Vestfirðir - 04.10.2018, Page 14
14 4. október 2018
Bolungarvíkurkaupstaður
Fjármála- og skrifstofustjóri
Capacent — leiðir til árangurs
Bolungarvík er u.þ.b. 950
manna bæjarfélag. Þar er
góður grunnskóli, leikskóli og
tónlistarskóli , íþróttahús og
sundlaug. Frábær aðstaða
fyrir menningarviðburði,
nýtt hjúkrunarheimili, ný
félagsmiðstöð fyrir unglinga,
íbúðir fyrir aldraða og stutt í
alla þjónustu. Á næstu árum
standa svo fyrir dyrum ýmsar
framkvæmdir í bænum.
Talsverður vöxtur hefur verið
í atvinnulífinu á undanförnum
árum. Miklir möguleikar
til atvinnuuppbyggingar í
Bolungarvík eru í sjónmáli og
stöðugt skapast ný tækifæri til
sóknar.
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/10161
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði.
Haldgóð reynsla af sambærilegu starfi.
Mjög góð þekking á reikningshaldi, uppgjörum og
áætlanagerð.
Þekking á málefnum sveitarfélaga kostur.
Góð tölvukunnátta skilyrði.
Góð kunnátta í íslensku og ensku og geta til að tjá sig í ræðu
og riti.
Leiðtogahæfileikar og drifkraftur í starfi.
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð félagsleg
færni.
Samviskusemi og nákvæmni í starfi.
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
Umsóknarfrestur
17. október
Starfssvið
Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum
bæjarskrifstofu.
Ábyrgð á daglegri umsýslu fjármála og bókhalds.
Umsjón með fjárhagsáætlanagerð, frávikagreiningum og
kostnaðareftirliti.
Ábyrgð á gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana.
Fjárhagslegar úttektir og greiningar.
Eftirfylgni með framgangi rekstrar- og fjárhagsáætlana.
Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði fjármála og
fjárreiða.
Aðstoð við samningagerð og önnur fjármálatengd verkefni.
Samskipti við forstöðumenn og íbúa vegna erinda er snúa
að fjármálum og annarri þjónustu bæjarfélagins.
Bolungarvíkurkaupstaður óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf fjármála- og skrifstofustjóra. Starfið er mjög
margþætt og krefst því góðrar færni á ýmsum sviðum. Fjármála- og skrifstofustjóri er yfirmaður á bæjarskrifstofu ásamt því
að stýra fjármálum sveitarfélagsins.
Sjálfsbjörg á Ísafirði 60 ára
Sjálfsbjörg, félag hreyfihamlaðra á
Ísafirði hélt upp á afmæli sitt síð-
astliðinn laugardag. Sjálfsbjörg
á Ísafirði var stofnuð þann 29. septem-
ber 1958. Tæplega fjörutíu manns sóttu
stofnfundinn, þar af nokkrir styrktarfé-
lagar og einn ævifélagi. Ári síðar voru
félagarnir orðnir um áttatíu. Fyrsti
formaður félagsins var kjörinn Trausti
Sigurlaugsson. Ingibjörg Magnúsdóttir
tók við formennsku árið 1961 en hún
lést eftir nokkrra ára formennsku langt
um aldur fram. Meðal þeirra baráttu-
mála sem stofnfundurinn fjallað um var
hækkun örorkustyrks og að skerðing
hans hæfist ekki fyrr en tekjur lífeyris-
þega næmu tekjum verkamanns.
Sjálfsbjörg og Berklavörn á Ísafirði
stofnuðu meðal annars vinnustofu og
hófu framleiðslu á ýmis konar varningi
sem seldur var og markaði fjárhagsund-
irstöðu félagsins. Í dag felst starf félags-
ins einkum í því að vinna að bættu að-
gengi hreyfihamlaðra á svæðinu.
Sjálfsbjörg bauð félögum og
velunnurum í kaffiboð, sem haldið var í
Naustinu á Hlíf 2. Formaður félagsins er
Hafsteinn Vilhjámsson. Haftseinn sagði
í samtali við blaðið vestfirðir að sam-
sætið hefði tekist afar vel, mæting hafi
verið góð og gestir átt saman góða stund.
Undirskirftasöfnun
aldraðra :
Engan skort
á efri árum
Næsta mánudag lýkur
söfnun undirskrifta fyrir
áskorun til stjórnvalda um
hækkun á lífeyristekjum aldraðra.
Markmiðið er að lífeyrir dugi til
að tryggja öldruðum áhyggjulaust
ævikvöld og að öryrkjar þurfi ekki
að kvíða morgundeginum.Yfirskrift
söfnunarinnar er ENGAN SKORT
Á EFRI ÁRUM.
Það var Erla Magna Alexanders-
dóttir,eldri borgari,sem setti undi-
skriftasöfnunina í -gang,nánast ein
sín liðs.Hún hefur engin samtök á
bak við sig,ekkert fjármagn,ekkert
fyrirtæki.Það er því grasrótin,sem
stendur á bak við þessa undir-
skriftasöfnun. Erla Magna er rúm-
lega áttræð og verður að reiða sig á
almannatryggingar.Hún þekkir því
á eigin skinni hvernig það er.
Þegar blaðið var búið til
prentun höfðu 6.579 skrifað undir.
Undirskriftin er rafræn á Island. is
á slóðinni
http://listar.island.is/Stydjum/23
Myndir: Marzellíus Sveinbjörnsson.