Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 41
Ginseng
er margra meina bót
Grasalækningar hafa verið stundaðar með góðum árangri
um aldaraðir. Maðurinn hefur alltaf leitast við að finna
ráð gegn sjúkdómum en fyrirbyggjandi lœkningar voru
líka stundaðar.
Iausturlenskum fræðum og heimspeki
er sú kenning ævafom að lyf og
fæða séu mnnin ífá sömu uppsprettu.
Til að halda lífi er nauðsynlegt að lík-
aminn fái nákvæmlega það fæðumagn
sem hann þarfnast daglega, en ekkert
írarn yfir það. Allt, sem við látum í okk-
ur fram yfir þörf, getur og mun skaða
heilsu okkar á einn eða annan hátt.
Of margar hitaeiningar, ffam yfir dag-
lega þörf, safnast saman í fituvefi, sem
valda offitusjúkdómum, sykursýki, auk-
inni blóðfítu, of háum blóðþrýstingi,
hjartasjúkdómum og óhjákvæmilegum
hreyfíörðugleikum, sem leiða til gigtar-
sjúkdóma o.s.frv.
Nú hafa augu vísindamanna opnast
meira og meira fyrir kostum fyrirbyggj-
andi meðferðar, sérstaklega vegna sjúk-
dóma eins og sykursýki og streitu, sem
engin lyf geta unnið á; einkennum þess-
ara sjúkdóma er aðeins hægt að halda
niðri en lækning er enn ekki fýrir hendi.
Helstu eiginlcikar jurtalyfja er hvað þau
vinna hægt, en aukaverkanir eru næstum
engar og öll jurtalyf bæta almenna, lík-
amlega líðan okkar.
Eitt þessara jurtalyfja er rautt eðalg-
inseng. Það hefur, eins og það er fram-
leitt og notað í Kóreu, verið þekkt um
aldir fyrir að vinna á ótímabærum elli-
hrumleika, á sykursýki, myndun blóð-
fitu, á ónmæiskerfí líkamans og til
hreinsunar á blóði og líkamsvessum.
Útilokað er að við getum forðað okkur
ffá mengun andrúmsloftsins, einfaldlega
vegna þess að við hvorki viljum né get-
um snúið til baka til þess lífs sem við
þekktum fyrir eitthundrað árum eða svo.
Einfalda lífið er alls ekki í boði í dag.
Þetta er staðreynd sem við verðum að
horfast í augu við og það eina sem við
getum til að vemda heilsu okkar og líf
er að nýta okkur þau náttúrulegu og
nærtæku hjálparmeðul, sem við höfum
aðgang að, sem að vísu er byggð á alda-
gamalli hefð, en em í dag rannsökuð
gaumgæfilega af vísindamönnum og til-
raunir gerðar með þau.
Ginseng er líklega sú lækningajurt sem
hvað lengst hefur verið notuð í Asíu-
löndum, eða um þúsundir ára. Hún er
afar verðmæt og era miklar hefðir en
fyrst og ffemst mikil nákvæmni, tengdar
ræktun hennar og uppskem. í gegnum
aldimar hafa myndast goðsagnir um
verðmæti og lækningamátt jurtarinnar.
Nú á síðustu ámm hafa vísindamenn
hafið rannsóknir á ginsengjurtinni með
tilliti til virkra innihaldsefna og líffræði-
legra áhrifa.
Frá árinu 1965 hafa verið skráðar
ýmsar lyfjaffæðilegar verkanir
ginsengextrakts og má þar nefna ýmis
áhrif á taugakerfið, róandi áhrif, vöm
gegn magasári af streituálagi, minnkun
á þreytu, áhrif á innkirtlastarfsemi,
ft\NGÓ
u
í VINRGRE Öll miðvikudcigs-,
föstudags- og
sunnudogskvöld
kl. 19.15
fió spilci bingó vinnur ó móti hrörnun heilons"
Skipholt 33 s. 5534054
Heima er bezt 553