Læknablaðið : fylgirit - 28.04.2015, Qupperneq 3

Læknablaðið : fylgirit - 28.04.2015, Qupperneq 3
LÆKNAblaðið 2015/101 FYLGIRIT 85 3 Læknablaðið the iceLandic medicaL journaL www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104 – 564 4106 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Gottfreðsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Ábyrgð efnis Vísindanefnd þingsins Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og ljósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sigdis@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Forsíðumynd Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Landspítala Upplag 200 Prentun: Prenttækni ehf. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation In- dex (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition og Scopus. The scientific contents of the Icelan- dic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci- ence Edition and Scopus. ISSN: 0254-1394 Magnús Gottfreðsson yfirlæknir vísindadeildar vísinda- og þróunarsviðs Landspítala Hvatar og latar í vísindarannsóknum Á þessu vori er uppskeruhátíð vísinda á Landspítala haldin í 15. skipti. Árið hefur verið viðburðaríkt í sögu spítalans, en þar hafa skipst á skin og skúrir. Kjaradeilur og verkföll hafa sett svip sinn á starfsemina, en jafnframt hefur verið blásið til sóknar í endurnýjun tækja og húsakosts. Vísindamenn á spítalanum hafa haldið áfram ötulu starfi sínu, kennslu og rannsóknum. Á árinu gengu í gildi ný lög um vísindarannsóknir sem marka tímamót að mati undirritaðs, þar sem markvissari nálgun verður nú beitt við umsóknir og leyfisveitingar. Nýju lögin eiga að gera rannsakendum kleift að verja auknum tíma í framkvæmd verkefnanna sjálfra og úrvinnslu á niður- stöðum. Með lögunum er einnig opnað fyrir möguleika á starfrækslu svokallaðs leitargagnagrunns fyrir fræðimenn í klínískum greinum og jafnframt er gert ráð fyrir að varðveita megi gögn sem safnað hefur verið með í sérstöku safni heilbrigðisupplýsinga, sé leyfi veitt fyrir því. Að mörgu leyti er um hliðstæðu við lífsýnasafn að ræða. Þannig verður vonandi komið í veg fyrir að mikilvægum gögnum sé eytt, sem leiðir til þess að þau eru skráð aftur síðar með mikilli fyrirhöfn ef fleiri rannsóknar- spurningar vakna. Margt fleira hefur þokast í rétta átt. Í árslok 2014 var ráðinn tölfræðingur til starfa á spítalanum, en enginn slíkur hefur verið hér um árabil. Tölfræðingurinn sinnir kennslu og ráðgjöf til rannsakenda og nú þegar hafa verið haldin námskeið í notkun tölfræðiforrita sem hafa verið fjölsótt. Þá hefur Klínískt rannsóknasetur staðið fyrir námskeiðum í góðum klínískum starfsháttum, en þekking á því sviði er forsenda þess að unnt sé að framkvæma klínískar lyfjaprófanir hér á sjúkrahúsinu. Sem fyrr stendur bókasafnið fyrir margháttaðri kennslu, meðal annars í notkun skráningarforrita fyrir tilvitnanir. Ljóst er að mikil eftirspurn er eftir allri þessari þjónustu og mikilvægt að efla hana enn frekar. Í þrengingum undanfarinna ára hafa innviðir spítalans látið á sjá eins og flestum má vera ljóst af umræðu síðustu mánaða. Þar ber hæst húsakost og nýliðun starfsfólks. Ýmislegt bendir til að framlag spítalans til rannsókna og þróunarstarfs hafi dregist of mikið saman og sé verulega undir þeim við- miðum sem tilgreind eru í vísindastefnu Landspítala og eru almennt viðurkennd hjá öðrum háskóla- sjúkrahúsum á Norðurlöndunum. Nýlegar tölur benda til að fjöldi birtra greina frá spítalanum sem skráðar eru í alþjóðlega gagna- grunninn Scopus hafi dregist saman milli ára líkt og í fyrra. Ráðast þarf í nánari greiningu á orsökum þessa og leita leiða til úrbóta. Margir hafa bent á að réttir hvatar þurfi að vera til staðar fyrir rann- sakendur svo vel takist til, það er tími, fjármagn og aðstaða til að sinna verkefninu. Ef allt þetta er af skornum skammti er hægt að tala um neikvæða hvata, eða lata, til rannsókna og vísindastarfs. Orðið lati er nýyrði sem ég vona þó að lítið þurfi að nota á þjóðarsjúkrahúsinu í framtíðinni. Mikilvægt er að skipuleggja starfið hér þannig að mikilvægi rannsókna og nýsköpunar sé viðurkennt og ráð fyrir því gert í fjármögnun starfseminnar. Við þurfum ekki að leita langt til að sækja okkur fyrirmyndir í því efni, eins og bent hefur verið á. Að öðrum kosti getur spítalinn misst aðdráttarafl sitt fyrir ungt og velmenntað fólk. Höfum hugfast að hagsmunir góðrar klínískrar þjónustu, vísindarannsókna og nýliðunar starfsfólks fara saman.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.