Heilbrigt líf - 01.12.1943, Blaðsíða 94
er völ á slíkum kennara, og í öðru lagi er ekki hægt að búast við
miklum árangri af að láta barnið „ganga“ í sjúkraleikfimi í einn,
tvo eða þrjá mánuði, ef það síðan hættir við ææfingarnar. Ef
vænta á nokkurs verulegs árangurs, þarf að iðka æfingarnar
reglulega (lag eftir dag og ár eftir ár, þar lil uppvextinum er
lokið, og lielzt lengi þar á eftir; en slíkt er vitaskuld einungis
hægt að gera í heimahúsum. Ef vel á að fara, verða því foreldr-
arnir óhjákvæmilega að vera aðalleikfimikennarar harna sinna.
Höf. hefir skilið þessa hlið málsins til hlítar. Æfingarnar eru
óbrotnar, og þeim svo glögglega lýst, að öllum ætti að vera vor-
kunnarlaust að liagnýta sér þær. Bók þessi á áreiðanlega erindi
inn á mjög mörg heimili, og ég vona, að sem flestir hagnýti sér
hana og meti að verðleikum.
Snorri Hallgriinsson.
Dr. med.
HJÁLP í VIÐLÖGUM.
Jón Oddgeir Jónsson:
3. útg. Reykjavík, 1943.
Alltaf eru slysin að vilja til, stór og' smá, fleiri smá, sem l>etur
fer. Og þau þurfa ekki að vera stór til þess, að fólk, sem ekkert
kann fyrir sér, standi uppi ráðþrota og hafist ekki að, ellegar —
og það getur verið hálfu verra — fari að bardúsa með þá slösuðu
af mikilli elju og góðum ásetningi, en minna viti. Enginh hefir
aflátsbréf fyrir slysum né heldur því, að vera viðstaddur þar sem
náungi hans meiðist. Væri því æskilegt, að allir kvnnu einföld-
ustu atriði til hjálpar í viðlögum.
Hafi maður fallið í vatn og náðst fljótt aftur, en þó í dauða-
dái, þá er hörmulegt að standa þar uppi auðum höndum, vit-
andi vel, að það getur kostað manninn lífið, að enginn viðstnddur
kann öndunaræfingar; eða, ef maður t. d. skerst illa eða særist
af skoti og mæðir hann blóðrás, þá er ömurlegt að geta ekkert
gert neina horft á, að honum blæði lil ólífis.
Lengi hefir verið hér lítill kostur bólta uin þessi efni; og þó
að hjálp í viðlögum verði ekki lærð til neinnar hlítar af bókum
einum saman, má mikið af þeim fræðast, ekki sízl um það, livað
beri að forðast, þegar hlynnt er að slösuðum manni.
„Heilbrigðu Lífi“ hefir borizt bók eftir Jón Oddgeir Jónsson,
fulltrúa Slysavarnafélagsins, „Hjálp í viðlögum“, 3. útg. 1943.
í bókinni er í stuttu máli drepið á helztu atriði, er varða fyrstu
hjálp, bæði hvað gera skuli og eins liitt, hvað beri að forðast. Er
fjöldi mynda til skýringa og er það vel farið, því að ein góð
mynd getur skýrt eins mikið og langur kafli lesmáls.
206
Heilbrigt líf