Heima er bezt - 01.10.2007, Qupperneq 25
Horftyfir Berchtesgaden.
hafí aukið mjög á sögufrægð svæðisins þá
býður það sjálft upp á margt sem vert er
að skoða. Má þar m.a. nefna Königsee,
vatnið, sem liggur inn á milli hárra og brattra
kiettahlíða, nánast eins og um stóran fjörð sé
að ræða, og er siglt inn eftir því í sérstökum
vatnarútum, sem svo mætti nefna, og er
það óviðjafnanlega fagurt umhverfi sem
þar er siglt um. Og á miðri leið er stansað,
upp stendur einn stjómandi bátsins, bregður
trompet á munn sér og spilar með hléum
nokkra tóna úr þekktu lagi heimamanna. Og
það bregst ekki, að í hvert sinn sem hann
hættir spilinu þá bergmálar lagstúfurinn hátt
og greinilega tilbaka. Og hann lætur þess
getið að eitt sinn hafi prakkarar á svæðinu
platað einn leiðsögumanninn, sem var að
leyfa farþegum sínum að heyra þetta skíra
bergmál. Þeir höfðu læðst á báti sínum
upp að klettunum á þeim stað þar sem
jafnan var stoppað með túristana, klifiað
upp í hlíðina og falið sig þar. Svo þegar
trompetleikarinn hóf að leika lagastúfa
sína, þá spiluðu þeir alltaf tilbaka brot úr
einhveiju allt öðm lagi. Og það má vel gera
sér í hugarlund undmn bæði spilarans og
Séð yfir Königsee
m æ
Einn „ rutu “batanna semflytja fólkyfir
Königsee.
Komið inn í botn dalsins sem König-
vatnið er í. Þarna má sjá eitt selið.
Heima er bezt 505