Læknablaðið : fylgirit - 01.03.2013, Blaðsíða 7

Læknablaðið : fylgirit - 01.03.2013, Blaðsíða 7
8 LÆKNAblaðið 2013/99 FYLGIRIT 74 B R Á Ð A D A G U R I N N 2 0 1 3 F Y L G I R I T 7 4 skyldumeðlimir, vinir, vinnufélagar og jafnvel ókunnugir geta gefið, fái viðkomandi flog. Á upphafi síðasta árs (2012) fór lyfið í fasa III klínískar prófanir, sem fer fram í 9 löndum víðs vegar um heiminn, en þessi hluti er framkvæmdur á vegum lyfjafyrirtækisins Upsher-Smith Laboratories í Bandaríkjunum. 10. Með hreinum höndum - Handhreinsunarverkefni á Landspítala Bryndís Guðjónsdóttir1, Andrea Ýr Jónsdóttir1, Hrafnhildur G. Gunnarsdóttir1, Petrína Jónsdóttir1, Ásdís Elfarsdóttir2 1Bráða- og göngudeild, 2sýkingavörnum Landspítala Inngangur: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) telur handhreins- un heilbrigðisstarfsmanna forgangsatriði til fækkunar spítalasýkingum. Handhreinsunarverkefni Landspítala „Með hreinum höndum“ byggir á verkefni WHO, Clean care is safer care. Ísland var fimmtugasta landið til að heita þátttöku í þessu alþjóðlega verkefni árið 2007. Snertismit er algengasta smitleið örvera og sú sem auðveldast er að rjúfa. Sýkingar tengdar heilbrigðisþjónustu (STH) eru alþjóðlegt vandamál. Í vest- rænum löndum má búast við að 5-10% sjúklinga fái STH með uppruna á sjúkrahúsinu en í þróunarlöndunum fer það hlutfall jafnvel yfir 25%. STH hafa ekki bara áhrif á líðan sjúklings og bata heldur er kostnaður gríðarlegur fyrir heilbrigðiskerfið. Framkvæmdastjórn ákvað að efling handhreinsunar starfsmanna yrði eitt af lykilverkefnum Landspítala starfsárið 2012-2013. Verkefnið “Með hreinum höndum“ hófst síðast- liðið haust á 5 deildum, þar á meðal G3. Verkefnið hófst formlega á G3 í janúar 2013 þegar deildarstjóri og yfirlæknir skrifuðu undir yfirlýsingu um þátttöku. Tilgangur: Bæta handhreinsun starfsmanna og rjúfa þannig smitleið örvera sem berast með snertingu handa. Rétt framkvæmd handhreinsun á réttum tíma er mikilvægur þáttur sýkingavarna og minnkar hættu á snertismiti. Aðferð: Fyrstu mælingar á fylgni við handhreinsunarleiðbeiningar fóru fram fyrir áramót 2012 áður en verkefnið var innleitt á deildinni með því að: Aðgengi að handspritti aukið, fræðsla um handhreinsun til allra heilbrigðisstarfsmanna, veggspjöld hengd upp, límmiðar settir á gólf, skráning á fylgni við handhreinsun fyrir og eftir innleiðingu (5 ára verkefni) og endurgjöf til starfsmanna. Markmið LSH er að fylgni starfs- manna við handhreinsunarleiðbeiningar verði 100%. Niðurstöður: Niðurstaða mælinga fyrir innleiðingu var 30% fylgni við handhreinsunarleiðbeiningar sem er í samræmi við erlendar niður- stöður sem sýna 30-40% fylgni fyrir innleiðingu. Ályktanir: Fylgni starfsmanna á G3 við handhreinsunarleiðbeiningar mun sennilega aukast með tímanum líkt og gerist á erlendum sjúkra- húsum þar sem þetta verkefni hefur verið innleitt. Breyta þarf menningu Landspítala en langan tíma tekur að breyta menningu stofnunar, því er verkefnið skipulagt til 5 ára. Bætt handhreinsun starfsmanna minnkar líkur á snertismiti og eykur þannig öryggi sjúklinga, en erfitt er að sýna fram á það með tölum. 11. Samantekt og samanburður á lyfjaávísunum við útskrift aldraðra einstaklinga af sjúkrahúsi yfir á hjúkunar- og dvalarheimili Auður Alexandersdóttir2, Þórunn K. Guðmundsdóttir 1, Anna I. Gunnarsdóttir 1 1Landspítali, 2lyfjafræðideild Háskóla Íslands Inngangur: Aldraðir einstaklingar á hjúkrunar- og dvalarheimilum eru oft veikari og á fleiri lyfjum en jafnaldrar þeirra sem búa heima, og eru því sérstaklega viðkvæmir fyrir óæskilegum áhrifum lyfja. Á Íslandi fá íbúar á hjúkrunar- og dvalarheimilum lyf sín yfirleitt vélskömmtuð. Við útskrift af sjúkrahúsi yfir á hjúkrunar- og dvalarheimili þurfa lyfjaupp- lýsingar að berast á milli þriggja aðila: sjúkrahúss, hjúkrunar- og dvalar- heimilis og lyfjaskömmtunarfyrirtækis, en við hvern flutning er hætta á að ósamfella myndist í umönnun. Markmið: Að athuga samræmi lyfjaávísana við útskrift aldraðra ein- staklinga af sjúkrahúsi yfir á hjúkrunar- og dvalarheimili. Aðferðir: Bornar voru saman lyfjaávísanir við útskrift af Landspítala við lyfjaávísanir á skömmtunarkortum fyrir einstaklinga 65 ára og eldri sem útskrifuðust yfir á hjúkrunar- og dvalarheimili á árinu 2011. Borin voru kennsl á misræmi í ávísun fastra lyfja. Niðurstöður: Hlutfall tilfella með >1 lyfjamisræmi var 68,2%. Meðalfjöldi lyfjamisræma var 1,9 lyf, en hvorki kyn né aldur hafði mark- tæk áhrif á meðalfjölda lyfjamisræma. Algengusta misræmið var úrfell- ing (omission). Lyf af ATC-flokkum N (tauga/geðlyf), A (meltingarfæra/ efnaskiptalyf) og C (hjarta/æðasjúkdómalyf) höfðu flest misræmi. Þau virku efni sem höfðu oftast lyfjamisræmi voru parasetamól, omeprazól, fjölvítamín, zópíklón og parasetamól/kódein. Tilfelli sem útskrifuðust af öldrunarlækningadeildum höfðu marktækt færri lyfjamisræmi en þau sem útskrifuðust af öðrum deildum (p<0,001). Allt að tvöfaldur munur var á hlutfall lyfjamisræma á milli mismunandi hjúkrunar- og dvalarheimila. Áhættumat lækna á úrtaki lyfjamisræma sýndu að um 23% misræma gætu valdið mikilli áhættu fyrir sjúklinga. Ályktanir: Niðurstöður benda til þess að misræmi sé á milli lyfjaávísana aldraðra við útskrift af sjúkrahúsi yfir á hjúkrunar- og dvalarheimili. Ekki er þó hægt að vita hve stórt hlutfall lyfjamisræma eru meðvitaðar breytingar gerðar af læknum og hve stórt hlutfall eru vegna villa. 12. Við hverju er lyfið? Þekking fólks á tilgangi lyfjameðferðar sinnar Erla Hlín Henrysdóttir2, Anna I. Gunnarsdóttir1,2, Ástráður B.Hreiðarsson1 1Landspítala, 2lyfjafræðideild Háskóla Íslands Inngangur: Ákaflega mikilvægt er að fólk sem tekur lyf hafi skilning á tilgangi meðferðarinnar ekki síst til að auka meðferðarheldni og þar af leiðandi árangur meðferðar. Við það að taka lyfjasögu sjúklinga þá hafa lyfjafræðingar á Landspítala orðið þess áskynja að sjúklingar viti ekki alltaf ástæðu lyfjameðferðinnar eða telja meðferðina vera við öðrum sjúkdómum en raunin er. Markmið: Að kanna þekkingu þátttakenda á tilgangi eigin lyfjameðferð- ar. Einnig var kannað hversu algengt væri að þátttakendur vildu hafa tilgang lyfjameðferðar skráðan á skömmtunarmiða lyfs og hvort þeir sem notuðu innöndunarlyf teldu sig hafa fengið kennslu í notkun þess. Aðferðir: Tekin voru viðtöl við 300 einstaklinga sem áttu bókaðan tíma á Innskriftarmiðstöð, Göngudeild sykursjúkra og Göngudeild lyflækn- inga á 9 vikna tímabili frá janúar til mars 2012 á Landspítala. Þekking

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.