Vestfirðir - 17.01.2019, Qupperneq 12

Vestfirðir - 17.01.2019, Qupperneq 12
12 17. janúar 2019 AB VARAHLUTIR – UMBOÐ EGILSSTÖÐUM Vestfirskir listamenn Ari Maurus F. 30. maí 1860 Ísafirði. D. Júní 1927 í Kaupmannahöfn. Öndvegisverk: Söng við óperuhús í þýskalandi og víðar. „Einasti Íslendingur sem náð hefur fullkomnun í sönglist“ svo glæsta umsögn gaf blaðið Þjóðólfur árið 1901 um söng hins íslenska óperusöngvara Ara Maurus Johnsen í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík. Blaðið bætti um betur og sagði að söngur hans væri „að meiri list en menn eiga hér að venjast.“ Annað blað hafði þetta að segja „þóttust menn þá varla hafa heyrt fegurri söng.“ Rétt er að geta þess að söngskemmtun þessi var haldin til að safna fé fyrir minnisvarða um Hraundrangaskáldið Jónas Hallgrímsson. En hvað með þennan lofaða söngvara hann Ara vestfirska? Jú, hann er sagður vera fyrsti íslenski óperusöngvarinn. Ferill hans var sannlega ótrúlega glæstur og það víða um Evrópu. Þessi áðurnefnda söngskemmtan í Góðtemplarahúsi borgarinnar var hins vegar hans eini söngur opinberlega hér á landi. Ari var sannlega stjarna óperusenunnar og þá sérílagi í þýskalandi hvar hann söng við fjölmörg óperuhús ekki nóg með það heldur söng hann einnig fyrir hirðfólk Evrópu keisara sem drottningar. Ísafjarðarpolli verður hirðsöngari Sonur ungra kaupmannshjóna í Neðstakaupstað Ísafirði þeirra Daníels Arasonar Johnsen og Önnu Guðrúnar Duus. Dóttur áttu þau einnig og nefndu Ástu. Kaupmaðurinn ungi þótti efnilegur enda átti hann sér stóra drauma og þá þurfti að sigla. Hjónin fara á endanum til Kaupmannahafnar og koma börnunum í fóstur til afa og ömmu í Hafnarfirði. Um 1870 fá Ari og Ásta einnig að koma til þá borg draumanna í Danaveldi. Bæði bjuggu þau erlendis eftir það. Ásta andaðist 1923 í Kaupmannahöfn. Ara var strax komið til menntunar í verslunarfræðum og greinlegt að vilji foreldranna var að hann gengi í fótspor föðursins. En annað kom á daginn. Hann átti reyndar eftir að efnast vel en það var vegna verslunar heldur sönglistar. Víst var listin í ættinni og það sagt í báðum hans leggjum og þá sérílagi sönglistin. Meðfram verslunarnáminu stundaði Ari einnig söngnám í Kaupmannahöfn. Það var svo söngurinn sem varð ofan á því þegar Ari er um tvítugt tekur hann stóra skrefið og siglir til þýskalands ganggert til að stúdera óperusöng. Var hann nemi hjá Iffert nokkrum, sem líklega hefur verið August Iffert, þá frægur barítonsöngvari þar í landi. Ari var einmitt barítón og að söngnámi loknu hófst söngferill hans við helstu óperuhús þýskalands. Í Berlín, Wimar, Dresden, Hamborg og Leipzig. Eigi er þó allt upp talið því Ari söng einnig við Vínaróperuna og í Covent garðinum í London. Lék hann hvert stórhlutverk óperubókmenntanna á fætur öðru má þar nefna hlutverk Wolfraus í Tannhauser eftir Richard Wagner. Hirðin dýrkaði hann og dáði hvort heldur það voru drottningar, prinsar eða keisarar. Bæði Vilhjálmur þýskalandskeisari og kona hans Ágústa drottning sem og Viktoría Bretadrottning pöntuðu hann sérstaklega til að syngja fyrir sig og hirð sína. Ari var einnig fenginn til að syngja á minningartónleikum um Albert prins sem haldnir voru í Albert­ Hall í London. Fékk hann þá ríkulega greitt fyrir og það í hollenskum gulldúkötum. Ari efnaðist óhemjuvel og má því segja að viðskiptanámið forðum hafi komið að góðum notum. Sagt er að hann hafi verið á hátindi ferils síns árið 1908. Skömmu síðar eða um 1910 hættir hann að syngja opinberlega og hefst þá annar farsæll ferill og nú sem söngkennari. Stórsöngvari verður stórkennari Ferill óperusöngvara er yfirleitt ekki langur í tilfelli Ara spannaði hann þó nærri þrjá áratugi. Margur söngvarinn hefur eftir að söngferli líkur nýjan feril að kenna söng. Það var einmitt það sem Ari gerði og var vel látið af honum í því starfi. Hann auglýsti meira að segja á Íslandi og bauðst til að kenna löndum sínun. Nokkrir þáðu þetta magnaða tilboð má þar nefna Sigurð Skagfield sem síðar átti eftir að gjöra það gott sem óperusöngvari. Ari hafði talsverða vikt ef svo má að orði komast í óperuheiminum enda var söngferill hans farsæll. Á hann var því hlustað og fylgst með hans nemendum. Sumir nemenda hans fengu uppáskrifað meðmælendabréf frá Ara stórsöngvara sem jafnan fleytti þeim inní nánast hvaða óperuhús sem var. Nemendur bera honum og vel söguna. Kristinn Hallsson, söngvari, hafði það eftir nemendum Ara að „þeir áttu ekki nógu hástemd lýsingarorð til þess að hrósa Ara.“ Hið örlagaríka ár 1918 gjörðist margt og þá sérílagi hjá okkar Ara. Víst fögnuðu margir stríðslokum styrjaldarinnar en henni fylgdi einnig gífurlegt verðhrun. Þá misstu margir allt sitt og þar á meðal Ari. Nánast á einni nóttu hvarf allur sá auður sem hann hafði halað inn á sínum glæsta óperuferli. Hann hélt þó ótrauður áfram kennslu sem og verðbréfa viðskiptum. Eftir að hafa dvalið í rúma þrjá áratugi í þýskalandi flutti hann aftur til Kaupmannahafnar. Hélt þar áfram söngkennslu og tók lífinu með ró það sem eftir var. Ari andaðist árið 1927 og var jarðsettur í Kaupmannahöfn 17. júní. Elfar Logi Hannesson Aðalheimild: Ása Hjördís Þórðardóttir. Fyrsti íslenski óperusöngvarinn. Ársrit sögufélags Ísfirðinga, 1984.

x

Vestfirðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.