Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Side 31

Heima er bezt - 01.10.2007, Side 31
með henni. Hann óttaðist að eldingu gæti lostið niður í húsið þegar þannig viðraði. Reyndar haföi það gerst tvisvar á meðan á byggingu þess stóð, svo sá ótti var kannski ekki alveg ástæðulaus. Eftir að stríðið braust út kom hann aðeins einu sinni í Amarhreiðrið (sem Bandamenn munu hafa iyrstir kallað því naíni), í október 1940, og síðan aldrei eftir það. Svo vandaður var vegurinn og göngin sem gerð voru upp fjallið að hann er enn í dag í ágætu gildi og hefur ekki þurft neinna breytinga við. Árið 1943 voru bandamenn famir að gera meiriháttar loftárásir á þýskar borgir, og fóru nasistar nú að iiuga að því að efla loftvamir sínar á svæðinu. Þrátt fyrir áróður Göbbels um algjöran sigur, þá gátu menn ekki lengur, þegar þar var komið sögu, horft framhjá þeirri staðreynd að farið var að halla vemlega undan fæti hjá þriðja ríkinu, og jafnvel hilla undir ósigur. Bandamenn vom einnig famir að stefha árásum sínum að Berchtesgaden því þeir töldu um tíma að lokaomistan um Þýskaland myndi jafnvel fara þar fram. Staðreynd mun það og vera að Hitler hafði íhugað það alvarlega að flytja höfuðstöðvar sínar þangað, þegar mest fór að ganga á í Berlín, og mun m.a. hafa verið búinn að flytja um 80 manns af starfsliði sínu til Berchtesgaden. En svo fékk hann bakþanka, af þeirri ástæðu að honum mun ekki hafa þótt nógu hetjulegt að renna af hólmi frá her- og stuðningsmönnum sínum í höfúðstöóvum flokksins og ákvað þvf að berjast til loka í Berlín. Nasistarnir hófú árið 1943 að byggja heljarmikið neðanjarðarbyrgi í fjallinu fyrir ofan Obersalzberg, og var það að sjálfsögðu afar leynileg aðgerð. Henni stjómuðu þýskir verkfræðingar og fengnir vom verkamenn frá Italíu og Tékkóslóvakíu. I neðanjarðarbyrginu var að fínna alla nýjustu tækni sem til var á þessum tíma, svo sem til þess að fleyta burt skolpi, stýra loftræstingu, hitun og rafmagni. Alls eru göngin um 2800 metrar og tengja saman um 80 herbergi. Sum voru eingöngu búin tækjum en önnur fínustu húsgögnum. Við ferðalangarnir, sem vomm þama á ferð á vordögum 2006, áttum þess kost að skoða þessi neöanjarðargöng. Verður að segjast sem er að þau em ótrúlega vel gerð og margslungin, öll múrhúðuð að innan. Helmingur þeirra mun hafa fundist strax undir lok stríðsins en ekki munu vera nema um 15-20 ár síðan að seinni helmingurinn uppgötvaðist, svo vel varðveitt leyndarmál voru þessi göng. Við fórum niður í þau innanhúss í hótelinu sem áður er nefnt og kallaðist Tyrkinn, á sínum tíma. Fyrst þegar komið er niður í göngin er gengið niður fjöldan allan af tröppum, rúmlega hundrað talsins. Og allan tímann á meðan gengið er niður tröppumar blasa við manni neðst, þijú göt á veggnum, sem vom gerð fyrir hlaup vélbyssa, sem verðir beindu gegn þeim sem inn komu, ef ske kynni að það væru óvelkomnir gestir. Þegar komið er svo nióur að þessum hríðskotagötum, liggja göngin aðeins til hliðar og aftur taka við tröppur niður á við, þar sem annað vélbyssuhreiður bíður með sama hætti. Það heföi því ekki verið heiglum hent að reyna að komast inn í þetta byrgi á sínum tíma. Og þama gengur maður framhjá herbergi eftir herbergi, sem búið erað merkja ferðamönnum til upplýsingar, og má þar nefna ýmis birgðaherbergi, fundaherbergi, svefnherbergi, og meira Hótel Tiirken, þaðan sem farið er niður í neðanjarðarbyrgið í fjallinu í dag. að segja má á einum stað fínna sérstakt herbergi fyrir hunda Hitlers. Álmur lágu svo upp undir hús helstu foringjanna, svo sem Bormanns, Görings, Speers, Göbbels og að sjálfsögðu Hitlers. Ef á þurfti að halda gátu þeir semsagt komist ofan í göngin beint úr húsum sínum. Bandamenn reiknuðu með að fást við SS hersveitir í Berchtesgaden sem væm þar að veija ýmsa embættismenn nasista og vom amerískar og ffanskar hersveitir sendar þangaó sérstaklega. En þegar til kom þá reyndist andstaðan engin á svæðinu og var það hertekið án þess að til orrustu kæmi. En áður höföu bandamenn gert miklar loftárásir á Berchtesgaden til að undirbúa hertöku sveita sinna. Aðeins fáir íbúar fómst í þeim árásum, þar sem þeir gátu nýtt sér neðanjarðargöng nasistanna sem loflvamarbyrgi, en þeir vom flúnir af svæðinu,. Öll hús nasistaforingjanna eyöilögðust í loftárásunum en Amarhreiðrið varð ekki fyrir sprengjum. Eftir stríðið vom uppi áfonn um að eyðileggja allar byggingar sem reistar höföu verið af nasistum á svæðinu. En það varð ofan á að hlífa Amarhreiðrinu, sem í dag heitir Kehlsteinhaus og er rekið sem veitingahús. Öll önnur ummerki um vem nasistanna vom hins vegar eyðilögð og vom restar húsa þeirra sprengdar í loft upp árið 1952. Húsið, þar sem íslensku ferða- langarnir gistu á meðan þeir dvöldu í Berchtesgaden, hjá þeim Helgu Þóru og Peter Eder. Heima er bezt 511

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.