Mosfellingur - 09.03.2023, Qupperneq 6
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Hjá Mosfellsbakaríi starfa bakarar sem hafa
tileinkað sér fagleg vinnubrögð og nota
einungis góð hráefni í sínar vörur.
Landssamband bakarameistara stendur
árlega fyrir keppni um brauð ársins og köku
ársins og hlaut Mosfellsbakarí að þessu
sinni bæði verðlaunin. Það var Gunnar
Jökull bakaranemi hjá Mosfellsbakaríi sem
sigraði í keppninni um brauð ársins, en það
er kamút súdeigsbrauð og er einstaklega
ljúffengt og gott.
Það var svo bakarinn og kondítorneminn
hjá Mosfellsbakarí Guðrún Erla Guðjóns-
dóttir sem vann árlegu keppnina um köku
ársins. Sem að þessu sinni var unaðsleg
Doré karamellumousse með passion-
kremi og mjúkum herslihnetumarengs-
botni, kakan er svo hjúpuð með gullglaze
og skreytt með handgerðum súkkulaði-
laufum. Það var matvælaráðherra Svandís
Svavarsdóttir sem tók á móti fyrstu köku
ársins 2023.
Landsamband bakarameistara veitir árleg verðlaun
Mosfellsbakarí á bæði
brauð og köku ársins
gunnar jökull guðrún erla
Gallup kannar árlega þjónustu sveitarfé-
laga og mælir viðhorf íbúa til þjónustu í 20
stærstu sveitarfélögum landsins.
Könnunin hefur verið framkvæmd
samfellt frá árinu 2008 og veitir yfirlit yfir
þróun afstöðu íbúa til einstaka málaflokka
yfir tíma og stöðu Mosfellsbæjar gagnvart
öðrum sveitarfélögum.
Á árinu 2022 reyndust 92%
aðspurðra frekar eða mjög
ánægðir með sveitarfé-
lagið sem stað til að
búa á og hækkaði úr
89% frá fyrra ári og er
Mosfellsbær í öðru
sæti á landsvísu í
þessari spurningu.
Mosfellsbær var á
síðasta ári fyrir ofan
meðaltal sveitarfé-
laganna í níu spurn-
ingum af tólf. Þjónusta
grunnskóla og þjónusta
við fatlað fólk er hins vegar
undir landsmeðaltalinu sem
kallar á umbótavinnu næstu miss-
erin og er sú vinna hafin.
Ánægja eykst með skipulagsmál
Ánægja íbúa eykst milli ára í sex spurn-
ingum og má þar auk ofangreindrar spurn-
ingar nefna ánægju með skipulagsmál þar
sem skorið hækkar um eitt stig og óánægð-
um fækkar um 6%. Þar hækkar Mosfellsbær
um tvö sæti milli ára í samanburði sveitar-
félaganna. Það sama á við um afstöðuna til
gæða umhverfisins þar sem ánægja eykst
og Mosfellsbær ferðast upp töfluna.
Afstaða íbúa til þjónustu við barnafjöl-
skyldur stendur í stað en þar sem meðal-
talseinkunn annarra sveitarfélaga lækkar
þá færist Mosfellsbær upp töfluna og sama
hreyfing á sér stað milli ára í afstöðunni
til þjónustu leikskóla sveitarfélagsins. Þar
er Mosfellsbær í fjórða sæti á landsvísu og
þeir sem njóta þjónustunnar gefa sveitarfé-
laginu einkunnina 4,4 á 5 punkta skala.
Hástökkvarar ársins í menningarmálum
Ánægja íbúa með aðstöðu til
íþróttaiðkunar í Mosfellsbæ
eykst milli ára og færist
bærinn upp um tvö
sæti á síðasta ári. Há-
stökkvarar ársins eru
menningarmálin og
þjónusta sveitarfé-
lagsins á heildina
litið þar sem ánægj-
an eykst og sveit-
arfélagið hækkar í
báðum tilvikum um
fimm sæti.
Verulegt tækifæri er
hins vegar til umbóta
þegar kemur að afstöðu
íbúa til þess hvernig starfsfólk
Mosfellsbæjar hefur leyst úr erind-
um þeirra þar sem skorið var 3,5 árið 2021
en lækkaði í 3,4 árið 2022.
Almenn vísbendingu um stöðu mála
Könnun Gallup á þjónustu Mosfellsbæjar
hefur verið kynnt í bæjarráði. „Það er mjög
gleðilegt að bæjarfélagið hefur hækkað á
milli ára þegar kemur að lykilspurningunni
um þjónustu bæjarfélagsins þegar á heild-
ina er litið og deilir öðru sætinu á landsvísu
með nokkrum öðrum sveitarfélögum,“ segir
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
„Mikilvægt er að hafa í huga að könnunin
veitir almenna vísbendingu um stöðu mála
í einstaka málaflokkum og er hluti þeirra
gagna sem nýtt eru til að þróa þjónustu Mos-
fellsbæjar. Það sem er gott við að fá reglulega
mælingu á þjónustu bæjarins er að finna þá
þætti sem þarfnast helst úrbóta.“
Viljum laga það sem þarfnast úrbóta
„Því miður er það þjónusta við fatlaða
einstaklinga í ár eins og undanfarin ár og
þar þurfum við einfaldlega að gera betur.
Málaflokkurinn fékk aukið framlag í fjár-
hagsáætlun 2023 og við vonum svo sann-
arlega að þeir fjármunir skili sér í ánægðari
þjónustuþegum og aðstandendum.
Það sama á við um málefni grunnskólans
og við bindum miklar vonir við að aukin
sérfræðiþjónusta í grunnskólum og vinna
við innleiðingu farsældarhringsins verði til
þess að styrkja þjónustuna og laga það sem
þarfnast úrbóta.
Mosfellsbær vinnur nú að verkefnum til
að hraða vinnu við stafræna þróun sveitar-
félagsins. Hluti af þeirri vinnu mun fela í
sér innleiðingu stafrænna lausna til að auka
skilvirkni í svörun erinda og halda utan um
samskipti bæjarins við íbúa,“ segir Regína
Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri.
Könnunin var framkvæmd frá 12.
desember 2022 til 23. janúar 2023.
Heildarúrtak í könnuninni er 12.287
manns í 20 stærstu sveitarfélögum
landsins. Úrtakið í Mosfellsbæ var 361
einstaklingur. Nánari upplýsingar má
finna á slóðinni mos.is/gallup2022.
Árleg könnun á þjónustu 20 stærstu sveitarfélaganna
Mosfellsbær í öðru
sæti á landsvísu
Ánægð(ur)
Hvorki né
Óánægð(ur)
92%
6%
2%
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú
með Mosfellsbæ sem stað til að búa á?
mosfellsbær skorar hátt
í þjónustukönnun gallup