Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Page 25

Heima er bezt - 01.10.2007, Page 25
Horftyfir Berchtesgaden. hafí aukið mjög á sögufrægð svæðisins þá býður það sjálft upp á margt sem vert er að skoða. Má þar m.a. nefna Königsee, vatnið, sem liggur inn á milli hárra og brattra kiettahlíða, nánast eins og um stóran fjörð sé að ræða, og er siglt inn eftir því í sérstökum vatnarútum, sem svo mætti nefna, og er það óviðjafnanlega fagurt umhverfi sem þar er siglt um. Og á miðri leið er stansað, upp stendur einn stjómandi bátsins, bregður trompet á munn sér og spilar með hléum nokkra tóna úr þekktu lagi heimamanna. Og það bregst ekki, að í hvert sinn sem hann hættir spilinu þá bergmálar lagstúfurinn hátt og greinilega tilbaka. Og hann lætur þess getið að eitt sinn hafi prakkarar á svæðinu platað einn leiðsögumanninn, sem var að leyfa farþegum sínum að heyra þetta skíra bergmál. Þeir höfðu læðst á báti sínum upp að klettunum á þeim stað þar sem jafnan var stoppað með túristana, klifiað upp í hlíðina og falið sig þar. Svo þegar trompetleikarinn hóf að leika lagastúfa sína, þá spiluðu þeir alltaf tilbaka brot úr einhveiju allt öðm lagi. Og það má vel gera sér í hugarlund undmn bæði spilarans og Séð yfir Königsee m æ Einn „ rutu “batanna semflytja fólkyfir Königsee. Komið inn í botn dalsins sem König- vatnið er í. Þarna má sjá eitt selið. Heima er bezt 505

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.