Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 37

Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 37
Framhaldssaga, 13. hluti - Við beitningarskúrinn, svara bræðurnir samtímis. - Veðrið var svo gott að okkur þótti betra að stokka upp línuna fyrir utan skúrinn en inni í honum, útskýrir Bjarki. - Og hvaða tungumál talaði þessi náungi, spyr Bóas Jensen að bragði. - Hann talaði aðallega norsku en sum orðin á íslensku og við skildum allt sem hann sagði. Guðríður amma hef- ur oft talað við okkur norsku og kennt okkur hvað orðin þýddu á íslensku. Hún segist vilja halda við norskunni, svarar Bjarki og bróðir hans kinkar kolli til samþykkis. - O, jæja, ætli hún geri það nú mikið lengur, blessunin, segir Bóas Jensen og svipur hans daprast. - En látið mig heyra, drengir mínir, hvað sá norski hafði að segja við ykkur á þessum tveimur tungumálum. - Já, pabbi, svarar Birkir. - Hann spurði hvað við hét- um. Bjarki sgði honum það. Honum fannst nöfnin okkar falleg. Hann kvaðst heita Jensen. Bjarki sagði að pabbi okkar héti líka Jensen. Norðmanninum þótti gaman að heyra það, að hann ætti nafna á íslandi og þá vildi hann næst fá að vita hvað afar okkar og ömmur hétu. Bjarki sagði honum að við ættum ekki nema einn afa, Véstein afa í sveitinn, en tvær ömmur, Hallfríði ömmu í sveitinn og Guðríði ömmu, sem væri heima hjá okkur, en hann svaraði því að þeir sem ættu tvær ömmur hlytu líka að hafa eignast tvo afa. - Já, mikið rétt ályktað hjá honum, segir Bóas Jensen, eilítið sposkur á svip. - En voruð þið þar með búnir að metta þennan fróðleiksþyrsta ferðamann af innlendum fréttum? - Ég veit það ekki, pabbi, svarar Bjarki, - en hann langaði til þess að hitta þig, nafna sinn á íslandi. Ingibjörg Siguröardóttir - Ja, þú segir nokkuð, drengur minn. Og hvert fór hann svo, manntetrið, spyr Bóas Jensen og rödd hans leynir ekki vaxandi áhuga hans fyrir ferðamanninum. - Hann sagðist ætla í skoðunarferð um þorpið og næsta nágrenni þess, svarar Bjarki. - Ég hélt að maðurinn væri ókunnugur hérna í Súlnavogi og bauð honum fylgd og leiðsögn um staðinn en hann afþakkaði það og sagðist hafa komið hér áður, en við skyldum hittast á eftir þegar þú værir kominn af sjónum, pabbi. - Jæja, sá norski hefur þá komið hér áður, segir Bóas Jensen eins og við sjálfan sig. Myndarlegar, íjarstæðu- kenndar draumsýnir læðast fram í vitund hans. Þetta skyldi þó ekki vera ... Nei, nei, það getur ekki verið, því- líkir hugarórar í honum, fullorðnum manni. En hann vill gjarnan líta þennan nossara augum, fyrst áhugi þeirra fyr- ir því að hittast, er gagnkvæmur. Þeir feðgarnir þrír eru komnir miðja vegu heim á leið og ganga rólega, allir þungt hugsi. En skyndilega nemur Birkir staðar. - Þarna kemur ferðamaðurinn, hann er á leið hingað niður eftir, segir hann með ákafa í röddinni. - Eigum við ekki að hitta hann núna, pabbi? Heima er bezt 549

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.