Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 6

Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 6
 --------------------------------------------------- g er fæddur 24. september 1908 að Gömlu-Steinum iundir Eyjafjöllum. Steinar vom eins og lítið þorp og v—y í manntali Páls Vídalíns og Áma Magnússonar voru níu ábúendur á sömu stéttinni. Árið 1200 er getið um kirkju á Steinum. Árið 1888 hljóp Steinalækur á bæina með miklum grjótburði. Fækkaði þá fólki á bæjunum og Steinakirkja var lögð niður um 1890. Bæimir voru þá fluttir austar þar sem bensíndælan er núna, til að tryggja sig fyrir áhlaupi lækjarins, það var kölluð Gata. Þar íyrir ofan er afskaplega fallegur sveitabær sem heitir Hvoltunga og þar bjó merkiskonan Torfhildur og afkomandi hennar er Davíð Oddsson Seðlabankastjóri.“ Hvað hétu foreldrar þínir? „Jón Einarsson og Jóhanna Magnúsdóttir. Faðir minn var frá Steinum en móðir mín var fædd í Fljótshlíðnni, dóttir Magnúsar Þorvaldssonar frá Stóraklofa í Landsveit. Móðuramma mín hafði atvinnu af því að vera pöntuð á bæina til að skemmta fólki og segja sögur. Ekki er ég að segja að hún hafi verið göldrótt. Hún var uppi á sama tíma og Ögmundur í Auraseli. Hann var langafi Ása í Bæ. Ögmundur var talin göldróttur, að minnstakosti sá hann álfa.“ Hvað áttu mörg systkini? „Við vomm átta: Einar, sem lengi var símaverkstjóri, Bergþóra, Magnús, Guðjón, Steinunn, hún lést á fyrsta ári, Guðni, ég og Guðmundur. Guðni var faðir Karls Steinars forstjóra Tryggingastofnunar Ríkisins. Þú hefur heyrt talað um konu sem hét Steindór Ásta og var alltaf kölluð Ásta málari, ungur að við vomm systraböm.“ árum. Þú elst upp á Steinum? „Ætli ég hafí ekki verið níu ára þegar við fómm þaðan. Ég fluttist með foreldrum mínum að Rimhúsum sem em undir Vestur-Eyjafjöllum. Þar varégárið 1918. Ég minnist þess sérstaklega vegna þess að þá var móðurbróðir minn þar staddur en hann var tepptur og komst ekki neitt vegna þess aö þaö var svo mikið öskufall frá Kötlu þegar hún tók að gjósa. Ég man að það var svo mikið myrkur að það varð að kveikja ljós um miðjan dag. Jóhanna, móðir Katla tók til að gjósa 12. október og Steindórs. það byrjaði með snörpum jarðskjálfta um eða upp úr hádeginu. Það var fremur hráslagalegt þennann dag og himininn grár og þegar fór að líða á daginn sást þykkur mökkur upp af Mýrdalsjökli. Katla olli miklum skaða í nærsveitum en það varð algert jarðbann fyrir allar skepnur. Ég man eftir því að snarpir jarðskjálffakippir komu af og til. Þegar byrjaði að gjósa komu miklir ljósglampar frá eldfjallinu. Þá ungur ég var. Steindór uppábúinn við lúxuskerruna. í venjulegu árferði á vorin var féð rekið upp í Þórsmörkina sem í daglegu tali var kallað Mörkin. Þá var rekið upp hjá Skógum og yfir á Goðaland. Það þykir fínt að ganga þarna núna. Það var lítið um aðkeypt leikföng í þá daga og við krakkamir lékum okkur að kjálkum úr kindum, leggjum og völum úr kindafótum. Við höföum hnútur úr kindafótum fyrir hrúta. Homin vom dýrmæt og notuð fyrir kindur, allir leikir snemst um sveitabúskap enda þekktum við ekki annað. Við byggðum bæi, gripahús og réttir fýrir búpeninginn okkar og komum skepnunum á beit eins og aðrir góðir bændur. Ég skal segja þér að það var tvennt sem Eyfellingar öfunduðu Skaftfellinga af; annað var melurinn, en það var kom og rætumar svo miklar og sterkar að það var búinn til úr þeim reiðingur og það þótti afbragð. Svo voru það fjóstóftirnar, en svo var það kallað þegar kýrnar vom hafðar undir baðstofupallinum. Það munaði miklu hvað það var miklu hlýrra í bæjum þar sem þannig hagaði til, þetta var allt annað líf að hafa ylinn af kúnurn. Þá voru engir ofnar í híbýlum manna og eldað á hlóðum. Notuð var skán til að halda eldinum við í þeim. 486 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.