Vestfirðir - 14.02.2019, Side 10
10 14. febrúar 2019
i-t.isOpið virka daga frá 9 til 18
laugardaga 11 - 14
Ármúla 31 - Sími 588 7332
Walk-in N
Öryggi og vellíðan
Stilhrein sturta.
Sturtubotn fáanlegur í
mörgun stærðum og litum.
Sturtuveggur með væng,
8mm hert öryggisgler.
F. 17. nóvember 1896
Bakka Hjarðar dal Dýra-
firði. D. 1. septem ber 1981.
Önd vegis verk: Brjóst myndir af
Syg tryggi Gunn laugs syni og
Einari Bene dikts syni, Seyð-
tún í búðar hús með vinnu stofu í Hvera-
gerði.
Saga Dýr firðingsins Kristins Péturs-
sonar er eins og ein af sögum Charles
Dic kens þar sem hinir fá tæku ná
ekki bara að lifa heldur og brjóstast
til mennta og frama. Allt þetta á við
Kristinn þó árin hafi fennt allt of mikið
yfir hans merku lista verk. Hann var án
efa einn af á hrifa mestu lista mönnum
síðustu aldar, á vallt leitandi og rann-
sakandi í list sinni.
Kvalist upp
Eins og ein hver Ó liver Twist er
Kristinn orðinn munaðar laus 6 ára
snáði. Er þá komið í fóstur á Næfra-
nesi og má sann lega segja að þar hafi
hann kvalist upp frekar en alist. Til að
bæta á harminn hófst hrina veikinda
fyrst kirtla veiki þar á eftir berklar sem
hann fékk í bakið og varð bak veikur
upp frá því. Huggun sína sótti hann í
bækur sem hann hafði frjáls af not af
hjá góðum ná granna nefni lega Sig hvati
Gríms syni á Höfða. Gott ef Hvati hafi
ekki einnig átt þátt í því að koma pilti
í skóla hjá Sig tryggi Gunn laugs syni á
Núpi 1914. Seinna átti Kristinn eftir að
gera brjóst mynd af læri meistaranum
á Núpi sem nem endur færðu skóla-
manninum á 70 ára af mæli hans.
Þrátt fyrir allt mót lætið og fá-
tæktina brýst hann á fram til mennta
og út skrifast úr Kennara skólanum í
borginni árið 1919. En listin var farin
að brjótast í honum og loks skráir hann
sig í teikni tíma hjá hinum vest firska
Guð mundi Thor steins syni, Muggi, og
eftir það hjá Þór arni B. Þor láks syni.
Listin hafði tekið yfir og hann sil gdi
til Noregs til frekari mynd mennta.
Stúderaði m.a. við Listakademíuna í
Osló og eftir það bæði í Kaup manna-
höfn og París. Það er sannað að fátt
skipti ungan lista mann meira en að
sjá sem mest af list og það alls konar
list. Næstu árin ferðast Kristinn víða
til að nema og sjá heims listina. Hann
var eins og sinn fyrsti kennari, Muggur,
leitandi í listinni og margt heillaði, þeir
voru báðir útum allt og leitandi alla tíð.
Fyrst var það högg myndin, svo greip
mál verkið hann og þaðan lá leiðin í
flest form mynd listarinnar.
Seyð tún
Árið 1933 er Kristinn al kominn til
Ís lands upp fullur af hug myndum og
lætur nú sann lega verkin tala eða öllu
heldur sjást. Heldur fjölda sýninga
bæði í Reykja vík og víðar m.a. á Ísa-
firði 1938. Sýndi í húsi Kaup fé lags Ís-
firðinga og víst var þar margt að sjá. Má
þar nefna einar 60 raderingar sóttar í
hinn gjöfula goð- og þjóð sagna heim.
Raderingu eða svart list, hafði Kristinn
numið sér stak lega í Svart lista skóla í
Vínar borg. Blaðið Vestur land fjallar
vel um sýninguna og hvetur sveitunga
sína til að ekki bara sjá verk þessa unga
Vest firðings heldur og kaupa enda séu
þau ekki dýr.
Á þessum tíma var svart listin,
grafíkin, lítt kunn hér á landi og átti
Kristinn sann lega þátt í að kynna
þetta skemmti lega mynd mál fyrir
landanum. Vann hann fjöl margar
grafík myndir bæði af verð búðum
sem gömlum byggingum, torf æjum
og kirkjum landsins. Kristinn fór þó
mun víðar í mynd stílum og formum
málaði sem teiknaði en strax árið 1937
er farið að tala um að hann fari sínar
eigin leiðir í listinni. Högg myndir
gerði hann margar nægir þar að nefna
brjóst líkön af Sveini for seta Björn syni
og af skáldunum Einari Ber ne dikts-
syni og Davíð Stefáns syni. Af öðrum
kunnum högg myndum Kristins má
nefna verkin Madonna í ís lenskum
skaut búning og Sláttu maður.
Árið 1940 flytur hann í þá lista-
manna bæinn Hvera gerði. Vel má
gerast svo stór tækur og segja að þarna
hafi verið sann kölluð lista mann ný-
lenda hvar bjuggu m.a. Rík harður
Jóns son, Krist mann Guð munds son
og Jóhannes úr Kötlum svo að eins
nokkir séu nefndir. Í þessum blóm-
lega bæ reisti Kristinn sér í búðar hús
með vinnu stofu og nefndi Seyð tún.
Árið 1954 heldur hann þar veg lega list-
sýningu sem er jafn framt hans síðasta.
Eftir það má segja að lista maðurinn
hafi lokað sig frá um heiminum en
þó haldið á fram að þróa sig í listinni.
Hafði hann glímt við heilsu leysi alla
tíð og hefur það lík lega haft eitt hvað
að segja. Kristinn var líka einn af þeim
lista mönnum sem vildi að verkin
sýndu lista manninn frekar en vera í ei-
lífri sí bylju að gorta sig af eigin á gæti
í fjöl miðlum. Stundum virðist það vera
aðal málið að vera í enda lausum gort-
tölum og ef ekki þá kunna á exel til að
geta fram fleytt sér af listinni.
Kristinn sat þó eigi að gerða laus því
þegar hann andaðist tæpum þremur
ára tugum síðar arfl eiddi hann Lista-
safn al þýðu af verkum sínum sem voru
1367 talsins. Listin átti hug hans allan
allt til enda. Hann ritaði sögu sína og
list hug leiðingar í einum þremur veg-
legum hand ritum sem hefur því miður
aldrei komið út. Húsið Seyð tún var
einnig í stöðugri þróun og ó hætt er að
segja að sé hans mesta verk eða eins-
og hann sagði sjálfur: „Senni lega er ég
og vinnu stofa mín næstum orðið eitt
í vissum skilningi, ég get ekki hugsað
mér að vinna list annars staðar.“
Elfar Logi Hannes son
Aðal heimild:
Sér vitringurinn í Seyð túni.
Morgun blaðið 29. maí 2015
Vestfirskir listamenn
Kristinn Pétursson
„Árið 1933
er Kristinn
alkominn til
Íslands uppfullur
af hugmyndum og
lætur nú sannlega
verkin tala eða öllu
heldur sjást. Heldur
fjölda sýninga bæði
í Reykjavík og víðar
m.a. á Ísafirði 1938.