Heima er bezt - 01.10.2007, Side 19
Michael Ancher: Sjómevm á Skagen.
Þau vörðu ftítíma sínum með Michael Ancher
og vinum hans. Þetta leiddi til nánari kynna
og þau Anna og Michael giftu sig á 21.
afrnælisdegi Önnu og settust að á Skagen
þar sem þau bjuggu síðan alla tíð, lengst í
rauðmáluðu húsi við Markvej 2.
Hjónin gerðust bæði afkastamMir málarar.
Michael er þekktastur fyrir sjómannamyndir
sínar og gerði hann stórskomum og
veðurbitnum hversdagshetjum byggðarlagsins
góð skil.
Anna og Micahel eignuðust eina dóttur,
Helgu, sem var einbimi. Þau máluðu margar
myndir af henni og einnig hvort af öðm. Anna
málaði t. d. mynd af eiginmanninum þar sem
Þessa mynd teiknaði Michael af Önnu
skömmu eftir fyrstu kynni þeirra.
hann situr nokkuð búralegur og virðir lýrir
sér glæný veiðistígvél.
Sagt hefúr verið að Anna kæmist aldrei
langt frá eldluisinu í list sinni. Um það ber
fegurst vitni Stúlkan í eldhúsinu. Stúlka í
rauðu pilsi og svörtum jakka stendur við
eldhúsbekk og snýr baki í áhorfendur. A
lágu hliðarborði liggj a bústnir hvítkálshausar.
Dempuð biita bei'st inn um gluggann sem
hulinn er að mestu af gulu tjaldi sem bærist
fyrir mildri golu.
Ein bjartasta og glaðasta mynd Ónnu er af
Helgu litlu þar sem hún situr í stofu ömmu
sinnar og er að hekla. Sólin skín skáhallt inn
um gluggann og lýsir upp glóbjart hár bamsins
og myndar stóran ljósblett á veggnum.
Ancherhjónin létu stækka húsakynni sín
og byggðu eiginlega annað rautt hús sem
tengt var hinu gamla með lágri byggingu
sem þau gerðu að borðstofu. I nýbyggingunni
fengu þau bæði stórar vinnustofiir. Anna var
alsæl með sína og bjó hana sem best hún gat
Anægðust var hún með ljósbláu gluggatjöldin
sem náðu alveg niður á gólf og málaði þekkta
mynd af þessum glugga.
Ancherhjónin vom afar gestrisin og hús
þeirra stóð opið gestum og gangandi. Þekktar
vom garðveislur þeirra og allra þekktastar
aftnælisveislur Önnu ár hvert 18. ágúst. Af
einni þeirra málaði Kröjer alþekkta mynd sem
neftíd er Hip, hip hurra. Þar af dregur naftí
aldeilis prýðileg kvikmynd um Skagamálarana
sem sýnd hefiir verið hér á landi. Leikstjóri
er Kjell Grede.
Knud Voss segir um Önnu Ancher í bók
sinni Skagensmaleme: “Sólin, kyrrðin og
fólkið hjá henni er eins og djúpt ker þaðan
sem maður getur sífellt ausið upp hinum
fegursta skáldskap.“
Sænski málarinn Oscar Björk sagði um
Önnu: „Hún var sem sólskin“.
Eina fegurstu mynd sem eiginmaður
heftír málað af konu sinni tel ég vera mynd
Michaels af Önnu, þar sem hún kemur heim
úr gönguferð um engið eða akurinn og heldur
á stómm vendi gulra blóma. Guli liturinn er
ríkjandi í myndinni. Allur akurinn bylgjast
eins og gult haf, Anna er með gulan sólhatt og
sólskinið myndar fagurt mynstur ftíllþroska
komaxa á kjól hennar.
Þess má að lokum geta að á Hirschsprung-
safninu í Kaupmannahöftí erpiýðilegt saftí
Skagamálverka.
Heima er bezt 499