Heima er bezt - 01.10.2007, Qupperneq 21
öndunargrímu sem í var hellt eter -eöa,
svo öllu sé til haga haldið, díetíleter eða
etoxíetan, (C2H5)20.
Menn höfðu öldum saman þekkt eter,
sem er rokgjam, eldfímur vökvi, og
einkum notað hann sem nautnalyf er
framkallaði vímu við innöndun. Ekki er
að sjá sem nokkrum hafi dottið í hug að
nota efnið til lækninga á undan Morton.
Hann prófaði etergrímu sína fyrst á hundi
og síðan á aðstoðarmanni sínum, sem
báðir sofnuðu og vöknuðu síðan sér að
meinalausu. Þá var tímabært að prófa efnið
við læknisaðgerð. Morton taldi frægan
skurðlækni, John Collin Warren, á að
reyna tæknina á sjúklingi, og hinn 16.
október 1846 fjarlægði læknirinn æxli
af hálsi tvítugs málara í Boston, sem
Gilbert Abbott hét. Aðgerðin fór fram á
stóru sjúkrahúsi, Massachusetts General
Hospital, að viðstöddum fjölda forvitinna
skurðlækna.
Skemmst er frá því að segja að upp-
skurðurinn tókst ágætlega. Að honum
loknum rétti skurðlæknirinn úr sér og
mælti við áhorfendur sína: „Herrar mínir,
þetta er engin tískubóla “(Gentlemen, this
is no humbug.) Sjúklingurinn bærði ekki
á sér og staðfesti þegar hann vaknaði
að hann hefði ekki fundið fyrir neinu.
Skurðlæknir sem viðstaddur var, kallaði
þetta „hið stórkostlegasta sem sést hefði
á skurðstofu“.
Fregnin barst eins og eldur í sinu um
heiminn og brátt varð svæfmg fastur liður
í öllum meiriháttar skurðaðgerðum. Auk
eters var annað rokgjamt efni, klóróform
-þríklórmetan eða metílþríklóríð, CHC13
-um skeið mikið notað sem svæfilyf. Það
er með öllu óeldfimt, sem kom sér vel
fyrir daga raflýsingar, meðan skurðstofur
vom lýstar með gaslömpum. Eftir það
dró úr vinsældum klórófonns, enda kom
í ljós að dauðsföll af völdum þess voru
tíðari en við etersvæfingu.
Önnur svæfilyf
Það er óþægilegt að anda að sér eter
á þeim tíma sem líður áður en maður
missir meðvitund, og ákafúr þorsti og
önnur vanlíðan sækir á sjúklinginn alllengi
eftir að hann vaknar, enda hefúr eterinn
þokað fyrir öðmm svæfilyfjum. Sumt em
þetta gastegundir sem sjúklingar anda að
sér, en óþægilegar aukaverkanir em minni
en af eter. Auk þess em algeng svæfilyf
sem sprautað er í æð og verka á örfáum
sekúndum. Stundum er sprautusvæfmgu
beitt við alla aðgerðina en í öðrurn tilvikum
tekur gassvæfing við eftir að sjúklingurinn
er sofnaður.
Með nútímatækni er hægt að fylgjast
óslitið með ástandi sjúklings meðan á
aðgerð stendur og breyta skammti svæfilyfs
ef þörf krefur.
Staðdeyfing
Auk svæfilyfja, sem svipta sjúklinginn
meðvitund, er við ýmsar aðgerðir beitt
Heima er bezt 501