Mosfellingur - 09.03.2023, Side 6

Mosfellingur - 09.03.2023, Side 6
 - Fréttir úr bæjarlífinu6 Hjá Mosfellsbakaríi starfa bakarar sem hafa tileinkað sér fagleg vinnubrögð og nota einungis góð hráefni í sínar vörur. Landssamband bakarameistara stendur árlega fyrir keppni um brauð ársins og köku ársins og hlaut Mosfellsbakarí að þessu sinni bæði verðlaunin. Það var Gunnar Jökull bakaranemi hjá Mosfellsbakaríi sem sigraði í keppninni um brauð ársins, en það er kamút súdeigsbrauð og er einstaklega ljúffengt og gott. Það var svo bakarinn og kondítorneminn hjá Mosfellsbakarí Guðrún Erla Guðjóns- dóttir sem vann árlegu keppnina um köku ársins. Sem að þessu sinni var unaðsleg Doré karamellumousse með passion- kremi og mjúkum herslihnetumarengs- botni, kakan er svo hjúpuð með gullglaze og skreytt með handgerðum súkkulaði- laufum. Það var matvælaráðherra Svandís Svavarsdóttir sem tók á móti fyrstu köku ársins 2023. Landsamband bakarameistara veitir árleg verðlaun Mosfellsbakarí á bæði brauð og köku ársins gunnar jökull guðrún erla Gallup kannar árlega þjónustu sveitarfé- laga og mælir viðhorf íbúa til þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögum landsins. Könnunin hefur verið framkvæmd samfellt frá árinu 2008 og veitir yfirlit yfir þróun afstöðu íbúa til einstaka málaflokka yfir tíma og stöðu Mosfellsbæjar gagnvart öðrum sveitarfélögum. Á árinu 2022 reyndust 92% aðspurðra frekar eða mjög ánægðir með sveitarfé- lagið sem stað til að búa á og hækkaði úr 89% frá fyrra ári og er Mosfellsbær í öðru sæti á landsvísu í þessari spurningu. Mosfellsbær var á síðasta ári fyrir ofan meðaltal sveitarfé- laganna í níu spurn- ingum af tólf. Þjónusta grunnskóla og þjónusta við fatlað fólk er hins vegar undir landsmeðaltalinu sem kallar á umbótavinnu næstu miss- erin og er sú vinna hafin. Ánægja eykst með skipulagsmál Ánægja íbúa eykst milli ára í sex spurn- ingum og má þar auk ofangreindrar spurn- ingar nefna ánægju með skipulagsmál þar sem skorið hækkar um eitt stig og óánægð- um fækkar um 6%. Þar hækkar Mosfellsbær um tvö sæti milli ára í samanburði sveitar- félaganna. Það sama á við um afstöðuna til gæða umhverfisins þar sem ánægja eykst og Mosfellsbær ferðast upp töfluna. Afstaða íbúa til þjónustu við barnafjöl- skyldur stendur í stað en þar sem meðal- talseinkunn annarra sveitarfélaga lækkar þá færist Mosfellsbær upp töfluna og sama hreyfing á sér stað milli ára í afstöðunni til þjónustu leikskóla sveitarfélagsins. Þar er Mosfellsbær í fjórða sæti á landsvísu og þeir sem njóta þjónustunnar gefa sveitarfé- laginu einkunnina 4,4 á 5 punkta skala. Hástökkvarar ársins í menningarmálum Ánægja íbúa með aðstöðu til íþróttaiðkunar í Mosfellsbæ eykst milli ára og færist bærinn upp um tvö sæti á síðasta ári. Há- stökkvarar ársins eru menningarmálin og þjónusta sveitarfé- lagsins á heildina litið þar sem ánægj- an eykst og sveit- arfélagið hækkar í báðum tilvikum um fimm sæti. Verulegt tækifæri er hins vegar til umbóta þegar kemur að afstöðu íbúa til þess hvernig starfsfólk Mosfellsbæjar hefur leyst úr erind- um þeirra þar sem skorið var 3,5 árið 2021 en lækkaði í 3,4 árið 2022. Almenn vísbendingu um stöðu mála Könnun Gallup á þjónustu Mosfellsbæjar hefur verið kynnt í bæjarráði. „Það er mjög gleðilegt að bæjarfélagið hefur hækkað á milli ára þegar kemur að lykilspurningunni um þjónustu bæjarfélagsins þegar á heild- ina er litið og deilir öðru sætinu á landsvísu með nokkrum öðrum sveitarfélögum,“ segir Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri. „Mikilvægt er að hafa í huga að könnunin veitir almenna vísbendingu um stöðu mála í einstaka málaflokkum og er hluti þeirra gagna sem nýtt eru til að þróa þjónustu Mos- fellsbæjar. Það sem er gott við að fá reglulega mælingu á þjónustu bæjarins er að finna þá þætti sem þarfnast helst úrbóta.“ Viljum laga það sem þarfnast úrbóta „Því miður er það þjónusta við fatlaða einstaklinga í ár eins og undanfarin ár og þar þurfum við einfaldlega að gera betur. Málaflokkurinn fékk aukið framlag í fjár- hagsáætlun 2023 og við vonum svo sann- arlega að þeir fjármunir skili sér í ánægðari þjónustuþegum og aðstandendum. Það sama á við um málefni grunnskólans og við bindum miklar vonir við að aukin sérfræðiþjónusta í grunnskólum og vinna við innleiðingu farsældarhringsins verði til þess að styrkja þjónustuna og laga það sem þarfnast úrbóta. Mosfellsbær vinnur nú að verkefnum til að hraða vinnu við stafræna þróun sveitar- félagsins. Hluti af þeirri vinnu mun fela í sér innleiðingu stafrænna lausna til að auka skilvirkni í svörun erinda og halda utan um samskipti bæjarins við íbúa,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri. Könnunin var framkvæmd frá 12. desember 2022 til 23. janúar 2023. Heildarúrtak í könnuninni er 12.287 manns í 20 stærstu sveitarfélögum landsins. Úrtakið í Mosfellsbæ var 361 einstaklingur. Nánari upplýsingar má finna á slóðinni mos.is/gallup2022. Árleg könnun á þjónustu 20 stærstu sveitarfélaganna Mosfellsbær í öðru sæti á landsvísu Ánægð(ur) Hvorki né Óánægð(ur) 92% 6% 2% Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með Mosfellsbæ sem stað til að búa á? mosfellsbær skorar hátt í þjónustukönnun gallup

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.