Vestfirðir - 04.10.2018, Blaðsíða 2
2 4. október 2018
FLOTT FÖT,
FYRIR FLOTTAR KONUR
Skeifunni 8 - 108 Reykjavík - Sími 5176560
www.belladonna.is
Tabula gratulatoria
Jón Baldvin Hannibalsson áttræður
Þann 21. febrúar 2019 verður hinn aldni leiðtogi íslenskra jafnaðar-
manna, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi fjármála- og utanríkis-
ráðherra, áttræður. Af því tilefni verður gefin út bók eftir Jón Baldvin
þar sem hann mun einkum fjalla um frumkvæði Íslands að stuðningi
við sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsþjóða, samningana við ESB um Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES) og Norræna módelið sem raunhæfan
valkost við auðræði nýfrjálshyggjunnar.
Velunnurum Jóns Baldvins gefst nú kostur á að skrá nafn sitt á heilla-
óskaskrá í tilefni þessara tímamóta og að fá bókina á forlagsverði, eða
á kr. 6.000 með sendingarkostnaði. Hægt er að panta verkið hjá út-
gefandanum á netfanginu skrudda@skrudda.is eða í síma 552 8866.
Bókin verður send í byrjun febrúar 2019.
Til að panta bókina og fá nafn sitt jafnframt á heillaóskaskrána þarf
að senda inn nafn, kennitölu og heimilisfang. Sé óskað eftir að greiða
verkið með greiðslukorti þarf að senda kortanúmer og gildistíma, ann-
ars verður stofnuð krafa í heimabanka. Nánari upplýsingar fást hjá
forlaginu.
SKRUDDA
Hamarshöfða 1
110 Reykjavík
skrudda@skrudda.is
Umhverfisráðherra hefur
framlengt um fimm ár
skipun Ásdísar Hlakkar
Theodórsdóttur í embætti forstjóra
Skipulagsstofnunar ríkisins. Fimm
ára ráðningartími hennar rann út
í lok júlí í sumar og nýtt ráningar-
tímabil hóafst 1. ágúst. Starfið var
ekki auglýst. Umhverfisráðuneytið
hefur ekki greint frá skipuninni en
upplýsingafulltrúi ráðuneytisins
staðfesti ráðninguna í svari við fyr-
irspurn blaðsins Vestfirðir.
Jón Jónsson, þjóðfræðingur hef-
ur verið ráðinn verkefnisstjóri
rannsóknarseturs Háskóla Ís-
lands á Ströndum, Þjóðfræðistofu.
Þrjár umsóknir bárust um starfið en
tvær voru dregnar til baka.
Jón er með meistarapróf í þjóðfræði
frá Háskóla Íslands. Áður en hann kom
til starfa við rannsóknasetrið starfaði
hann sem menningarfulltrúi Vestfjarða
í tæpan áratug. Þar áður rak Jón rekið
eigið fyrirtæki á sviði miðlunar sögu og
þjóðfræða. Jón hefur stundið margvís-
legar rannsóknir í þjóðfræði.
Jón hefur gegnt tímabundnu starfi
við rannsóknasetrið síðustu tvö árin
eða frá því að setrinu var komið á fót
haustið 2016. Sæunn Stefánsdóttir, for-
stöðumaður Stofnunar rannsóknasetra
Háskóla Ísland, segir að með ráðn-
ingunni sé starfið orðið ótímabundið
og þannig mikilvægt skref tekið til að
festa starfsemi Rannsóknaseturs HÍ á
Ströndum – Þjóðfræðistofu enn betur
í sessi.
Með samningi mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytisins og Stofnun-
ar rannsóknasetra Háskóla Íslands í
ársbyrjun 2016 var sett af stað vinna
við að greina tækifæri og leiðir við að
koma rannsóknasetrinu á fót, en áður
hafði Strandagaldur staðið fyrir rekstri
Þjóðfræðistofu á Hólmavík. Á grunni
þessarar vinnu varð úr að ráðuneytið
fól Stofnun rannsóknasetra Háskóla
Íslands að hefja starfsemi rannsókna-
seturs í þjóðfræði á Ströndum, í náinni
samvinnu við heimamenn. Að hluta til
er byggt á þeim góða grunni sem áður
hafði verið lagður með starfsemi Þjóð-
fræðistofu Strandagaldurs. Aðsetur
rannsóknasetursins er í Þróunarsetrinu
á Hólmavík.
Rannsóknasetur Háskóla Íslands
á Ströndum – Þjóðfræðistofa er eitt af
níu rannsóknasetrum Háskóla Íslands
um landið. Viðfangsefni þeirra eru
fjölbreytt, en á meðal þeirra eru lífríki
hafsins, umhverfi og landnýting, hvalir,
fiskar og fuglar, ferðamál, bókmenntir,
sagnfræði, fornleifafræði og þjóðfræði.
Ásdís Hlökk áfram forstjóri
Skipulagsstofnunar
Jón Jónsson ráðinn á rannsóknarsetrið
Fyrir tveimur vikum gekk Ólaf-
ur Sæmundsson frá Patreks-
firði á fund Guðmundar Inga
Guðbrandssonar umhverfis og auð-
lindaráðherra. Að sögn Ólafs var til-
gangur fundarins var fyrst og fremst
að vekja athygli á þeim harða hnút
sem sem er í málum er varðar bætt-
ar samgöngur á Vestfjarðarvegi no 60
um Gufudalssveit.
„Ég tjáði ráðherra hug minn í þeim
málum og hverja ég teldi vera lausnina
í þeim, ráðherra hlustaði á mín rök,
en kom svo sem ekki með tillögu að
neinni lausn enda ætlaðist ég alls ekki
til þess, við ræddum málið fram og til
baka og vorum samála um margt en
ekki allt.
Ég sagði ráðherra það að ég hafi
tekið eftir því að í nýju samgönguá-
ætlunin sem lögð var fram í vikunni
hafi verið lítil texti um Þjóðveg 60 sem
væri eitthvað á þessa leið, hafist verði
handa við gerð nýs vegar ef samkomu-
lag náist um hvað leið skuli farin.“
Sagðist Ólafur Sæmundsson
treysta því að Umhverfisráðherra og
hans ráðuneyti myndi vinna að því
með vegagerðinni að valin verði leið
sem verði láglendisvegur og uppfylli
allar helstu öryggiskröfur sem gerðar
eru til nútíma samgangna.
„Að lokum færði ég ráðuneytinu
mynd að gjöf sem frændi minn Hall-
dór Baldursson teiknaði í júlí 2014,
þessi mynd á að minna okkur á að
þetta getur ekki verið svona lengur.“
Útgerðarfélagið Skúli ehf á
Drangsnesi tók um síðustu
helgi í notkun nýtt hús-
næði undir beitningaraðstöðu og
frystigeymslur. Um er að ræða við-
byggingu við frystihúsið á Drangs-
nesi alls um 300 m², að hluta til á
tveimur hæðum. Verður öll aðstaða
hin besta eftir breytinguna. Óskar
Torfason, framkvæmdastjóri félags-
ins gerði grein fyrir framkvæmdum.
Kostnaður er um 60 milljónir króna
og hafa þegar um 50 milljónir króna
verið greiddar. Fjárhagsstaða fé-
lagsins er afar góð, eigið fé er liðlega
200 milljónir króna og félagið fékk
á dögunum viðurkenningarskjal
frá Credit Info sem framúrskar-
andi fyrirtæki 2018, en aðeins 2%
fyrirtækja á landinu komast í þann
flokk.
Útgerðarfélagið Skúli var stofnað
2002 með stuðningi Byggðastofn-
unar sem lagði því og fleiri fyr-
irtækjum á Vestfjörðum til eigið
fé. Tilgangur félagsins er að eiga
aflaheimildir og styrkja útgerð
í plássinu. Hefur það gengið eftir
þessi 16 ár og er meginhluti veiði-
heimildanna í byggðarlaginu í eigu
félagsins.
Nýtt húsnæði á Drangsnesi
VILL LÁGLENDISVEG