Heima er bezt - 01.06.2007, Síða 32
haustið og tveimur árum síðar byggði
hann hlöðuna. Nýtt land var brotið til
ræktunar framan við Bæjargilið og einnig
lengra út og niður með ánni. Þar sem
aðaltúnið hafði verið utan við bæinn
var skriðan svo þykk að ekki var lagt í
að hreinsa hana þar í burtu. Nú er þetta
löngu uppgróið land aftur.
Skriðuföll á Ytri-Kotum
Bærinn Ytri-Kot em næsti bær utan við
Fremri-Kot. Þar kvað einnig vemlega
að skriðuföllunum þótt í minna mæli
væri. Bærinn var þá kominn í eyði en
mikil skriða kom niður á túnið utan
við bæinn, rann kringum fjárhúsin án
þess að raska þeim og heim undir bæ.
Nokkru neðar grófst gilskomingur alveg
niður að Norðurá og vatnsflaumur reif
sundur veginn við Kotá. Úr Skriðugili
á merkjum Kotabæjanna, einnig kallað
Merkjagil, mddist mikil grjóturð sem
fyllti algerlega farveginn og kaffærði
litla steinbrú sem var á læknum. Utan
við gilið lenti lítil fólksbifreið, M-
52, í skriðunni. Flún kom utan fyrir
að Skriðulæknum sem þá var kominn
úr farvegi sínum. Bílstjórinn ætlaði þá
að snúa við en í sama vetfangi dundi
skriðan á bílnum. Fengu þeir tveir sem
í bílnum vom, með naumindum bjargað
sér út en bíllinn fór á kaf upp á glugga.
Önnur bifreið staðnæmdist litlu utar og
sneri þar við en þá var fallin skriða fyrir
utan og lokaði leiðinni. Braust fólkið
úr þessum tveimur bifreiðum við illan
leik yfir skriðurnar og komst hrakið
niður að Silfrastöðum.
A.m.k. ijórðungur af túni Ytri-Kota
varð fyrir skemmdum. Lítið var hreinsað
af því utan hvað Gunnar Valdimarsson
og synir hans á Fremri-Kotum gerðu
þar eitthvað með dráttarvél en ræktuðu
þess í stað nýtt tún á öðrum stað.
Helstu heimildir: Skriðuföll og snjóflóð I,
bls. 564-571; Þjóðskjalasafn: Landnám ríkisins
1990/134. Skýrsla um skriðuföllin á Kotum;
upplýsingar Valdimars Gunnarssonar og Kára
Gunnarssonar frá Fremri-Kotum og Egils
Bjarnasonar ráðunauts á Sauðárkróki.
Eftir skriðiýöllin fór fram mikil hreinsun á veginum og allt sumarið voru
jarðýtur og skurðgröfur við hreinsun á iúninu. Hér eru ýtur á veginum úti á
Merkjaskriðu. Ingvi Júlíusson er á þeirri stærri en Gunnar Egilsson á minni
vélinni.
sett um hið ræktanlega land í stað þess
sem skriðan hefur tekið.
3. Að lagað verði með jarðýtum
nánasta umhverfi íbúðarhússins og
vegur lagður af þjóðvegi að bænum.
4. Að vatnsbólið sé grafið upp og
vatnsleiðsla hreinsuð. Ella verður að
leggja nýja leiðslu í íbúðarhús.
5. Að komið verði upp ijárhúsum með
hlöðu fyrir 100-120 fjár.
6. Að útvegað verði hey til viðbótar
því sem ábúandi getur heyjað á jörðinni,
svo hann geti haldið bústofni sínum
næsta vor.
Landnám ríkisins, Ræktunarsamband
Skagaljarðar og fleiri aðilar komu að
uppbyggingu á Fremri-Kotum. Lengi
sumars vom skurðgrafa og tvær jarðýtur
við hreinsun á túnum. Sú aðferð var
notuð að ýtumar grófu dældir þvert á
landið og hvolfdu þar ofan í grjótinu.
Gerðu síðan nýja skurði við hliðina og
með þeim hætti tókst að grafa skriðumar.
Einnig var ræst fram nýtt land til
ræktunar. Brúarvinnuflokkur Þorvaldar
Guðjónssonar, sem var að byggja nýja
brú á Valagilsána og endurnýja ræsi,
hjálpaði Gunnari að reisa ný ijárhús Um
Svona var umhorfs við eitt vegræsið eftir ósköpin.
320 Heima er bezt