Aldan - 17.04.2018, Page 11
olfus@olfus.is
thorlakshofn.is
Hafnarbergi 1
815 Þorlákshöfn
480 3800
Mykines, vöruflutningaskip Smyril Line Cargo siglir vikulega allan ársins
hring á milli Þorlákshafnar og Rotterdam. Flutningstíminn með Mykines er
sá stysti sem í boði er á SV-horni landsins í sjóflutningum til og frá landinu.
Þorlákshöfn er á SV-strönd landsins og er hún eina flutnings- og fiskiskipahöfnin á Suður-
landi allt austur að Hornafirði. Frá Þorlákshöfn eru góðar og greiðfærar samgöngur á landi til
allra átta, aðeins 40 km til Reykjavíkur og ekki nema 85 km í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, eftir
Suðurstrandarveginum.
Í Þorlákshöfn er mikið úrval lóða ætlaðar fyrirtækjum af ýmsum stærðum og gerðum. Fyrir
liggur skipulag á stóru iðnaðar- og þjónustusvæði við höfnina og á upplandi hafnarinnar.
Landrými er mikið og aðstæður allar góðar til uppbyggingar.
Staðsetningin er mjög heppileg út frá helstu skilyrðum sem fjárfestar setja t.d. um staðarval
fyrir iðnað og framleiðslu en er ekki síður kjörin vegna annarrar starfsemi.
ÞORLÁKSHÖFN
- framtíðarstaðsetning
fyrir þitt fyrirtæki?
Ef þetta eru kostir sem henta þínu fyrirtæki og/eða áhugi
er á að skoða málið betur þá tökum við vel á móti þér.