Læknablaðið : fylgirit - 01.03.2013, Qupperneq 2
LÆKNAblaðið 2013/99 FYLGIRIT 74 3
Læknablaðið
the iceLandic medicaL journaL
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104 – 564 4106
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir er
ábyrgðarmaður efnis í þessu fylgiriti.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Kápan: Á Snæfellsjökli (1446 m) á
góðum degi í mars 2010.
Ljósmynd Védís Skarphéðinsdóttir
Upplag 200
Prentun: Oddi ehf.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0254-1394
Ávarp
Bráðadeild er inngangur bráðveikra og slasaðra inn á Landspítala. Veikum og
slösuðum er veitt eins góð þjónusta og tök eru á. Á bráðsviði er mikil fræðsla til
sjúklinga, nema og starfsfólks og rannsóknir eru stundaðar í æ vaxandi mæli. Með
um 100.000 komum veikra og slasaðra á hverju ári, vel menntuðu starfsfólki og
umfangsmikilli rafrænni skráningu hefur bráðasvið Landspítala alla möguleika á
mikilvirkum rannsóknum sem geta fengið hljómgrunn í alþjóðlegu vísindasamfé-
lagi. Rannsóknir eru grunnurinn að góðri þjónustu við sjúklinga á bráðasviði. Þær
eru gerðar með það að markmiði að fá fram gagnreynda þekkingu á mismunandi
þáttum í starfseminni; tengdum sjúklingum og meðferðum, verkferlum, skipulagi
og öðru. Þannig fæst vitneskja um hvað er verið að gera vel og hvað má gera betur.
Bráðadagurinn er árleg uppskeruhátíð bráðasviðs, með kynningum á rann-
sóknum og verkefnum tengdum starfsemi sviðsins. Að þessu sinni var þemað
forvarnir haft að leiðarljósi og lögð sérstök áhersla á að fá til kynningar rann-
sóknarniðurstöður. Auglýst var eftir erindum innan sviðs sem utan og bárust 22
erindi sem öll voru ritrýnd af undirbúningsnefndinni og birt í ráðstefnuritinu sem
er fylgirit með Læknablaðinu. Dagskárin endurspeglar það frjóa starf sem unnið
er á bráðasviði Landspítala en einnig hina þverfaglegu aðkomu að starfsemi
sviðsins og mikilvægar tengingar þess við menntastofnanir, deildir spítalans og
aðrar sjúkrastofnanir.
Það er með stolti og ánægju sem við í undirbúningsnefndinni kynnum dagskrá
Bráðadagsins 2013. Von okkar er að ágripin skapi umræður og áhuga auk þess að
hvetja til enn frekari rannsókna sem efla starfsemi sviðsins.
Við færum öllum þeim sem sendu inn ágrip, styrktaraðilum, fundarstjórum og
starfsfólki bráðasviðs bestu þakkir fyrir framlag þeirra til Bráðadagsins 2013.
Fyrir hönd undirbúningsnefndar
Bráðadagsins 2013,
Dr. Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
verkefnastjóri, rannsóknarstofu Landspítala og
Háskóla Íslands í bráðafræðum