta unglinga liafa of mikla pen-
inga á milli handa, en sjáið þó um. að þeir hafi hæfilegt
skotsilfur og geti alls staðar staðið í skilum. Þess eru mörg
dæmi nú síðan stríðið hófst, að foreldrar láti börn sín í
hugsunarleysi, hafa alltof mikla peninga handa á milli.
Þetta vekur aðeins tortryggni og öfund félaga þeirra, sem
e. t. v. hafa minni skildingaráð. Auk þess truflar það heil-
brigt mat þeirra á verðmæti peninga og gerir þeim erfið-
ara fyrir, þegar þau síðar eiga að sjá sér sjálf farboða og
vinna sér inn minni upphæðir með mikilli fyrirhöfn.
En það er ekki nóg, að ríkið og heimilin reyni að greiða
götu unga fólksins. Mest er komið undir æskumönnunum
sjálfum. Hver einasti ungur maður, sem vill „komast
áfram“ í lífinu, verður að leggja fram alla, krafta sína.
Hann verður að varðveita og ávaxta það pund, sem honum
er af Guði gefið, bæði andlega og líkamlega. Geri hann
það ekki, dregst liann fyrr eða síðar aftur úr, og bíður
lægri hlut í hinni hörðu lífsbaráttu vorra daga.
Flestir æskumenn fá í vöggugjöf hraustan líkama og
heilbrigða sál. Þessi fjöregg lífsins fara margír unglingar
svo gálauslega með, að undrun sætir.
Heilbrigt líferni, hollar lífsvenjur, þar sem nægileg
starfsgleði. íþróttir. söngur og hollir leikir fylla hverja
stund, verða beztu leiðarmerki æskuáranna.
Það er ósk og von heilbrigðra ungmenna. að þau geti
síðar hraust og ókvíðin gengið að eiga hvort annað og
eignast gott heimíli, sem ekki hvíli á skuggi sjúkdóms
vegna æskuglapa.
146
lleilbriyl lif