Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 35

Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 35
Eggjataka var mikil í Grímsey. Hér er ungur sveinn við hrúgu af eggjum. heimili í Grímsey og auk þess allgóðan vísi að bókasafni, meðal annars með skákritum ýmiss konar, og loks gildan sjóð til viðhalds og aukningar á bókasafninu. Hefur gjöf þessi komið í góðar þarfir og stytt mörgum stundir í landlegum og á löngum vetrarkvöldum. Ekki mun nú skákíþróttin jafn mikið stunduð og áður fyrr, og valda því breyttir lifnaðarhættir, útvarpið o. fl. Grímsey hefur um aldaraðir verið eitt afskekktasta byggðarlag íslands og með fádæmum erfitt um aðdrætti alla og samgöngur við land á meðan ekki var til annarra farartækja að leita en róðrarbáta einna. Setti þessi einangrun að sjálfsögðu nokkurn svip á líf, hugsanagang og atvinnuhætti íbúanna. En nú er þegar orðin á þessu gagnger breyting, síðan vélamenningin komst til valda og má þar nefna vélskip og flugvélar, sem í einni svipan hafa rofið einangrunina og fært Grímsey og íbúa hennar inn í straumiðu menningarinnar. En þrátt fyrir þetta og með tilliti til þess, hve stutt er síðan vélainenningin náði út í hina afskekktu byggð, þá getur þar enn að líta einkenni fornra atvinnuhátta, sem víðast hvar annars staðar eru horfnir eóa eru að hverfa úr íslenzku þjóðlífí. Má þar nefna bjargsigið, fuglaveiðar á flekum, auk gamaldags vinnubragða við heyannir o. fl. Þá má þess og geta, að á llestum bæjum í Grímsey sækir fólk vatn í brunna Og ber það oft langan veg í fötum með vatnsgrind um öxl. Vatn er yfirleitt ekki til í Grímsey, nerna nokkrar leirtjarnir, sem flestar þoma upp í langvarandi þurrkum. Grafa bændurnir brunnana sem næst bæjum sínum, og síast vatnið í þá gegnum jarðveginn úr tjörnunum. I þurrkatíð horfír stundum til vandræða með neyzluvatn, því að þá þorna sumir brunnarnir með öllu upp. Saga eyjarinnar Litlar sagnir eru um elztu byggð Grímseyjar. Hvergi er getið um fund hennar, en sagnir herma, að sá, sem fann hana fyrstur, hafi Grímur heitið og að þannig sé nafn hennar til komið. Grímur þessi átti að hafa verið bróðir Kolbeins þess, er Kolbeinsey er við kennd. Sagt er, að Grímur hafi byggt hof í Grímsey, að bænum Grenivík. Seinna fauk hoflð í ofviðri og var þá flutt að Miðgörðum. Þegar kristni var lögtekin, var kirkja byggð á sama stað, og hefur hún verið þar síðan. I fornsögum er Grímseyjar nokkrum sinnum getið, og af þeim má ráða, að í Grímsey hafi verið byggð í lok 10. aldar. Ennfremur að þá skömmu síðar hafí verið þar fískiúthald mikið, trjáreki og hvalreki, sem höfðingjar í landi áttu. í Sturlungu kemur Grímsey oft við sögu, en þó hvað mest í sambandi við sögu Guðmundar biskups góða, en hann flýði, sem kunnugt er, til Grímseyjar árið 1222 ásamt 70 manna liði vopnfærra manna og 30 kvenna og stafkarla. Sturlungar sóttu að biskupi út í Grímsey til að koma fram hefndum á honum og höfðu hálfan ljórða tug skipa. Biskupsmenn gerðu allt hvað þeir gátu til að verja þeim landgönguna, en fengu ekki við ráðið, enda var var biskupsliðið hugdeigt og illa búið og auk þess liðsmunur verulegur. Var Guðmundur biskup þá tekinn höndum og fluttur til lands, en á leiðinni hrepptu skipin veður mikið og týndust þá sum skip þeirra feðga, Sighvats og Sturlu. Að lokinni Flugumýrarbrennu voru nokkrir brennumenn eltir út til Grímseyjar, og kom þar til bardaga, en frá því á Sturlungaöld fara litlar sögur af manndrápum eða hryðjuverkum í Grímsey, að undanskildu því, sem þjóðsögur herma. Reyndar segir Hannes Pálsson í skýrslu sinni, að Englendingar hafi haft í frammi rán og óspektir í Grímsey árið 1423. Rændu þeir í kirkjunni kaleikum, bókum og skrúða og meira að segja kirkjuklukkum líka, fólk börðu þeir og særðu og svívirtu konur. - Þjóðsagan segir svo frá þessum atburði, að þann dag, sem Englendingar komu til Grímseyjar, hati eyjarskeggjar verið rónir til fískjar austur af eynni en þó ekki svo langt, að þeir sæi ekki til eyjarinnar. Jafnskjótt og ræningjarnir lentu var kona send út á bjargbrún, þar sem eyjan rís hæst, og skyldi hún breiða á hvíta voð til merkis um að hætta vofði yfír. Sáu eyjarskeggjar merkið og hröðuðu sér heim. Lentu þeir á afviknum stað við eyna, öfluðu sér barefía og fóru mikinn til bæja. Höfðu ræningjarnir þá gert usla, þar sem þeir gátu komið því við, meðal annars rænt og ruplað Grímseyjarkirkju og misþyrmt konum, eins og áður er sagt. En áður en þeir höfðu meiri spellvirki í frammi komu eyjarmenn í opið flasið á þeim og sló þá þegar i bardaga, sem lauk með sigri Grímseyinga. Heima er bezt 515

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.