Læknablaðið : fylgirit - 28.04.2015, Síða 25

Læknablaðið : fylgirit - 28.04.2015, Síða 25
V í s i n d i á V o r d ö g u m F Y L g i r i T 8 5 LÆKNAblaðið 2015/101 FYLGIRIT 85 25 53 Púlsmótunarhugbúnaður fyrir fingurendurhæfi Skúli Þór Jónasson1,2, Þórður Helgason1,2 1Heilbrigðistæknisetri Landspítala og HR, 2FiRe ehf skulij11@ru.is Inngangur: Verkefnið Fingurendurhæfir er hönnun taugastoðtækis til raförvunar fingurvöðva einstaklinga með mænuskaða við 5-7 hálslið (þverlamanir). Meginmarkmið verkefnisins er að notandi geti einn og óstuddur notað búnaðinn sér til hagsbóta. Liður í verkefninu er að þróa og hanna hugbúnað sem stýrir straumstyrk um einstök rafskaut í raf- skautafylkjum. Markmið: Að hanna og þróa vél- og hugbúnað fyrir útgangsstig raförva til að stýra rafpúlsum um rafskautafylki. Stýra á púlsbreidd, útslagi og tíðni raförvunarpúlsanna. Aðferðir: Einfalt púlsmótunarforrit var skrifað og prófað fyrir frumgerð af litlu örgjörvabretti sem hefur tengimöguleika við allt að 16 rafskaut, þ.e. eitt fylki. Forritið framkallar tvífasa púlsaraðir þ.a. hver púlsaröð samanstendur bæði af raförvunarpúlsi og andstæðum afhleðslupúlsi til að hleðslujafnvægi haldist við raförvunina. Notandinn getur með einföldum skipunum stýrt breidd púlsanna (í µs eða ms) og sömuleiðis útslagi og tíðni. Fyrir prófanir á púlsaröð var smágerð útgangsrás fyrir eitt rafskautapar hönnuð og smíðuð. Niðurstöður: Fram er komið forrit sem gerir notandanum kleift að fram- kalla púlsaraðir fyrir nokkur rafskaut samtímis og einnig eitt og sér. Forritið getur kveikt á allt að 4 rafskautum samtímis Þá er einnig komið fram útgangsstig fyrir raförva til að stýra straum á hverju rafskauti í fylki. Prófanir á útgangsrásinni sýnir eðlilega virkni púlsaraðanna og þar með bæði vél- og hugbúnaðar. Ályktun: Púlsmótunarforritið er komið fram og virkni þess er eins og lagt var upp með. Næstu skref eru að laga tæknileg útfærsluatriði og fjölga rafskautum sem kveikja má á samtímis. Forritið og útgangsrásin eru stór þáttur í gerð hugbúnaðarins fyrir fingurendurhæfinn og þar með í að bæta líf mænuskaddaðra einstaklinga. 54 Þróun mælibúnaðar til að meta hljóðsrafhrifmerki sem getur fylgst með raförvun aftaugaðra vöðva Kristín Inga Gunnlaugsdóttir1,2,3, Þórður Helgason1,2 1Vísindadeild Landspítala, 2Háskólanum í Reykjavík,3Háskólanum í Lübeck kristin.gunnlaugsdottir@gmail.com Inngangur: Raförvun er notuð til að örva aftaugaða vöðva, bæði til að styrkja þá og stækka. Það er erfitt að fylgjast með áhrifum raförvunar- innar, hvort að allur vöðvinn sé örvaður eða einungis að hluta til. Okkar kenning er sú að með því að nota hljóðrafhrif, sé hægt að fylgjast með raförvun aftaugaðra vöðva án íhlutunar í rauntíma. Úthljóðsbylgja er send inn í vöðvann, og breytir hún leiðni hans staðbundið. Ef raf- straumur er fyrir, mælist breyting á spennu, sem samsvarar hljóðraf- hrifunum. Hrifin ættu að vera auðþekkjanleg, þar sem þau eru á hærri tíðni en aðrar tíðnir líkamans. Með hljóðrafhrifum ætti að vera hægt að kortleggja straumdreifinguna, svokölluð úthljóðsstraumlindarmynd- gerð. Meginmarkmið verkefnisins er að setja upp og prófa mæliaðstöðu til að mæla hljóðrafhrif. Efniviður og aðferðir: Mæliaðstaða fyrir mælingar á hljóðrafhrifum var þróuð. Úthljóðsgjafi sendir bylgju í saltlausn, sem er ætlað að líkja eftir innra umhverfi líkamans. Þar til gerður nemi var smíðaður sem myndar einsleitt rafsvið og nemur spennuna sem myndast. Búnaðurinn var betr- umbættur, m.a. með Faraday búri til að koma í veg fyrir rafsegultrufl- anir. Auk þess var magnari með síu og litlu suði útbúinn, því merkið er afar veikt. Enn fremur var færslubúnaður og sérstakt gataspjald útfærð, sem leyfðu staðsetningu straum- og mæliskauta með mikilli nákvæmni. Mælibúnaður var prófaður og úthljóðs- og straumsvið mæld. Niðurstöður: Mæliniðurstöður sýna að mælitækin virka sem skyldi. Enn fremur samsvara úthljóðs- og straumsviðin líkönum sem gerð hafa verið. Ályktun: Niðurstöður gefa til kynna að þessi mæliaðstaða uppfyllir kröfur til að mæla hljóðrafhrif.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.