Íslensk bókatíðindi - 01.12.1979, Qupperneq 3
Þetta er án efa ein þjóðlegasta bókin
í ár. Þeir fjársjóðir, sem Gísli lét eftir
sig, verða skemmtiefni margra kyn-
slóða, rannsóknarefni margra alda.
Sextán nýir þættir um mæður, skráðir
af börnum þeirra. í öllum þrem bind-
unum eru samtals 46 þættir um hús-
freyjur, jafnt úr sveit sem bæ og frá
víðum starfsvettvangi. — Óskabók
allra kvenna.
„Loksins bók, byggð á nútímarann-
sóknaraðferðum, sem fjallar um dauð-
ann og það að deyja". — Hvað vitum
við um dauðann? — Hver eru tengsl
líkama og sálar? — Hvað sér fólk á
dauðastundinni? — Þessum áleitnu
spurningum og ótal mörgum spurning-
um öðrum svarar bókin og hún á líka
svar við grundvallarspurningunni: Er
líf eftir þetta líf?
Tvímælalaust ein merkasta ævisaga
síðari tíma og efalítið ein mesta sjó-
mannabók, sem gefin hefur út á Is-
landi. Samfelld saga togaraútgerðar
frá fyrstu tíð.
Stórskemmtileg minningabók, létt og
leikandi frásögn af viðburðarríkri ævi
manns sem jafn opnum huga skynjar
hughrif gamalla granna sem bernsku-
brek æskufélaganna og stórpólitíska
atburði samtíðarinnar.
FRASAGNIR AF OULRÆNNI REYNSLU UNU
GUOMUNDSDÓTTUR i SJÓtYST fGAROI
SKUGGSJA
Frásagnir af Unu Guðmundsdóttur í
Sjólyst í Garði, fágætri konu, sem búin
var flestum þeim kostum sem mönn-
um eru bestir gefnir. Una var mörgum
kunn fyrir lífsviðhorf sitt og dulargáf-
ur og hið mikilvæga hjálparstarf, sem
af þessum eiginleikum leiddi og hún
af fórnfýsi vann.
SKUGGSJÁ
Mikilfenglegt ágrip ættarsagna Hergils-
eyinga, þar sem veruleikinn er stund-
um meiri harmleikur en mannshugurinn
fær upphugsað. Sú þjóðlífsmynd, sem
hér er dregin upp, má aldrei mást út
né falla í gleymsku.
Fjallað er á skemmtilegan hátt um líf
og störf heimskunnra vísindamanna,
sem með afrekum sínum ruddu braut-
ina að stórstígum framförum lyfja- og
læknisfræði og bægðu þannig hungri,
sjúkdómum og fátækt frá dyrum fjöld-
ans
Þetta er heildarútgáfa á Ijóðum skálds-
ins og hefur að geyma Kvæði úr Kvæð-
um og sögum, Hafblik, Hrannir, Voga,
Hvamma og Pétur Gaut, auk ýmissa
kvæða, sem ekki voru í frumútgáfum
skáldsins. Hér er einnig að finna hina
merku formála Sigurðar Nordals og
Guðmundar Finnbogasonar, sem birt-
ust með fyrri útgáfum, auk gagn-
merks formála Kristjáns Karlssonar,
sem annast hefur um þessa útgáfu
Ijóðanna.