Læknablaðið : fylgirit - 28.04.2015, Blaðsíða 4
Vísindi á vordögum
Á hverju vori eru haldnir vísindadagar á Landspítala, Vísindi á
vordögum, þar sem vísindaniðurstöður eru kynntar fyrir starfsfólki
spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru veitt verðlaun til
vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítala og kynntir
Heiðursvísindamaður ársins og Ungur vísindamaður ársins. Þá er
opnuð Vimeo-rás á heimasíðu Landspítala með 54 örfyrirlestra um
vísindaleg verkefni starfsmanna spítalans.
Vísindasjóður Landspítala er rannsóknarsjóður, sem árlega veitir rúm-
lega 80 milljónum króna í rannsóknarstyrki til starfsmanna spítalans.
Vísindasjóður var formlega stofnaður á árinu 2000 við sameiningu
vísindasjóða Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur og voru fyrstu
styrkveitingar úr sjóðnum á árinu 2002. Stjórn Vísindasjóðs ákveður
hverjir fá styrki úr sjóðnum, með hliðsjón af umsögnum frá Vísindaráði
Landspítala. Á árinu 2014 voru á árinu veittir 122 styrkir, samtals 84
milljónir króna, við fjórar úthlutanir: Nýsköpunarstyrkir voru veittir í
ársbyrjun, 2 styrkir, samtals 6 milljónir króna. Vorstyrkir Vísindasjóðs:
Á vísindadögum voru veittir 106 vísindastyrkir. Samtals 53 millj.kr.
Hvatningarstyrkir til sterkra rannsóknahópa sem þegar höfðu öðlast
alþjóðlega viðurkenningu. Þrír styrkir voru veittir 2. desember, sam-
tals 15 milljónir kr. Styrkir til ungra vísindamanna: 18. desember voru
veittir 10 styrkir til ungra starfsmanna sem stunda klínískar rannsóknir,
samtals 10 milljónir króna.
Stjórn Vísindasjóðs Landspítala
Páll Matthíasson forstjóri og formaður
Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor
Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar
Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga
Rúnar Bjarni Jóhannsson deildarstjóri reikningshalds
Vísindaráð er framkvæmdastjórn til ráðgjafar um vísindastefnu og
vísindastarf á sjúkrahúsinu. Vísindaráð er vísinda- og þróunarsviði
Landspítala til ráðgjafar um þau verkefni þess sem snúa að háskóla- og
vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda. Vísindaráð á aðild að út-
hlutun styrkja úr Vísindasjóði Landspítala samkvæmt reglum sjóðsins,
og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir. Þá er
Vísindaráð til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf
á spítalanum. Vísindaráð er skipað 10 manns til fjögurra ára í senn.
Verkefnastjóri Vísindaráðs er Sigríður Sigurðardóttir, vísinda- og þró-
unarsviði.
Vísindaráð:
Gísli H. Sigurðsson
læknir (formaður), tilnefndur af læknaráði Landspítala
Guðrún Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræðingur (varaformaður),
tilnefnd af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Arnar Geirsson
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
Helga Gottfreðsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
Ingibjörg Hjaltadóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
Jón Friðrik Sigurðsson
sálfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala
Jóna Freysdóttir
náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala
Sigurður Yngvi Kristjánsson
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
Þorvarður Jón Löve
læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala
Þórarinn Guðjónsson
náttúrufræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala
Varamenn:
Anna Margrét Halldórsdóttir
læknir, tilnefnd af læknadeild Háskóla Íslands
Auðna Ágústsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
Bertrand Lauth
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
Herdís Sveinsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af
hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Inga Reynisdóttir
náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
læknir, tilnefnd af læknaráði Landspítala
Ingibjörg Gunnarsdóttir
næringarfræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala
Jón Jóhannes Jónsson
læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala
Paolo Gargiulo
verkfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala
Þóra Jenný Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
4 LÆKNAblaðið 2015/101 FYLGIRIT 85