Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.10.2007, Blaðsíða 30
og voru reistar sérstakar vinnubúðir við fjallið f'yrir allan þann hóp. Vegagerðin var afar vandasöm og ekki auðveld miðað við þá tækni og verkþekkingu sem til staðar var á þessum tíma. Vegurinn liggur í gegnum 5 jarðgöng á leiðinni upp á topp á aðalbílastæðið sem var í tæplega 1700 metra hæð. Frá bílastæðinu vom svo bomð eða sprengd lyftugöng beint upp í gegnum fjallið, 123 metrará hæð, og lágu þau beint inn í Amarhreiðrið. Eftir þeim gekk lyfta og gengur enn, sem búin er grænum leðursætum, með látúnsspeglum á veggjunum Amarhreiðrið var búið dýrmætum húsgögnum og öðrum toppþægindum síns tíma. Reyndar mun Hitler aldrei hafa verið neitt sérlega spenntur fyrir þessari fímmtugs- afmælisgjöf sinni og dvaldi ekki oft í húsinu. Hann notaði það eitthvað fyrir móttöku ýmissa þjóðhöfðngja, en annars mun það aðallega hafa verið Eva Braun, ástkona hans, sem nýtti sér húsið. Henni var hins vegar alltaf gert að víkja af svæðinu, þegar foringinn þurfti að nota húsið fyrir móttökur sínar. Sagt var að Bormann hafi orðið fyrir Hitler med gesti á svöhim Arnar- hreiðursins að virða fyrir sér útsýnið. Það var einn aðaltil- gangur hans með því að bjóða gestum þangað, að fá þá til að falla í staft yfir húsinu, staðsetn- ingu þess og útsýni. Og það mun ekki ósjaldan hafa tekist. Merkilegt var það, að eftir loft- árásir Bandamanna á Ohersah- berg, þar sem lystihús nasista voru, þá varð eftir þessi skugga- mynd á húsi Hitlers, sem er nánast eins og táknmynd dauðans. Útsýni úr einum opnanlegu gluggum Arnarhreiðursins, en hœgt var að renna honum ö/lum niður. nokkmm vonbrigðum með áhugaleysi Hitlers á húsinu og hafi hann beðið Evu Braun að tala alltaf vel um það og hrósa því í hástert þegar Hitler heyrði tii. Tilfellið var líka að Hitler var lofthræddur og leið illa á háum stöðum. Þá er sagt að hann hafi minnst á það við Bormann að vegna þess hvað loftið væri þunnt þama uppi þá gæti hann einungis komið í húsið stöku sinnum. Hann var líka smeykur við lyftuna, og taldi mjög áhætíusamt að ferðast Einn gangurinn í byrginu. Hér er hurð til hægri í neðanjarð- arbyrginu, sem liggur að göngum sem lágu upp að húsi Hitlers. Vinstra megin má sjá rimla fyrir álmu, sem œtluð var fyrir hunda hans. Götin við einn stigann, þar sem í gegn var stungið hlaupum vélbyssa hermanna, sem vörðu innganga þess. H/iðargöng eða herbergi neðan- jarðarbyrgisins voru ótrúlega vel búin húsögnum ogjafnvel teppum, og útbúnaðurinn á við sœmilegustu hótel. 510 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.