Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.12.2002, Qupperneq 25
kynnst hjá íslenskum söngvurum, heldur einnig breskum og ekki síst amerískum „kollegum“„. Kristján leggur áherslu á að það sé ekki nóg að skarta glæsitónum hér og þar, ef framburðurinn á málinu, sem sungið er á, er alrangur. Hér vill hann bæta við, til áréttingar á nauðsyn fram- burðarhæfni óperusöngvara, sem er þó teygjanlegt hugtak, því í þýsku, sem dæmi, eru til margar mállýskur, jafnvel svokölluð Wagnerþýska er til. Tenórinn segir sögu í þessu sambandi: „Einu sinni söng ég í Tannheuser í Muenchen og heims- þekktur þýskuþjálfari átti að segja okkur til um framburð- inn. Þegar ég rakst á eitthvað sem mér fannst alveg óskilj- anlegt, spurði ég: Hvem anskotann þýðir þetta? Þá sagðist hann ekki vita það, en þetta væri Wagnerþýska. Hjá Verdi er þetta líka oft vandamál og það þvælist fyr- ir Itölum.“ 1 Tel Aviv uppfærslunni á Carmen, sem Kristján söng í á síðast liðnum vetri, var fluttur allur textinn. Einnig sá sem upphaflega er skrifaður rnilli söngatriða. Um 30 blaðsíður af honum þurfti tenórinn að læra utan að, til viðbótar venjulegum söngtexta. Til að vera betur í stakk búinn til að koma því sóma- samlega frá sér sótti hann frönskutíma með Víkingi, 12 ára gömlum syni sínum. Kristján segist einnig hafa rekist á þá staðreynd að nreðal íslenskra söngvara af yngri kynslóðinni, sem hann segist fylgjast með og sé að spá í, eru allir með sömu verkefnin og það syngja allir eins, það vanti tilbreytingu. Tenórinn er himinlifandi glaður yfir því að það séu að verða til nýir söngskólar á Fróni og dæsir, þegar hann bætir við: „Og það munu vera hvorki meira né minna en 4-5000 manns við tónlistarnám á landi okkar, en til þessa hafa verið gerðar alltof litlar kröfur til nemendanna og það bitnar á „standardinum“.“ Hann segir það vera staðreynd að á Islandi sé ógerning- ur að fá námslán fyrr en nemandinn hafi lokið prófi frá íslenskum söngskóla og bendir á að það taki langan tíma að ljúka endanlega söngnámi heima. „Þessu verður að breyta. Fólk verður að mega ráða því sjálft hvar það vill læra, því þegar svo nemandinn loks fær inntöku í skóla erlendis, sem vegna aldurs hans er undir hælinn lagt, kemst hann að því hve staða hans er vafasöm, vegna skorts á undirbúningi, svo hann má búast við allt að fimm árum til viðbótar áður en hann kemst í námsham. I heimsóperuhúsunum eru kvenstjörnur á aldrinum kringum 25 ára, þ.e. 10 árum á undan íslenskum stöllum sínum. Sama gildir um „strákana“, þeir eru fyrst að fá leyfi til þess að láta ljós sitt skína komnir vel á fertugs- aldur. Mig rekur minni til að þegar ég fór til söngnáms er- lendis 25 ára, að ég var álitinn of gamall.“ Að þessu sinni lauk söngvarinn erindi sínu í Vín þann 30. október (2001) en þá stóð til að hann færi til Kairó og tæki þátt í Aidu en skömmu áður barst honum bréf ífá stjórnvöldum Egyptalands um að vegna hryðjuverka- hættu yrði að aflýsa þeirri fyrirætlun. í nóvember söng Kristján í Milwakee í Bandaríkjunum, hlutverk Gústavs Svíakonungs í Grímudansleiknum eftir Verdi á 10 sýningum, en fyrir réttum 15 árum söng hann sama hlutverk á þessum stað. Það eru reyndar 20 ár síðan Kristján söng í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsi íslendinga, það var í La Boheme árið 1981. í Carmen söng hann í fýrsta sinn í Tel Aviv árið 1984 og nú 15 árum síðar mun það endurtekið. Þetta allt gleður lista- manninn sýnilega. I mai á síðasta ári söng Kristján í Þjóðaróperunni í Tokyo, í Carmen og Óþelló. „Kannski má segja að ég sé nokkuð farinn að skipta um gír.“ Spurningu minni uni hvort honum þyki rneira til þess koma að syngja á einhverjum einum stað en öðrum, svar- ar Krisján: „Mér finnst yndislegt að syngja á Islandi og þá ekki síst á Akureyri“. Varla hefur nafn höfuðstaðar Norðurlands nokkurn tíma verið borið fram með hlýlegri tón í röddinni og and- lit heimssöngvarans ljómaði. „Mér finnst afar notalegt til þess að vita að Islending- um þykir vænt um mig, það birtist ekki bara á tónleikum mínum, heldur líka í umtali. Á síðustu tónleika mína á Akureyri kom vel á þriðja þúsund manns, og svo seljast hljómdiskar mínir vel. Já, ég fæ fiðring í magann þegar til stendur að ég fari til íslands til að syngja.“ Kristján getur ekki leynt því að hann langar mjög til að syngja aftur í óperu á Islandi, en það eru liðin 7 ár síðan það gerðist, ef frá er talin sönguppfærsla á Aidu í Laugardalshöll á s.l. ári, en það þótti honum mjög skemmtilegt. Kristjá er feikn ánægður með að íslenska ríkisstjórnin skuli nú ætla sér ítök í íslensku óperunni. Mál til komið. Honum finnst að það hafi loks runnið upp fyrir stjórnendum landsins, að hér sé eitt- hvað á ferðinni, sem sé þess virði að hlúa að. A þessu hef ég tuðað sl. 15 ár, þessi hugarfarsbreyting ráðamanna er hreinlega frábær. Og viðmælandi min bætir við: „Auðvitað er ekki hér með framtíð íslennsku óperunnar tryggð, það verður ekki fyrr en hún hefur fengið viðunan- legt húsnæði. Núveranndi húsnæði hentar engan veginn til stærri óperuflutninga, en það eru það sem fólk sækist eftir. En ekki einhverjum sýnishornauppfærslum, sem mætti likja við að skoða Kjarvals málverk frá 45 gráðu horni.“ Heimaerbezt 537

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.