Læknablaðið : fylgirit - 28.04.2015, Síða 4

Læknablaðið : fylgirit - 28.04.2015, Síða 4
Vísindi á vordögum Á hverju vori eru haldnir vísindadagar á Landspítala, Vísindi á vordögum, þar sem vísindaniðurstöður eru kynntar fyrir starfsfólki spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru veitt verðlaun til vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítala og kynntir Heiðursvísindamaður ársins og Ungur vísindamaður ársins. Þá er opnuð Vimeo-rás á heimasíðu Landspítala með 54 örfyrirlestra um vísindaleg verkefni starfsmanna spítalans. Vísindasjóður Landspítala er rannsóknarsjóður, sem árlega veitir rúm- lega 80 milljónum króna í rannsóknarstyrki til starfsmanna spítalans. Vísindasjóður var formlega stofnaður á árinu 2000 við sameiningu vísindasjóða Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur og voru fyrstu styrkveitingar úr sjóðnum á árinu 2002. Stjórn Vísindasjóðs ákveður hverjir fá styrki úr sjóðnum, með hliðsjón af umsögnum frá Vísindaráði Landspítala. Á árinu 2014 voru á árinu veittir 122 styrkir, samtals 84 milljónir króna, við fjórar úthlutanir: Nýsköpunarstyrkir voru veittir í ársbyrjun, 2 styrkir, samtals 6 milljónir króna. Vorstyrkir Vísindasjóðs: Á vísindadögum voru veittir 106 vísindastyrkir. Samtals 53 millj.kr. Hvatningarstyrkir til sterkra rannsóknahópa sem þegar höfðu öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Þrír styrkir voru veittir 2. desember, sam- tals 15 milljónir kr. Styrkir til ungra vísindamanna: 18. desember voru veittir 10 styrkir til ungra starfsmanna sem stunda klínískar rannsóknir, samtals 10 milljónir króna. Stjórn Vísindasjóðs Landspítala Páll Matthíasson forstjóri og formaður Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga Rúnar Bjarni Jóhannsson deildarstjóri reikningshalds Vísindaráð er framkvæmdastjórn til ráðgjafar um vísindastefnu og vísindastarf á sjúkrahúsinu. Vísindaráð er vísinda- og þróunarsviði Landspítala til ráðgjafar um þau verkefni þess sem snúa að háskóla- og vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda. Vísindaráð á aðild að út- hlutun styrkja úr Vísindasjóði Landspítala samkvæmt reglum sjóðsins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir. Þá er Vísindaráð til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á spítalanum. Vísindaráð er skipað 10 manns til fjögurra ára í senn. Verkefnastjóri Vísindaráðs er Sigríður Sigurðardóttir, vísinda- og þró- unarsviði. Vísindaráð: Gísli H. Sigurðsson læknir (formaður), tilnefndur af læknaráði Landspítala Guðrún Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur (varaformaður), tilnefnd af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands Arnar Geirsson læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands Helga Gottfreðsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala Jón Friðrik Sigurðsson sálfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala Jóna Freysdóttir náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala Sigurður Yngvi Kristjánsson læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands Þorvarður Jón Löve læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala Þórarinn Guðjónsson náttúrufræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala Varamenn: Anna Margrét Halldórsdóttir læknir, tilnefnd af læknadeild Háskóla Íslands Auðna Ágústsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala Bertrand Lauth læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands Herdís Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands Inga Reynisdóttir náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir læknir, tilnefnd af læknaráði Landspítala Ingibjörg Gunnarsdóttir næringarfræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala Jón Jóhannes Jónsson læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala Paolo Gargiulo verkfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala Þóra Jenný Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala 4 LÆKNAblaðið 2015/101 FYLGIRIT 85

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.