Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 9

Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 9
Steindór með langafa börnum sínum, afkomendum Dóru og Þorvaldar, talið frá vinstri: Styrmir, sem nú er í stjórnmálafræði í Bandaríkjunum, Þorvaldur nemi í lögfrœði í H.Í., Símon stúdent frá HM, Andriþyrluflugmaður, Hlynur skákmeistari unglinga og Guðrún sálfrœöingur. Fimm œttliðir; Steindór, Dóra, Inga Hrönn, Andri og Viktor Leví. stólpum út í sjóinn en það var gert til þess að hægara væri að skola fiskinn og sjórinn tekin upp um lúgu sem var á gólfinu. Þegar ég var krakki tíndum við krakkarnir lifur sem varð eftir undir pöllunum í aðgerðarhúsinu. Þá var hátt verð á lifrinni og við fengum þónokkra aura fyrir. Það var margt að gerast í Vestmannaeyjum á þessum árum. Það mátti ekki setja slorið í sjóinn, það var harðbannað, en ég er hræddur um að það hafi nú stundum verið gert. Það átti að keyra það austur, meðfram sjónum, þar sem þá voru eintómar klappir og þegar ræktunaráhuginn byrjaði var slorið keyrt þangað, þar sem var verið að rækta túnin. Það voru líka beinaverksmiðjur í Eyjum og það voru tveir Norðmenn, hvor í sínu lagi, sem ráku þessar verksmiðjur. Þeir kepptu við hvom annan um að fá sem mest af beinum. Beinin voru þurrkuð í svokölluðum Brimhólum. Krakkar og konur fengu vinnu við að snúa beinunum við svo að þau þomuðu jafnt báðu megin. Bílstjórar höfðu mikla vinnu af því að keyra beinin. Á þessum tíma var ágætt að vera á bíl og nóg vinna. Brynjólfur kaupmaður var organisti í kirkjunni og mikill tónlistannaður. Páll sonur prestsins var með konubúð í Eyjum og seldi kvenfatnað, efni og allt mögulegt. Páll var mikill ræktunarmaður og hann dreif í því að rækta tún í Brimhólum og kallaði staðinn síðan Oddgeirshóla. Svo var hann líka með ræktun suður undir Víkinni fyi ir neðan Höfðann. Hann hafði líka útgerð. Hvar kynntist þú konunni þinni? „Það var á meðan ég var í Vestmannaeyjum. Hún hét Þómnn Benediktsdóttir og var ættuð úr Skaftafel Issýslu. Við áttum bæði ættir að rekja til hans Einars gamla í Kerlingardal í Skaftafellssýslu, en hann var bróðir Bjarna amtmanns. Sonur Bjama var Steingrímur Thorsteinsson. Konan mín var uppalin á Felli, þar var prestssetur. Við eignuðumst þrjú börn og komum upp tveimur, Dóru og Grími Marinó. Við urðum fyrir mikilli sorg þegar við misstum §5 RSkj' - jrtjj Wfk 9 m' a.VQk} • / ], Fimm œttliðir; Steindór, Dóra, Steinunn, Styrmir og Dóra Hrönn. Dóra Steindórsdóttir og Þorvaldur Ingólfsson ásamt dœlrum sínum, Ingu Hrönn og Steinunni Jóhönnu. Heima er bezt 489

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.