Fréttabréf Verkalýðsfélags Akraness - Jun 2005, Page 1
Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness
sem var haldinn 27. apríl s.l. samþykkti
tillögu stjórnar sjúkrasjóðs um að hækka
sjúkradagpeninga um 23%. Þar með eru
greiðslur orðnar með þeim bestu sem
gerast innan starfsgreinasambandsins eða
3.333 krónur á dag. Hin góða afkoma
sjúkrasjóðsins hefur leitt til þessara hækk-
ana.
Aðalfundurinn samþykkti einnig að
hækka greiðslu vegna krabbameinsrann-
sókna úr kr. 1.500 í kr. 2.500, en sú
upphæð fer langt með að standa að fullu
undir kostnaði.
Þessi hækkun markar tímamót í afkomu
og öryggi félagsmanna VLFA.
Hækkun sjúkradagpeninga markar tímamót
Skemmtiferð eldri
félaga í sumar
Í sumar verður eldri félögum í Verka-
lýðsfélagi Akraness boðið til dagsferð-
ar eins og verið hefur undanfarin ár.
Skemmtiferðir félagsins hafa verið
mjög vinsælar og í fyrra var metfjöldi
í ferðinni, tvær fullar rútur af glöðum
ferðalöngum sem skemmtu sér vel.
Ferðin í sumar verður farin seinni part
ágúst og tekur lungann úr deginum,
en ekki hefur verið endanlega ákveðið
hvert skuli haldið að þessu sinni.
Eldri félagar eru hvattir til að hafa
samband við félagið hafi þeir ákveðnar
óskir um áfangastað, allar ábendingar
eru vel þegnar.
Horft yfir Breiðina úr gamla vitanum á Suðurflös. Ljósmynd: K.K.
Rúmlega 30 prósenta munur var á
hæsta og lægsta verði á matvörukörfu
samkvæmt verðkönnun verðlagseftirlits
ASÍ í matvöruverslunum á Akranesi sem
framkvæmd var af starfsmönnum Verka-
lýðsfélags Akraness miðvikudaginn 25.
maí síðast liðinn. Dýrust var karfan í
Samkaupum - Strax, kr. 4.770 en ódýrust
í Nettó, kr. 3.661.
Í körfunni er tekið dæmi af innkaupum
á hefðbundnum vörum til heimilisins, s.s.
mjólkurvörum, kjötvörum, kornvörum,
grænmeti og ávöxtum. Sem dæmi má
nefna að allt að 100% munur var á verði á
300 gr. öskju af Smjörva en hún kostaði 93
kr. í Nettó en 185 krónur í Samkaupum-
Strax.
Þrjár verslanir tóku þátt í könnuninni
á Akranesi, Nettó, Samkaup-Strax og
Skagaver. Verslun Einars Ólafssonar neit-
aði þátttöku. Könnunin var gerð um land
allt og má sjá niðurstöður fyrir landið
í heild á heimasíðu ASÍ www.asi.is. Á
heimasíðu VLFA www.vlfa.is er að finna
niðurstöðu könnunarinnar á Akranesi.
Tekið skal fram að hér er einungis um
beinan verðsamanburð að ræða og ekki er
lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Stjórn Verkalýðsfélag Akraness hefur
ákveðið að halda uppi reglulegu eftirliti á
verðlagi matvæla og þjónustu á Akranesi
enda er um mikilvæga hagsmunagæslu
fyrir félagsmenn að ræða.
30% munur á vörukörfunni
Dýrust var karfan í Samkaupum-Strax, kr. 4.770
en ódýrust í Nettó kr. 3.661
Júní 2005