Verzlunartíðindi - 01.12.1950, Blaðsíða 1
\ÍHZLUNAHTÍÐINDIN
ÚTGEFANDI: SAMBAND SMÁSÖLUVERZLANA
1. tbl. Reykjavík, desember 1950 1. árg.
r
BLAÐI því, er hér hefur göngu sína, er
ætlað að vera óháð málgagn frjálsrar, ís-
lenzkrar verzlunar.
Tilgangurinn með útgáfu blaðsins er í
stuttu máli þessi:
1. Vinna að afnámi hvers konar hafta
í innanríkis- og utanríkisverzlun ís-
lendinga.
2. Gefa kaupsýslumönnum kost á að
ræða áhugamál sín varðandi verzlun
og viðskipti.
3. Flytja lesendum sínum fréttir um
verzlunarmál, svo og hvert það efni
annað, sem getur orðið frjálsri, ís-
lenzkri verzlun til gagns og fram-
dráttar.
4. Síðast en ekki sízt er blaðinu, sam-
kvæmt lögum Sambands smásölu-
verzlana, ætlað að vera almennt mál-
gagn þess.
Þannig er tilgangur blaðsins aðallega tví-
þættur, annars vegar sá, að vera vettvang-
ur fyrir málefni verzlunarinnar í heild,
hins vegar og jöfnum höndum sá, að vera
málgagn þeirra, sem hafa smásöluverzlun
að aðalatvinnu, og bundizt hafa í Sambandi
smásöluverzlana samtökum um sérmál sín.
Á hvoru tveggja er hin brýnasta þörf.
Það er staðreynd, að góð og hagkvæm
verzlun er lífsskilyrði hverrar þjóðar, en
ekki sérmál þeirrar stéttar, sem verzlunar-
atvinnu stundar. Það er líka staðreynd, að
verzlunarhöft og sú skerðing á athafna-
frelsi einstaklingsins, sem þeim fylgir,
vinna gegn því að athafnalífið beinist inn
á þær brautir, sem til mestra heilla horfir
fyrir þjóðarheildina. Þegar þessa er gætt,
leyfum vér oss að vænta, að viðleitni vorri
til þess að bæta verzlunarháttu og styðja
málsvara frjálsrar verzlunar í baráttu
þeirra fyrir fullkomnu verzlunar- og at-
hafnafrelsi, verði vel tekið. Hversu mikið
vinnast kann á í þessu efni, fer m. a. eftir
því, hver stuðningur oss verður veittur af
þeim, sem oss eru sammála um markmiðið.
LANDSBOKASAFN
Jíl .‘814 60