Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.10.2007, Blaðsíða 36
En þekktust er saga Grímseyjar og eftirminnilegust frá þeim atburði, er Olafur konungur Haraldsson falaði hana af Islendingum, en Einar Þveræingur réð frá því að gefa eyna, og hefur hann fyrir það hlotið mikið lof í SÖgll íslands. - Sendimaður Ólafs konungs, er flutti kveðju hans og beiðni um að gefa konungi Grímsey, var Þórarinn Nctjólfsson, svo sem kunnugt er. Þegar hann kom á Þingvöll, gekk hann til Lögbergs og bar þingheimi kveðju konungs og það með, að hann beiddist vingjafar af Norðlendingum, þar sem væri útsker það, er Grímsey nefndist. Einar Þveræingur latti ákveðið gjafarinnar. Taldi hann, að í Grímsey mætti vel fæða her manns, og þá er sá her færi þaðan með langskipum, myndi mörgum kotkörlum þykja ærið þröngt fyrir dyrum, þar sem þeir réðu að húsi. Hins vegar kvað Einar, að konungi mætti senda vingjafír nokkrar, ef menn vildu svo við hafa, og taldi til þess „hauka eða hesta, tjöld eður segl, eða aðra þá hluti, er sendingar eru í“. Og svo sem Einar hafði þetta rætt, snerist þingheimur allur með honum og kvað Grímsey aldrei í eigu konungs koma skyldi. Hefur Grímsey þá frægust orðið í sögu Islands. Heb 1957. 516 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.