Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 14
í norðlenskum afdal Laugardagskvöld, skömmufyrir jól. Ég er staddur vestur í Einarsnesi í Skerjafirði, hjá Hallgrími Jónassyni, frœðimanni, rithöfundi, ferðagarpi ogfyrrum kennara. Við höfum rabbað um eitt og annað en svo berst talið að jólunum. „Já, jólahaldið er nú orðið œði mikið breytt frá því sem það var í mínu ungdœmi, “ segir Hallgrímur. Og innan stundar hefur hann fallist á að segja mér eitthvað frá jólahátíðarhaldinu, eins og þaö tíðkaðist til sveita á bernskuárum hans. Fábreyttar gjaldeyrisvörur - Eg er fæddur og uppalinn að Fremri-kotum í Norðurárdal í Skagafirði. Fremri-kot eru, eins og margir vita að sjálfsögðu, fremsti bærinn í Norðurárdal og jafnframt sá bær sem næstur er Öxnadalsheiðinni að vestanverðu. Næstu bæir neðan Fremri-kota voru Ytri-kot og svo Borgargerði sunnan Norðurár, báðir komnir í eyði. Næsti bær við Öxnadalsheiði norðanverða, var Bakkasel, lengi gisti- og greiðasölustaður, einnig í eyði, sem og Öxnadalurinn allur niður að Engimýri og Hálsi. Þessir bæir eru nú útverðir byggðarinnar í þessum norðlenska fjalladal, þar sem sumrin eru heit og veturnir mikilúðlegir. Vegna legu sinnar við fjölfarna og torsótta heiði var gestanauð mikil á Fremri-kotum og því var það að sá varningur, sem keyptur var á haustin, svo sem kaffi, sykur, olía o.fl., var oftast mjög á þrotum þegar leið að jólum. Því var það jafnan nauðsynlegt að ná sér í ný föng til þess að geta gert sér dagamun um jólin. En það var nú ekki bara til næsta bæjar að fara. Frá Fremri-kotum til Sauðárkróks var talin 9 klukkustunda reið og talsvert lengra til Akureyrar. En til þess að geta aflað sér þess varnings sem nauðsynlegur þótti til jólahaldsins, þurfti einhvern gjaldeyri og hann var nú ekki fyrirferðarmikill á heimili eins og Fremri-kotum, allra síst á fyrstu búskaparárum foreldra minna þar. Og þá var það tóvinnan, sem helst kom til greina sem verslunarvara, vettlingar og sokkaplögg og svo rjúpur. Og hvað prjónlesið snerti þá var Akureyri miklu betri verslunarstaður en Sauðárkrókur. Því olli útgerðin við Eyjafjörð en þar voru miklu betri hafnir en við Skagafjörðinn. Við krakkamir, jafnvel smábusar eins og ég, vorum öll látin leggja hönd að tóvinnunni. Ég var t.d. látinn prjóna þumla á vettlinga. Eldri systkini mín prjónuðu bolina og þetta var unnið úr ullinni sem haldið var eftir á sumrin þegar hún var annars flutt í kaupstaðinn. Unnir voru t.d. 526 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.