Skinfaxi - 01.02.2020, Blaðsíða 8
8 S K I N FA X I
Geggjuð fimleikasýning
landsliðsstrákanna á Akranesi
„Við höfum verið að vinna í því
að fjölga strákum í fimleikum á
Akranesi. En svo small þetta allt
saman hjá okkur. Fimleikastrákarnir
byrjuðu hringferðina sína um land-
ið hjá okkur, við opnuðum nýtt
fimleikahús strax eftir sumarið og
réðum nýjan þjálfara,“ segir Þórdís
Þöll Þráinsdóttir, yfirfimleikaþjálf-
ari ÍA á Akranesi.
Þórdís segir karlalandsliðið í
fimleikum hafa slegið í gegn á
Akranesi. Þeir hafi kveikt vel í
Skagamönnum í aðdraganda
sýningarinnar.
„Íþróttahúsið var troðfullt, ég held að um 600 manns hafi séð sýn-
inguna. Í kjölfarið vildu allir strákar fara í fimleika,“ segir hún. Hjá fim-
leikafélaginu æfðu í vor átta strákar fimleika í einum hópi. Eftir sýning-
una og eftir að nýtt fimleikahús var tekið í notkun fór félagið að blómstra.
Nú æfa um 70 strákar í þremur hópum fimleika hjá Fimleikafélagi ÍA.
Um 550 iðkendur eru skráðir alls hjá félaginu.
Þórdís segir stráka á Akranesi hafa greinilega vantað meiri hvata til
að koma í fimleika. Nú æfi fleiri greinina, nýtt fimleikahús hafi verið
tekið í notkun og búið sé að ráða Henrik Pilgaard, landsliðsþjálfara og
fyrrverandi þjálfara Stjörnunnar, sem þjálfara í fimleikum á Skaganum,
ásamt með Herði Bent. Þetta samanlagt hafi skilað sér í fjölgun iðkenda.
„Þegar ungu strákarnir sáu landsliðsstrákana langaði alla að prófa
fimleika. Við buðum þess vegna upp á fría fimleika út september og
kveiktum áhuga þeirra,“ segir Þórdís.
Fimleikastrákarnir fylltu
íþróttahúsið á Hvammstanga
„Mætingin á fimleikasýninguna
fór langt fram úr væntingum mín-
um. Þetta var virkilega skemmti-
legt. Ég hef aldrei séð eins marga
í íþróttahúsinu og þegar fimleika-
strákarnir komu með sýninguna
hingað. Ekki einu sinni þegar lið
Kormáks og KR og fleiri lið hafa
keppt hér í bikarleik í körfunni.
Þetta voru á milli 100-200 manns
og það voru ekki sæti fyrir alla,“
segir Þórey Edda Elísdóttir sem
þjálfar í fimleikum hjá Ung-
mennafélaginu Kormáki á
Hvammstanga.
Fimleikaæfingar eru einu sinni í viku á Hvammstanga og er Þórey
Edda eini þjálfarinn þar. Iðkendur eru langmest stelpur í grunnskólan-
um. Hún segir stemninguna hafa verið virkilega góða í kringum sýn-
ingu fimleikastrákanna og það hafi komið sér á óvart hversu margir
sóttu fimleikasýninguna.
„Ég var mjög ánægð með að sjá svona góða mætingu. Það eru
ekki oft viðburðir í íþróttahúsinu sem trekkja svona marga að. En strák-
arnir voru líka svo frábærir og æðislegar fyrirmyndir. Hjá okkur er tölu-
verður fjöldi iðkenda núna eða rúmlega 50 úr 1.–10. bekk grunnskólans
en heildarfjöldi grunnskólabarna á svæðinu er 162. Í ofanálag hefur
orðið töluverð fjölgun hjá drengjum. Ég gæti alveg trúað því að sýn-
ingin hafi hjálpað til við að auka áhuga barna á fimleikum,“ segir
Þórey Edda.
Heilmikla lukku vakti þegar karlalandsliðið í hópfimleikum fór í
tíu daga ferð á húsbílum um landið um mitt sumar og setti upp
glæsilegar fimleikasýningar á átta stöðum. Markmið ferðarinn-
ar var að kynna íþróttina, sérstaklega fyrir drengjum, hvetja þá til að
prófa fimleika og hafa smiðjur í tengslum við sýningarnar.
Þórey Edda Elísdóttir.Þórdís Þöll Þráinsdóttir.
Ferðin hófst á Akranesi. Þaðan var farið til Stykkishólms, Hvamms-
tanga, þá norður og síðan austur um landið.
Í aðdraganda ferðarinnar sagði Guðmundur Kári Þorgrímsson, einn
fimleikadrengjanna, í samtali við RÚV tilganginn með ferðinni að sýna
stráka í fimleikum á Íslandi og efla drengi á landsbyggðinni til að
koma og vera með.
Fimleikastrákar
slógu í gegn um
allt land í sumar
Karlalandsliðið í hópfimleikum ferðaðist um landið
í sumar. Hópurinn kom víða við og sýndi listir sínar.
Markmiðið var að fjölga strákum í fimleikum.