Austurland - 28.09.2018, Side 12
12 28. september 2018
Siglingasvið Vegagerðarinnar
annast á þessu ári framkvæmdir
við ýmsar hafnir á Austurlandi.
Þessar framkvæmdir eru auvðitað
mismunandi fjárfrekar, enda háðar
fjárlögum Alþingis, en allar stuðlar
þær vonandi að því að gera siglingar til
og frá austfirskum höfnum öruggari,
og þá ekki síst í slæmum veðrum.
- Norðfjörður. Netagerðarbryggja
kantbiti og þekka 50 m, 10 m dýpi.
Endurbygging Togarabryggju 112 m,
10 m dýpi, endurbygging kantbita
Bræðslubryggju 150 m.
- Eskifjörður. Lenging
Netagerðarbryggju kantbiti og þekja,
55 m, dýpi 10 m.
- Mjóeyrarhöfn. Fylling
Framnesbryggja 145 þúsund m3.
- Fáskrúðsfjörður. Strandabakki,
dýpkun 90 m, dýpi 10 m.
- Hornafjörður er hér talin með.
Viðhalddýpkun innan hafnar, 25.000
m3 pr. ár.
Hafnarframkvæmdir
á Austurlandi
VÍSNAÞÁTTUR – HULDA SIGURDÍS ÞRÁINSDÓTTIR
Jökuldælingurinn Ragnar Ingi
Aðalsteinsson er landskunnur
fyrir rímnalist sína og ljóðagerð,
en hann er einn systkinanna frá
Vaðbrekku. Eitthvað hefur hann verið
áttavilltur þegar hann orti þessar vísur
sem má alveg túlka sem svo að við
eigum að slaka á og njóta lífsins því
það á örugglega við okkur öll að vera
stundum á hraðferð án þess að vita
hvert eða til hvers.
Ég held samt áfram
Ég veit ekki hvenær ég hóf þessa ferð
né hvaðan var lagt af stað.
Og óljóst er fleira því ekki mig grunar
hvar aka ég muni í hlað.
Læðist um hugann ljúfsár minning
líkt og mig hafi dreymt.
Eins og í leiðslu áfram held ég,
erindið löngu gleymt.
Næsta ljóð er eftir Borgfirðinginn
Ásgrím Inga Arngrímsson og er úr bók
hans Kveðið sér ljóðs sem kom út 2016.
Þetta er að mínu mati dálítið dæmigert
fyrir hans ljóðagerð sem einkennist
gjarnan af hnyttnum orðaleikjum
og stundum rómantískri stemningu í
bland við dökkan húmor.
Kvöld
Stjörnubjartur himinninn
eins og ofskreytt jólatré
myndar baksvið norðurljósanna
sem æða áttavillt um himinhvolfið.
Það viðrar vel fyrir nornir
að rúnta á kústum sínum í kvöld.
Félagi Ásgríms Inga í ljóðafélaginu
Hása Kisa er Stefán Bogi Sveinsson,
forseti bæjarstjórnar á Fljótsdalshéraði
og margt fleira. Árið 2014 kom út
hans fyrsta ljóðabók, Brennur. Fyrsta
ljóðið í bókinni heitir Orð eru til alls
fyrst. Það er vissulega satt og rétt, en
í fáum orðum kemur höfundur til
skila á skemmtilegan hátt hvernig
ofgnótt orða getur orðið manni til
trafala þegar maður notar þau til að
byggja loftkastala sem standast ekki
reglugerðir og eru dæmdir til að
hrynja.
Orð eru til alls fyrst
Og af þeim á ég nóg
ofgnótt jafnvel
fimmhundruð milljónir
í stofuskápnum
í náttborðinu átta milljónir
í höfðinu milljarðar.
Og á öllum þessum grunni
byggi ég svo
háreista loftkastala
sem standast engar
byggingareglugerðir
Til að rétta hlut kvenna í þessum
vísnaþætti dugar ekkert minna en
heilt kvenfélag. Kvenfélagið Bláklukka
á Egilsstöðum fagnar á þessu ári
70 ára afmæli og er því vel við hæfi
að ljúka þessu með ljóði Jónbjargar
Eyjólfsdóttur sem hún orti við
fertugsafmæli félagsins en á alveg eins
vel við núna.
Bláklukkusöngur
Við kvenfélagskonur erum
að kætast á góðri stund
og Bláklukku nafnið blíða
við berum glaðar í lund.
Og rétt eins og blómin bláu
er binda við Hérað tryggð
við lífinu viljum lifa
í Lagarins fögru byggð.
Er konur með hlýjar hendur
hófu hér þetta starf
þær fundu að mjúkum málum
í mannheimi sinna þarf.
Þær sáu að saman þær gátu
sigrað hér marga þraut
þá félagið okkar fæddist
og fyrst þeirra krafta naut.
Við margt hefur félagið fengist
og framkvæmt af góðum hug,
nú fetar það fram á veginn
hinn fimmta áratug.
Við biðjum að blómgist þess hagur,
til blessunar verði þess starf
og munum er verk skal vinna
að vilji er allt sem þarf.
Með bestu kveðjum,
Hulda
Tæki til vetrarþjónustu