Skinfaxi - 01.02.2020, Blaðsíða 10
10 S K I N FA X I
„Við vorum búin að ræða málið í nokkra mánuði en urðum að lokum
að taka af skarið. Við stofnuðum deild frekar en félag. Það er praktísk-
ara því að þá gengum við inn í samninga Ungmennafélagsins,“ segir
Lee Ann Maginnis, formaður nýstofnaðrar körfuboltadeildar Ung-
mennafélagsins Hvatar á Blönduósi. Hún segir ekki hafa verið erfitt að
stofna nýja deild innan Hvatar. „Það tók smátíma en aðallega skrif-
finnsku.“
Áhugi á körfubolta jókst
Körfuboltadeildin var stofnuð nú í september eftir talsverðan undir-
búning. Aðdragandann má rekja til þess að Helgi Margeirsson, þjálf-
ari frá Körfuboltaskóla Norðurlands vestra, á Sauðárkróki, kom með
Körfuboltadeildin er með Facebook-síðuna:
www.facebook.com/karfahvot
Mæður stofnuðu
körfuboltadeild fyrir börnin
körfuboltanámskeið á Blönduós. Töluverður áhugi er á körfubolta á
Blönduósi og jókst hann við þetta. Þegar ljóst var að áhugi væri fyrir
því að halda úti reglulegum æfingum á Blönduósi setti ein móðir iðk-
anda hjá Helga sig í samband við hann síðasta haust og kannaði hvort
hann gæti haldið úti reglulegum æfingum. Hún fór í að safna styrkjum
til að greiða laun þjálfara og dugðu þeir fram að jólum. Áhuginn er enn
til staðar og nú kemur Helgi á Blönduós tvisvar í viku, að sögn Lee Ann.
Stjórn eingöngu skipuð konum
Iðkendur í körfuboltadeildinni eru 25 talsins, á aldrinum 8–16 ára.
Stjórn félagsins er eingöngu skipuð konum sem eru allar mæður barna
sem sótt hafa námskeiðin hjá Helga. Fastar æfingar eru tvisvar í viku,
síðdegis á mánudögum og þriðjudögum. Æfingar hefjast klukkan sjö
og standa til níu og byrja yngri iðkendur æfingar á undan þeim eldri.
Lee Ann segir körfuboltadeildina opna öllum börnum sem hafa
áhuga á körfuknattleik. „Við ákváðum snemma að æfingar stæðu öllum
til boða og æfingarnar eru opnar börnum í Austur- og Vestur-Húna-
vatnssýslu. Hingað koma iðkendur frá Hvammstanga og sveitinni í
kring,“ segir hún. Foreldrar skutla börnunum á æfingar en um 50 mín-
útur tekur að skjótast á Blönduós þaðan sem lengst er farið.
Iðkendur koma víða að, það eru bæði börn sem æfa aðrar íþróttir
og önnur sem æfa ekkert annað.
Margt í boði fyrir börn og unglinga
„Margt er í boði hér á Blönduósi. Innan Ungmennafélagsins Hvatar
eru það frjálsar íþróttir, fótbolti og sund og því eðlilegt að körfuboltinn
færi þar undir líka,“ segir Lee Ann. Í sveitarfélaginu geta börn og ungl-
ingar jafnframt stundað júdó, golf, hestaíþróttir, Metabolic og það
nýjasta er fimleikar. Félög í þeim greinum standa hins vegar utan
félagsins.
Sveitarfélagið býður foreldrum ekki upp á frístundastyrki fyrir börnin
sín. Í stað þess styrkir sveitarfélagið íþróttastarf í sveitarfélaginu með
myndarlegum hætti og eru æfingagjöld á Blönduósi fremur lág.
Lee Ann segir allt, sem mæðurnar hafi stefnt að, hafi gengið eftir.
Draumurinn sé að ráða þjálfara sem geti verið með æfingar á dagvinnu-
tíma. „Við höfum ekki fundið hann enn og því er aldrei að vita nema
að við mæðurnar skellum okkur sjálfar á þjálfaranámskeið,“ segir hún.
Lee Ann Maginnis mælir með því að stofna frekar
nýja deild innan ungmennafélags en að stofna nýtt
félag sem stendur utan við skipulagt starf.
Lee Ann Maginnis (t.h.) ásamt Guðrúnu Björk Elísdóttur, en þær stofn-
uðu körfuknattleiksdeild Umf. Hvatar á Blönduósi.