Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Page 13

Heima er bezt - 01.10.2007, Page 13
Steindór nírœður. Ein af mörgam œvintýramyndum Dóru. Fallegar myndir tengdar þekktum œvintýrum, sem Dóra málaði fyrir börnin. vinna á bílaverkstæði á Vatnsstíg 3 í Reykjavík. Það verkstæði var stofnað um 1928 af Sveini Ásmundssyni og Sigurgeir Jónssyni, „Bifreiðaverkstæði Sveins og Geira“. Þeir höfðu ekki lengi viðdvöl á staðnum og fluttu sig á Hverfisgötu 78. Verkstæðið var á þeim slóðum sem núna er bakhlið Kjörgarðs. Hann hét Bergur Hallgrímsson sem átti þetta verkstæði á Vatnsstígnum. Hann er einn af þeim mönnum sem ég minnist þegar ég heyri góðs manns getið. Þegar ég byrjaði að vinna þarna vorum við hjónin að skilja. Dóra dóttir okkar var hjá bróður mínum og hans konu í Vestmannaeyjum, þar ólst hún að mestu upp. En Grímur Marinó, sonur okkar, var á bamaheimilinu Vesturborg og hjá Jóhönnu ömmu sinni, þegar hann var 10-11 ára, en svo á Langsstöðum í Flóa. Bergur sá um viðgerðir og eftirlit með langferðabílum og nokkru eftir að ég kom á verkstæðið var ekki búið að skipta fólksflutingabílunum í Norðurleið og Landleiðir. Eftir að Bretamir fóm af landinu var verkstæðið flutti suður á Grímsstaðaholt í einn af bröggunum sem þeir höfðu byggt. Þessi braggi var gríðarlega stór og var skammt frá litla torfbænum við Suðurgötu, en þar átti Eðvarð Sigurðsson, verkalýðsfrömuður, heima. Á þessum tíma átti ég heima lengst inn á Laugavegi og átti bíl sem ég kallaði Garganið. Það var góður bíll Chevrolett 30. Bróðir Bergs smíðaði á hann hús og trog aftan á, ekki ólíkt því sem í dag kallast „pikkupp“. Dóra mín kom suður frá Vestmannaeyjum og ég fór með hana á Alþingishátíðina 1944 í húóarrigningunni sem þá var. Við fórunt á þessum bíl og síðan alla leið austur að Langsstöðum. Þetta var heilmikið ævintýri og bíllinn dugði vel þó að allt væru malarvegir. Ágúst Hafberg var yfirmaður Landleiða og ég hélt áffam að vinna hjá honum. Landleiðir fluttu síðan í nýbyggingu sem var á móts við Þóroddsstaði sem nú teljast við Skógarhlíð. Ágúst Hafberg sá góði maður lést um aldur fram. Það voru góð ár sem ég átti meðan ég vann á bílaverkstæðinu en það var meira spennandi að vinna við símann. Eg lærði bifvélavirkjun en þá voru ekki eins strangar kröfúr í bóklegu námi og eru núna svo að ég var á fullum launum við námið. Fórstu kannski að skrifa eftir að þú þurftir að hœtta að vinna vegna aldurs? „Nei, ég skrifaði ekki neitt vegna þess að mér fannst ég ekki hafa frá neinu að segja. En ég var nú að gera ýmislegt. Sonur minn gaf mér kött en kisa mín var kettlingafull, hún eignaðist eina tíu kettlinga og ég tímdi ekki að láta drepa þá. Á sjötta áratugnum byggðum við hús í Kópavogi, ég og sonur minn, Grímur Marinó. Það má segja að hann hafi lokið við að byggja húsið og síðan var byggður bílskúr við það. En mig dreymdi um að setja lúgu á austurvegginn á skúmum og hafa hænsni. Mér var ofarlega í minni þegar ég var krakki, hænsnin á Gömlu-Steinum, þar vom fjórir glæsilegir hanar. Mig langaði nrikið til þess að eiga eins falleg hænsni og voru þar. Jæja, en aldrei lét ég verða af því að fá mér hænsni. Það var á þessum tíma sem ég veiktist af liðagigt og varð óvinnufær í rúmt ár. Á meðan var ég í sambýli með syni mínum og fyrrverandi konu hans, Rósu. Grímur Marinó er listamaður og hann hefur málað mikið af málverkum, einnig gerir hann listaverk úr málmi. Víða hafa verið sett upp jámlistaverk eftir hann eins og minnisvarði um Landpóstana við Stað í Hrútafirði, listaverk við innsiglinguna Heima er bezt 493

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.