Vestfirðir - 04.10.2018, Side 15

Vestfirðir - 04.10.2018, Side 15
Borgarfjörður Helgarblað 13.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ Helga býður upp á heimagerðan mat og grillmat á Snæfellsnesi Hjónin Helga Magnea Birkisdóttir og Ólafur Sólmundsson reka tvo staði á Snæfellsnesi, Prím- us kaffihús á Hellnum og Stapann veitingastað á Arnarstapa. Hjónin tóku u-beygju í lífinu árið 2014 þegar þau fluttu úr Keflavík vestur á Snæfellsnes. Þar una þau sér vel, umvafin fallegri náttúru og góðum nágrönnum. Nóg er að gera á báðum stöðum og gestirnir eru bæði erlendir og innlendir, ferðamenn, heimamenn og sumarhúsaeigendur. „Við lentum bara hérna,“ segir Helga og hlær. Hjónin bjuggu í Sandgerði og Keflavík og voru ekkert í veitinga- bransanum þar. „Ég var búin að hugsa um að opna kaffihús, en var kannski of hrædd til að stíga skrefið. Kaffihús hafa ekki gengið of vel í Keflavík.“ Helga og Ólafur tóku svo af skarið saman, seldu húsið í Keflavík, fluttu að Hellnum og stofnuðu fyrirtæk- ið Birkisól, sem nefnt er eftir feðrum þeirra og í framhaldinu kaffihúsið Prímuskaffi. Fyrir ári síðan opnuðu þau síðan veitingastaðinn Stapann á Arnarstapa. „Það var kominn tími til að gera eitthvað,“ segir Helga, sem segist hafa verið komin í góðan þægindaramma. Heimagert af Helgu sjálfri „Við viljum bjóða upp á heimilislegt og afslappað andrúmsloft og ég er með frábært starfsfólk,“ segir Helga. „Starfsfólkið mitt er metnaðarfullt, hrikalega dugleg og leggur sig fram við að læra íslensku.“ Stapinn – Grillstaður og eitthvað í boði fyrir alla Þó að aðeins sé fimm mínútna keyrsla á milli staðanna og sömu eigendur, eru þeir ólíkir í stíl og úrvali. Stapinn er grill- staður og þar er hægt að fá eitthvað af öllu. „Hér reynum við að koma til móts við þarfir allra, bjóðum upp á mat af grill- inu, bæði hamborgara, veganborgara, kjúklingaborgara, lambasnitsel og fish’n chips. Við notum besta hráefni þorskhnakka í fish’n chips og koma þeir úr héraði og við leggjum mikla áherslu á gæðin. Við erum líka með salsa, heita osta, sælgæti og ís. Hér getur þú líka sest inn og fengið þér drykk. Stapinn er pínu orðinn bar á kvöldin, fólk kemur hér við og fær sér smá að sötra til að ylja kroppinn. Það er góð stemming hér og margir sumarhúsaeigendur labba til okkar, fá sér einn drykk, einn ís og svo framvegis.“ Stapinn fagnaði 1. árs afmæli þann 12. júní síðastliðinn. „Við héldum partí 2 dögum áður, vorum að jafna okkur daginn eftir og opnuðum svo,“ segir Helga og hlær. „Þetta var á fallegum sumardegi í fyrra, það var blankalogn og brjálæðislega gott veður. Í sumar hefur bara rignt, en „it s all about the outfit“,“ segir Helga. Stapann einkennir stór og mikill pall- ur sem snýr að Arnarstapavegi. „Við erum með útihúsgögn og útiarinn, en ekki hefur gefist tími til að njóta mikið í sumar Ég legg mikla áherslu á að spila íslenska tónlist á Stapanum og langar að bjóða til útitónleika á pallinum síðar. Við erum enn að gera Stapann upp, vorum að setja gler allan hringinn og eigum eftir að fínisera aðeins á bakvið.“ Gönguleiðin milli Arnarstapa og Hellna er talin þriðja fallegasta gönguleið í heimi, það tekur um 50 mínútur að labba hana og svo þarf að labba til baka að bílnum. Það er því tilvalið að njóta fallegrar gönguleiðar og náttúru og kíkja við á Stapanum um leið.

x

Vestfirðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.