Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 13

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 13
hefur verið lýst, voru unnar á vegum mælingadeildar Vegagerðar ríkisins. En árið 1956 var mælingadeildin gerð að sérstakri stofnun, Landmæl- ingum Islands, sem tók við samstarfi íslendinga og dönsku landmælinga- stofnunarinnar og hóf jafnframt eigin kortagerð. Kortagerð eftir loftmyndum Árið 1937 var enn ómælt talsvert af hálendi Islands. Þá um sumarið kom danska varðskipið Hvidbjornen til íslands með leiðangur til loftljós- myndatöku á vegum Herforingja- ráðsins. Á skipinu var Heinkel-sjó- flugvél frá danska sjóhernum, búin loftmyndavél. Illa viðraði til flugs þetta sumar, svo myndatöku var haldið áfram næsta sumar, í betra veðri. Þar með voru fengnar loft- Mælistólpi á Skólavörðuholti í Reykjavík. Ljósm.: Þorsteinn G. Gunnarsson. Loftmyndavél, Wild RC5a, eins og Islendingar keyptu 1953. Landmœlingar Islands. lenskum stjórn- völdum og bárust að lokum mæl- ingadeild Vega- gerðarinnar, sem studdist við þau við endurskoðun ýmissa korta. Fyrstu loftmyndavélar í eigu ís- lendinga voru tvær ljósmyndavélar sem breski herinn var hættur að nota að kortin og gögn um gerð þeirra voru afhent ís- myndir af meginhluta öræfa íslands, sem ekki höfðu öll verið mæld með öðrum hætti. Við lok síðari heimsstyjjaldar tók Kortadeild Bandaríkjahers loftljós- myndir til kortagerðar af mestöllu ís- landi. Eftir þessum myndum, og kortum Herforingjaráðsins, vann kortadeildin 300 kortblöð af íslandi í mælikvarða 1:50.000. Þessi kort komust aldrei í hendur almennings á íslandi, voru enda hernaðarleyndar- mál um nokkurt skeið. Þar kom þó og keyptar voru - fyrir liðlega fimm sterlingspund hvor - á útsölu í London. Aðra myndavélina keypti Reykjavíkurbær, en hina keypti Ágúst Böðvarsson, starfsmaður mæl- ingadeildar Vegagerðar ríkisins og síðar forstöðumaður Landmælinga íslands. Vélarnar komu til landsins í júlí 1951 og komu að góðum notum við töku loftmynda af Reykjavík. Reynslan af þessum fremur frum- stæðu tækjum varð til þess að ýmsar stofnanir á Islandi lögðu saman í púkk og keyptu vandaða, svissneska loftmyndavél, (Wild RC5a) sem kom til landsins í júlí 1953. Hún nýttist við ýmis sérverkefni, svo sem við landmælingar vegna áforma um stór- virkjanir. NATO fól árið 1953, eins og fýrr segir, Kortadeild Bandaríkjahers að kortleggja Island í mælikvarðanum 1:25.000. Síðar sættust menn, vegna strjálbýlis landsins, á mælikvarðann 1:50.000. Sem grunn í kortagerðinni notaði herinn loftmyndir, sem teknar voru úr Hercules-flugvélum. Mynda- töku var að mestu lokið 1961. Loftmyndirnar voru svo nánar greindar hjá Landmælingum Islands og færðir inn fastir punktar, tákn og heiti. Mörg ný og endurskoðuð kort, sem Landmælingar Islands gefa út, eru unnin út frá loftmyndum. Kortin heim Snemma árs 1971 undirrituðu for- stöðumenn Geodætisk Institut og Landmælinga íslands, Einar Ander- sen og Ágúst Böðvarsson, samkomu- lag, sem meðal annars fól í sér að Danir seldu íslendingum við mjög sanngjömu verði ljósrit af ýmsum sérkortum og allar birgðir af Islands- kortum sem Geodætisk Institut átti, sem og allar mælibækur, teikningar af kortum til prentunar og loft- myndafilmur, sem tengdust íslands- kortum, og þar með útgáfurétt af þeim kortum sem eftir þeim yrðu gerð. Skilyrði var þó að framlags Geodætisk Institut yrði getið á nýj- um kortum þar sem það ætti við, og að Danir fengju rétt til að gefa út kort af íslandi til nota innan Dan- merkur, og hefðu þá aðgang að gögnum frá Landmælingum Islands. Mörg þessi gögn voru raunar kom- in til íslands áður en samkomulagið var undirritað. Síðustu frumgögnin voru afhent íslendingum árið 1985 við formlega athöfn í Ráðherrabú- staðnum við Tjörnina. Heimildir Helsta skráða heimildin að þessari grein er Land- mœlingar og kortagerð Dana á Islandi. Upphaf Land- mœlinga íslands. eftir Ágúst Böðvarsson. Landmæling- ar íslands, Reykjavík 1996. Nær allar myndir með greininni eru fengnar úr þessari bók, með leyfi útgef- anda. Heima er bezt 525

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.