Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Page 15

Heima er bezt - 01.10.2007, Page 15
Ur fórum samferðarfólks Ágúst Lárusson hefir sagt mér eftirfarandi: Það var veturinn 1917-1918, frostaveturinn, að ég er á Kársstöðum í Helgafellssveit, kauplaus vinnumaður hjá Sigurði Magnússyni og Ingibjörgu Daðadóttur. Ég er þá 15 ára. Þau áttu þá fjórar dætur í bemsku. Sú yngsta Jófríður, varð ársgömul 13. des. 1913. Á bolludaginn fór Sigurður til Stykkishólms með sleða og var að sækja nauðsynjar til heimilisins. Frost höfðu verið nokkuð lengi og var Álflafjörður allagður út undir eyjar. Á sprengidag, þegar ég er að enda við útiverkin, kemur hann heim og er sleðalaus. Segir mér að leggja hnakk á gömlu Brúnku, sem ég var fljótur að. Þá kom Sigiu'ður úr bænum með kaffiflösku í sokki og smápakka með. Hann tók mig með sér og héldum við eins og leið lá ofan að Álftafírði. En þar var þá sleðinn ásamt öllu því sem á hann var látið í Stykkishólmi og hjá honurn lá Olafúr Jónasson aðffamkominn af þreytu en hann hafði Sigurður fengið í Hólminum til þess að draga með sér sleðann. Olafur var kvæntur Ólínu Pétursdóttur ffá Svefneyjum og áttu þau saman 13 böm. Þau bjuggu þá utarlega í Hólniinum. Ólafiir drakk kaffið úr flöskunni og borðaði brauðið og svo var honum hjálpað á bak Brúnku. Sigurður teymdi Brímku en ég var látinn teyma sleðann með öllu saman. Þegar heim kom létég Bmnku inn í hesthúsið, en Ólafur var látinn fara ofan í rúm. Ingibjörg setti síðan upp lítinn jámpott á þrem fótum, og sauð í honum kjöt. Þegar það var soðið tók hún pottinn af eldavélinni Arni Helgason fv. stöðvarstjóri Pósts og síma í Stykkishólmi: og lét hann á gólfið við suðurgafl í eldhúsinu, neðan undir glugganum. Á pottinum var tréhlemmur. Þá kom Jófríður allt í einu að honum og styður hendinni á hlemminn. Hann féll á rönd ofan í pottinn og Jófríður rak þá höndina niður í pottinn og upp að olnboga, ofan í sjóðandi vatnið og heitt soðið og skaðbrenndist. Ingibjörg hljóp til, færði bamið úr fötunum að ofanverðu. Þetta vom ullarföt, pþónuð, en skinnið af handleggnum fór með. Ekki var neitt til að bera á þetta og ég gleymi aldrei kvalahljóðum bamsins. Nóttin líður svo og fram undir hádegi á öskudag. Það rigndi nokkuð um nóttina. Nú er Ólafúr kominn á fætur óþreyttur og ferðbúinn og er mér sagt að fara með honum í Hólminn til að sækja þangað lyf og umbúðir til læknisins. Við héldum stystu og beinustu leið út ísinn á Álftalirði, en nú var alveg fljúgandi hálka og vatn á honum eftir rigninguna um nóttina. Og við vomm staflausir. Við fömm svo eftir ísnum og stefndum á Helgafellsnes, gengum svo Nesvog á ísi, þar sem við komum að honum og síðan í bæinn. Þegar í Hólminn var komið fór Ólafúr strax til læknisins og í apótekið en sagði mér að fara strax heim til konu sinnar. Þau bjuggu þá þar sem Hólmgarður er nú. Þar fékk ég konunglegar móttökur af litlum efnum. Þegar Ólafúr svo kom með lyfin var orðið næm hálfdimmt og kominn á sunnan stormur. Ég sá strax að ekki var nokkurt vit í, fyrir mig staflausan og broddalausan, að fara sömu leið og við Ólafúr komum, svo ég held eins og leið liggur eftir þjóðveginum, upp sveitina, með storminn í fangið. Veður harðnaði alltaf eftir því sem ofar dró í sveitina, rigningin var mikil og ég varð fljótt gegnblautur. Ég sá dauf ljós í bæjunum sem ég fór framhjá. Þau vom mér leiðarstjömur í óveðrinu og náttmyrkrinu. Ég stefirdi að einu Ijósi, Ijósinu HEIM A, þar sem litla stúlkan beið effir því sem ég fékk hjá lækninum og apótekinu í Hólminum. Mér fannst ég alltaf heyra gráthljóðin hennar í anda. En meðölin áttu að lina þjáningar hennar. Aðeins ein brú var á leiðinni, á Svelgsá, en allar hinar á leið minni óbrúaðai'. Yfir þær treysti ég mér ekki staflaus og kom því við á Hrísakoti og bað þar um staf. Ég held að fólkið hafi verið hissa á ferð minni í þessu veðri, því konan vildi endilega að ég kæmi inn og jafhvel yrði um nóttina. Það kom ekki til mála. Ég varð að komast þetta sem fyrst. Ég fékk sauðskinn utan um lyfin og batt pakkann á bak mér, svo ég gæti haft báðarhendurá stafnum. Bóndinn, Kristján Einarsson, kom með mér að Þórsá og sá til mín yfir hana. Á henni var gott og slétt vað. En djúp var hún og þá sá ég hve stafúrinn Heima er bezt 495

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.