Skinfaxi - 01.02.2020, Blaðsíða 28
28 S K I N FA X I
1 Sameiginlegir
hagsmunir
Íþróttafélög þurfa að finna sameiginlegan
flöt væntanlegra stuðningsaðila og félag-
anna. Dæmi um þetta er þegar fyrirtæki er
að hefja innreið á nýjan markað, erlent fyrir-
tæki er að koma til Íslands eða opna útibú í
nýjum bæ. Mikilvægt er að sýna forsvars-
mönnum fyrirtækja hag þeirra í að styrkja
íþróttastarf með afdráttarlausum hætti.
Þegar það gerist þarf að tryggja vöru-
merki fyrirtækisins örugga og góða
birtingu.
Dæmi um það sem forsvarsmenn
félagsins þurfa að gera
• Para saman fyrirtækið og vörur þess við
iðkendur. Taka saman upplýsingar um
fjölda iðkenda, aldur og annað sem
hjálpar markaðsfólki við að mæla
árangur og rökstyðja styrkveitingu.
• Skoða hvort iðkendur, foreldrar eða
stuðningsmenn séu markhópur fyrir-
tækisins.
• Kanna hvernig hægt sé að tryggja
að vörur fyrirtækisins séu aðgengi-
legar iðkendum eða félags-
mönnum.
2 Áhrifavaldar
félagsins
Algengt er að erlendir íþróttamenn geri geysi-
stóra auglýsingasamninga við fyrirtæki. Þetta
er fátítt á Íslandi. Björn mælir með því að
íþróttafélög finni einn eða fleiri iðkendur sem
geti myndað brú á milli fyrirtækjanna og félag-
anna, sem áhrifavaldar.
3 Samfélagsleg
ábyrgð
Forsvarsmenn íþróttafélaga þurfa að draga
fram samfélagslega kosti sína og með hvaða
hætti félög þeirra séu jákvæður hluti samfé-
lagsins. Þetta getur krafist talsverðrar vinnu
af hendi þeirra. Skoða þarf samfélagsstefnu
fyrirtækja og finna sameiginlegan flöt hvað
snýr að gildum og samfélagslegri ábyrgð.
Dæmi um nálgun íþróttafélaga:
„Við höfum það að markmiði að fjölga ung-
um stúlkum í iðkendahópi okkar og í afreks-
starfi. Við teljum það ríma vel við stefnu ykk-
ar í jafnréttis- og lýðheilsumálum og teljum
samstarf okkar geta gagnast báðum aðilum.
Við bjóðumst til að leggja til samstarfsins iðk-
endur okkar og afrekskonur í markaðsstarfi
ykkar, þjálfari okkar, sem hefur mikla þekk-
ingu á jafnréttismálum í íþróttum, mun halda
áhugaverða og hvetjandi fyrirlestra fyrir
starfsfólk ykkar og viðskiptavini og vörumerki
fyrirtækisins verður með áberandi hætti tengt
þessu tiltekna markmiði okkar. Við munum
senda ykkur og fjölmiðlum tölfræðilegar upp-
lýsingar um framgang þessa átaks okkar með
reglubundnum hætti og tekið verður fram
að um samstarfsverkefni okkar sé að ræða.“
MS ritgerð í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum
Kostun knattspyrnuliða Upplifun beggja vegna borðsins
Björn Berg Gunnarsson
Leiðbeinandi: Þórarinn Hjálmarsson Júní 2020
Þrjár tillögur Björns: