Skinfaxi - 01.02.2020, Blaðsíða 14
14 S K I N FA X I
Ungmennaráðstefna UMFÍ, Ungt fólk og
lýðræði, var haldin í ráðstefnu- og tón-
listarhúsinu Hörpu fimmtudaginn 17.
september sl. Til stóð að halda ráðstefnuna í
apríl 2020 en vegna Covid-19 var ákveðið að
færa hana og fresta til septembermánaðar.
Upphaflega stóð líka til að halda ráðstefnuna í
Héraðsskólanum á Laugarvatni dagana 16.−18.
september en vegna annarrar bylgju kórónu-
faraldursins var ákveðið að breyta viðburðinum
í fyrsta sinn úr þriggja daga viðburði í aðeins
einn dag. Allt var þetta gert í samráði við
helsta styrktaraðila ráðstefnunnar, Erasmus+.
Ungmennaráðstefnan hefur verið haldin
árlega frá 2009 en þetta var í fyrsta skipti sem
þurft hefur að gera breytingu á henni. Mesta
breytingin fólst í staðsetningu hennar. Frá upp-
hafi hefur verið leitast við að halda ráðstefnuna
utan höfuðborgarsvæðisins. Þegar nær dró og
samkomutakmarkanir voru hertar var ákveðið
að færa ráðstefnuna til borgarinnar og láta hana
standa yfir í aðeins einn dag. Þetta var í fyrsta
skipti sem ráðstefnan er haldin í Reykjavík.
Metfjöldi ráðamanna
Yfirskrift ungmennaráðstefnunnar þetta árið
var Lýðræðisleg áhrif, hvar, hvenær og hvernig
getur ungt fólk haft áhrif? Þátttakendur voru
ungmenni á aldrinum 15–25 ára og komu
þau víðs vegar að af landinu. Auk ungmenn-
anna sóttu tuttugu ráðherrar, þingmenn og
borgarfulltrúar ráðstefnuna. Fjöldi þeirra hef-
ur aldrei verið jafnmikill.
Þátttakendur og gestir ráðstefnunnar höfðu
líka fjölmargt til að hlakka til. Dagskráin var
fjölbreytt og innihélt hún m.a. samtal ung-
menna og ráðamanna, fyrirlestra og pallborðs-
umræður. Fyrirlesarar voru Jón Halldórsson
frá KVAN og Bergsveinn Ólafsson fyrirlesari
sem slógu báðir í gegn.
Á setninguna mættu Guðni Th. Jóhannes-
son, forseti Íslands, og Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri, og héldu þeir báðir eftirtektar-
verð ávörp. Virkan þátt í umræðuhópum tóku
þau Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra og þingmennirnir Björn
Leví Gunnarsson, Andrés Ingi Jónsson, Guð-
mundur Ingi Kristinsson, Helga Vala Helga-
dóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S.
Brjánsson og Vilhjálmur Árnason. Ásamt
þeim voru í umræðuhópunum Ketill Berg
Magnússon, mannauðsstjóri Marel, og Ragna
Sigurðardóttir borgarfulltrúi. Í pallborðs-
umræður mættu og tóku þátt Sigurður Ingi
Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra, og þingmennirnir Andrés Ingi Jóns-
son, Willum Þór Þórsson, Bryndís Haralds-
dóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir auk Sönnu
Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa.
Ungt fólk lætur í sér heyra
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði
haldin í fyrsta sinn í Reykjavík